Síða 1 af 1
Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 09:24
af rapport
Um langt skeið virtist sem að Opin Kerfi yrðu undir í samkeppni þessara þriggja stóru, Advania, Origo og OK...
Ég verð að segja að þetta kemur virkilega á óvart og maður er allt í einu ekki viss um framtíð þessarar samsteypu.
Er kannski eitthvað í þessu sem ég er ekki að fatta?
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 09:33
af KaldiBoi
Fyrir það fyrsta þá er NOVA er afskaplega vel rekið fyrirtæki og hefur skilað föstum, góðum hagnaði.
Enn stærstu símfélögin hafa verið að sækja aukna hlutheild á ýmsa markaði (sjá. Símann) og þetta held ég að sé næsta rökrétta skref fyrir NOVA.
Vonandi kemur eitthvað gott úr þessu fyrir vv.
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 09:48
af Daz
Ofar er bara verslunarreksturinn (uppsetning og tengt).
Origo er svo rekstrar þjónustan, stærri hugbúnaðarlausnir og slík þjónusta.
Hugbúnaðarþróun er svo að einhverju leiti komin í önnur félög. Aðallega Helix miðað við hvað ég finn á netinu.
Þetta hefur staðið til alveg síðan Nýherji/ Origo var tekinn af markaði fyrir nokkrum árum, að félaginu yrði skipt upp og selt í smáum einingum. (Byrjaði með Tempo)
(heimildir engar, ég bara ályktaði þetta miðað við fréttaflutning)
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 09:58
af GuðjónR
Er 1. apríl?

Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 10:24
af Klemmi
Voru líka að selja Tölvutek, ef það fór fram hjá mönnum
https://www.visir.is/g/20262843947d/eld ... arfsmonnum
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 10:51
af rapport
Var ekki búinn að sjá þetta...
Hefði akkúrat haldið að þeir hefðu verið inní hinum "pakkanum"...
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 11:39
af GuðjónR
Er þá gamli Nýherji búinn að selja Tölvutek og Ofar, hvað er þá eftir?
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 12:15
af Daz
GuðjónR skrifaði:Er þá gamli Nýherji búinn að selja Tölvutek og Ofar, hvað er þá eftir?
Eins og ég skrifaði fyrir ofan. Origo og Helix. Ég held að Syndis sé líka sérstök eining en ekki bara vörumerki innan Origo.
Sama með Caren, Booking factory og Reserva. Þau gætu verið sér fyrirtæki núna (eða horfin?) sem gamla Nýherja samsteypan átti og núverandi móðurfélag á þá ennþá.
https://vb.is/frettir/ny-lausn-i-ferdageiranum/Edit :
Fann þetta loksins
https://www.skyggnir.is/eignasafn
Re: Nova kaupir Ofar
Sent: Fös 20. Feb 2026 12:36
af audiophile
Þessu átti ég ekki von á.