Síða 1 af 1

Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 08:42
af Moldvarpan
Ég hef hingað til ekki snert þetta, en langar að kaupa mér eitt stk, þetta getur verið handy.

Vill geta eldað heilan kjúkling, purusteik, pizzu, þannig stærðin þarf að vera nokkur.

Ég veit ekkert hvaða tegund maður á að kaupa sér, ráðleggingar frá þeim sem hafa prófað nokkra og þekkja þetta?

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 09:33
af brain
er með þennan,
https://elko.is/vorur/ninja-foodi-max-t ... 67/AF451EU

Steiki kjúlla í heilu, gott að hafa no 2 fyrir franskar etc.

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 10:34
af RassiPrump
Er með þennan, og hef ekkert nema gott um að segja: https://elko.is/vorur/ninja-max-loftste ... 07/AF160EU

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 11:15
af Moldvarpan
Eru Ninja með bestu græjurnar? Lýst rosalega vel á þær frá myndum, lookar sleek og notendavænt.

https://elko.is/vorur/ninja-tvofaldur-loftsteikingarpottur-95l-double-stack-air-fryer-350164/100SL400EU Langar soldið í þennan, en veit ekki hvort ég þurfi 2 hólf.

https://elko.is/vorur/fb-xl-slimline-loftsteikingarpottur-8-litra-354590/FB31207 Þessi lookar eins og hann sé fullkominn, en þekki þennan framleiðanda ekkert.

https://byggtogbuid.is/severin-loftsteikingarpottur-9-litra-flex.html Þessi virðist vera ódýrastur miðað við stærð.

Hvernig er að þvo hólfin, er hægt að setja þetta í uppþvottavélar frá öllum framleiðendum?

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 11:17
af Jón Ragnar
Er með úr costco sem kostaði klink - ætla að uppfæra í með 2 skúffum þegar hann gengur úr sér

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 11:37
af DJOli
Fékk Airfryer gefins fyrir ekki svo löngu. Virkar sniðugt en grínlaust bara sniðugara að nota bakarofninn. Sama prinsipp, og pláss fyrir fleira án þess að þurfa að kaupa stærri eða fleiri airfryera.

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 11:59
af Viggi
ekki gleyma að kaupa pakka af þessu, sparar þrifin

https://byggtogbuid.is/sabor-air-fryer- ... 60stk.html

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 13:56
af Moldvarpan
DJOli skrifaði:Fékk Airfryer gefins fyrir ekki svo löngu. Virkar sniðugt en grínlaust bara sniðugara að nota bakarofninn. Sama prinsipp, og pláss fyrir fleira án þess að þurfa að kaupa stærri eða fleiri airfryera.


Já, ég hef notað bakaraofn hingað til. En þetta er sama concept og eggjasuðutækin, það er alveg hægt að sjóða egg í potti á eldavélinni, en þessi tæki gera þetta bara svo miklu þægilegra. Henda eggjum í tækið, í gang með þetta og maður fer að gera annað. Svo pípir tækið og maturinn klár.
Maður þarf ekkert að spá í því að "elda" matinn.

Þetta er fljótara að hitna en bakaraofn og blásturinn mun meiri. Þetta er bara eitt handy gadget sem ég ætla prófa almennilega.

Viggi skrifaði:ekki gleyma að kaupa pakka af þessu, sparar þrifin

https://byggtogbuid.is/sabor-air-fryer- ... 60stk.html


Þetta er rosalega góð pæling og ábending, var ekkert búinn að spá í þetta, en mun pottþett kaupa þetta núna :) Takk

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 14:04
af Moldvarpan

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 14:47
af Moldvarpan
Keypti bara þennan hjá Tölvutek, bjóst ekki við að finna hann hjá þeim en hey, hlakka til að prófa hann :)

Re: Airfryers

Sent: Þri 11. Nóv 2025 23:17
af CendenZ
Keyptu þér tvöfaldan. Þvílíkur munur að geta eldað kjötið í einu hólfi, meðlæti í öðru

Re: Airfryers

Sent: Mið 12. Nóv 2025 16:44
af Moldvarpan
CendenZ skrifaði:Keyptu þér tvöfaldan. Þvílíkur munur að geta eldað kjötið í einu hólfi, meðlæti í öðru


Já ég endaði með að gera það, keypti þennan Double stacker. Hlakka til að fá hann og prófa græjuna :)

Re: Airfryers

Sent: Mið 12. Nóv 2025 17:14
af mikkimás
DJOli skrifaði:Fékk Airfryer gefins fyrir ekki svo löngu. Virkar sniðugt en grínlaust bara sniðugara að nota bakarofninn. Sama prinsipp, og pláss fyrir fleira án þess að þurfa að kaupa stærri eða fleiri airfryera.

Loftsteikingarpottar virka mun betur en hefðbundnir blástursofnar, þó þeir séu í eðli sínu eins.

Re: Airfryers

Sent: Mið 12. Nóv 2025 17:36
af Viggi
Svo geturðu látið eldunina í air fryer verið búin á sama tíma sem er ekki hægt í ofni sem er ótrúlega næs

Re: Airfryers

Sent: Mið 12. Nóv 2025 17:39
af appel
Ég á svona Ninja air fryer
Mynd

ekki tvöfaldur, en keypti fyrir kannski 4 árum og þvílík breyting í eldunarmenningunni hjá mér. Elska þennan grill-platta, fæ svona "seering" á kjöt með því. margar functionir, air frying, bake, roast, etc. Nota eiginlega aldrei gamla stóra ofninn í eldhúsinu lengur, hann er svo lengi að hitna og hentar bara þegar maður er að elda mikið í einu. Þessi græja með grill plattanum orðin vel heit á 5 mín, miklu auðveldara en að kveikja upp í einhverju grilli.

hefði mælt með svona græju með grill functioni. ásamt air frying, sé reyndar ekkert í boði þarna á elko með slíkt, en þeir voru með þannig græju.