Síða 1 af 1
Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:34
af GuðjónR
Airfryer fyrir 2 manneskjur, eru þetta góð kaup í Costco á 10 þúsund? Ég hef ekkert vit á þessu. Er þetta no brainer miðað við 90 daga skilarétt? Er einhver hér með reynslu af svona græju? Er kannski eitthvað betra sem kostar ekki miklu meira?
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:42
af Gemini
Ég hef aldrei skilið þetta æði. Hefði haldið að stór heimilis blástursofn væri miklu betri en svona ódýrir mini blástursofnar. Hefði haldið að þetta væri meira svona í vinnuskúrinn. En ég þekki þetta lítið svosem, mögulega er þetta að gera eitthvað meira fyrir mann en ég veit, hálf forvitinn

Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:46
af Moldvarpan
Ég myndi segja go for it. Þetta er rosalega þægilegt gadget að hafa í eldhúsinu.
Uppáhaldið mitt er að roasta purusteik í þeim, svo auðvelt og gott. Líka annað kryddlegið kjöt, gott að roasta.
Kjúklingaborgarar verða crispy eins og á veitingastað, gott með grænmetissósu, bbq, chili mayo.
Ég keypti double stacker, og hefur reynst mér vel, sáttur með kaupin, og það var á 40k, en það var líka gott quality.
Hef heyrt bara góða hluti um þessa ódýru frá costco,,, um að gera að kaupa og prófa þetta.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:47
af Moldvarpan
Gemini skrifaði:Ég hef aldrei skilið þetta æði. Hefði haldið að stór heimilis blástursofn væri miklu betri en svona ódýrir mini blástursofnar. Hefði haldið að þetta væri meira svona í vinnuskúrinn. En ég þekki þetta lítið svosem, mögulega er þetta að gera eitthvað meira fyrir mann en ég veit, hálf forvitinn

Ég hélt þetta sama fyrst.
En air fryerar virka ekki þannig, þeir eru stanslaust að sjúga loft út úr fryernum, staðin fyrir að blása því bara um.
Þannig verður steikingin allt allt öðruvísi. Googlaðu þetta.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:49
af worghal
æeg mundi segha að 10k fyrir þetta er þrusu díll

Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 13:51
af gunnimikki
Gemini skrifaði:Ég hef aldrei skilið þetta æði. Hefði haldið að stór heimilis blástursofn væri miklu betri en svona ódýrir mini blástursofnar. Hefði haldið að þetta væri meira svona í vinnuskúrinn. En ég þekki þetta lítið svosem, mögulega er þetta að gera eitthvað meira fyrir mann en ég veit, hálf forvitinn

Pabba fannst þetta fáranleg hugmynd, þar til svona tæki var keypt.
Finnst þetta kúl núna. Viftu stærð miðað við rýmis stærð er miklu meiri á air fryer heldur en á venjulegum ofnum
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 14:40
af Mazi!
Þetta er án efa mest notaða tækið í eldhúsinu og hefur verið það alveg síðan við festum kaup á Airfryer árið 2019.
Ég hélt í fyrstu að þetta yrði bara enn eitt eldhústækið sem maður notar tvisvar og setur svo ofan í geymslu – en sú varð aldeilis ekki raunin.
Við notum Airfryer til að elda alls konar mat, og það er sérstaklega frábært til að hita upp afganga. Útkoman er allt önnur en úr hefðbundnum blástursofni – maturinn verður stökkari að utan og safaríkari að innan.
Tækið hitnar líka ótrúlega hratt og er komið í 200 gráður á um tveimur mínútum, sem sparar mikinn tíma í upphitun miðað við venjulegan heimilisofn.
Ef eitthvað ætti að víkja úr eldhúsinu, þá væri það örbylgjuofninn – Airfryerinn sér einfaldlega um þetta allt miklu betur.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 14:42
af Gemini
Mazi! skrifaði:Þetta er án efa mest notaða tækið í eldhúsinu og hefur verið það alveg síðan við festum kaup á Airfryer árið 2019.
Ég hélt í fyrstu að þetta yrði bara enn eitt eldhústækið sem maður notar tvisvar og setur svo ofan í geymslu – en sú varð aldeilis ekki raunin.
Við notum Airfryer til að elda alls konar mat, og það er sérstaklega frábært til að hita upp afganga. Útkoman er allt önnur en úr hefðbundnum blástursofni – maturinn verður stökkari að utan og safaríkari að innan.
Tækið hitnar líka ótrúlega hratt og er komið í 200 gráður á um tveimur mínútum, sem sparar mikinn tíma í upphitun miðað við venjulegan heimilisofn.
Ef eitthvað ætti að víkja úr eldhúsinu, þá væri það örbylgjuofninn – Airfryerinn sér einfaldlega um þetta allt miklu betur.
Díses, þið endið með að senda mig í Costco líka að kaupa svona á 10.000 kall

Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 14:48
af Hausinn
Mazi! skrifaði:Ef eitthvað ætti að víkja úr eldhúsinu, þá væri það örbylgjuofninn – Airfryerinn sér einfaldlega um þetta allt miklu betur.
Myndi segja að hitunaraðferðin sé of mismunandi til þess að bera þessi tvö tæki saman. Ég myndi aldrei hita up afgangs hrísgrjón eða súpu í air fryer t.d.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 14:54
af Mazi!
Hausinn skrifaði:Mazi! skrifaði:Ef eitthvað ætti að víkja úr eldhúsinu, þá væri það örbylgjuofninn – Airfryerinn sér einfaldlega um þetta allt miklu betur.
Myndi segja að hitunaraðferðin sé of mismunandi til þess að bera þessi tvö tæki saman. Ég myndi aldrei hita up afgangs hrísgrjón eða súpu í air fryer t.d.
jebb það er eina ástæðan fyrir því að örbylgjuofninn fær að vera þarna enþá, en airfryerinn er búinn að leysa flest annað af hólmi.
Gemini skrifaði:Mazi! skrifaði:Þetta er án efa mest notaða tækið í eldhúsinu og hefur verið það alveg síðan við festum kaup á Airfryer árið 2019.
Ég hélt í fyrstu að þetta yrði bara enn eitt eldhústækið sem maður notar tvisvar og setur svo ofan í geymslu – en sú varð aldeilis ekki raunin.
Við notum Airfryer til að elda alls konar mat, og það er sérstaklega frábært til að hita upp afganga. Útkoman er allt önnur en úr hefðbundnum blástursofni – maturinn verður stökkari að utan og safaríkari að innan.
Tækið hitnar líka ótrúlega hratt og er komið í 200 gráður á um tveimur mínútum, sem sparar mikinn tíma í upphitun miðað við venjulegan heimilisofn.
Ef eitthvað ætti að víkja úr eldhúsinu, þá væri það örbylgjuofninn – Airfryerinn sér einfaldlega um þetta allt miklu betur.
Díses, þið endið með að senda mig í Costco líka að kaupa svona á 10.000 kall

Mæli með!

Dominos pizza, KFC bitar, asískar rækjur í orly ofl, þetta verður allt mjög gott í Airfryer daginn eftir á meðan örbylgjan gerir þetta mjúkt og blautt.
Franskar koma vel út í þessu líka, kjúklingur og flestur matur hehe.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 15:07
af emil40
ég nota minn mjög mikið er samt ekki viss með stærðarmuninn
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Fös 20. Feb 2026 22:39
af Dropi
Ég er með nákvæmlega þennan og fyrir tvö er hann alveg nógu stór, en núna er fjölskyldan stærri og ég gæti stækkað við mig. Mjög góður fyrir frosinn fisk í raspi, allt tekur helmingi styttri tíma en í blástursofni og hitnar á notime. Spara mér hálftíma í hvert skipti sem ég nota hann.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Lau 21. Feb 2026 08:33
af ABss
Ég á öðruvísi gerð en það er furðulegt hvað ég er ánægður með svona tæki.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Lau 21. Feb 2026 12:45
af GuðjónR
Takk fyrir öll svörin.
Það var nóg að lesa viðbrögðin hér inni til að sjá að þetta gæti verið sniðug kaup, svo ég rauk út og keypti einn fyrir dóttur mína og kærastann hennar.
Þau eru mikið í bílskúr foreldra hans sem er innréttaður eins og lítil íbúð, en eru bara með ísskáp.
Hún var búin að velta fyrir sér hvort þau ættu að fá sér örbylgjuofn eða airfryer, þannig að þetta smellpassar held ég.
Og ef þetta reynist ekki eins vel og vonast er til þá er 90 daga skilarétturinn líka algjör snilld.
Re: Er 10.000 kr airfryer fyrir tvo góð hugmynd?
Sent: Lau 21. Feb 2026 14:14
af Viktor
Afhverju þarf þetta allt að líta út eins og geimskip úr Eve Online?
Mikil tækifæri á þessum markaði að smíða loftsteikingapott sem lítur sæmilega vel út.