Síða 4 af 34

Re: Folding@home

Sent: Fim 08. Apr 2010 03:34
af chaplin
Sjeet! Ert held ég með golden chip, ég er að keyra minn á 3.95GHz @ 1.49v og NB 2.6 GHz @ 1.3v

Re: Folding@home

Sent: Fim 08. Apr 2010 04:58
af dragonis
daanielin skrifaði:Sjeet! Ert held ég með golden chip, ég er að keyra minn á 3.95GHz @ 1.49v og NB 2.6 GHz @ 1.3v


1.55 V. CP...rated hann fer hærra ,þetta er bara spurning um Hita ! :)

Re: Folding@home

Sent: Fim 08. Apr 2010 10:57
af chaplin
Ertu að folda með skjákortinu og örgjörvanum? Hvað ertu að fá í PPD clientunum? Notar HFM.NET til að sjá það.

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 03:13
af dragonis
CPU.
Mynd

GPU.
Mynd
???

Já, er að keyra CPU og skjákortið.

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 10:47
af chaplin
Minnir að ég sé með 6000ppd average á 965 þegar skjákortið er líka í gangi, verð að skoða þetta aðeins betur.

Annars er liðið komið með 80.000 í score! Þetta er á innan við viku! Verðum egna stund að nálgast 320.000!

http://fah-web.stanford.edu/cgi-bin/mai ... num=184739

..það ætlar að vera vonlaust á ná þessum snuddaling! Um leið og ég get hætt að nota i7 vélina mína í að folda fyrir overclock.net þá kem ég strax yfir! 6 clients 4tw! :twisted:

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 11:40
af Tiger
daanielin skrifaði:Minnir að ég sé með 6000ppd average á 965 þegar skjákortið er líka í gangi, verð að skoða þetta aðeins betur.

Annars er liðið komið með 80.000 í score! Þetta er á innan við viku! Verðum egna stund að nálgast 320.000!

http://fah-web.stanford.edu/cgi-bin/mai ... num=184739

..það ætlar að vera vonlaust á ná þessum snuddaling! Um leið og ég get hætt að nota i7 vélina mína í að folda fyrir overclock.net þá kem ég strax yfir! 6 clients 4tw! :twisted:


Hvað hindrar þig í að GETA hætt að folda fyrir aðra en okkur? :) Ertu á samning, atvinnumaður bara ;)

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 11:47
af chaplin
Atvinnumaður! :8)

Neinei, ég er 13 sætum frá því að komast í top 1500 listann, total points 69,952, wu 84 :8) svo folda ég fyrir vaktina og þá fæ ég bókstaflega 0 bónusa.. points 14901 wu 56 #-o

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 11:51
af Tiger
Já þetta er svolítið twisted kerfi og hálf óskiljanlegt, en svo lengi sem ég er efstur er mér sama :)

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 11:56
af chaplin
Mátt reikna með að halda því í ca. 4 daga í viðbót.. :twisted:

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 11:59
af Tiger
Eina góða við að tapa í þessu er að þá er einhver duglegri en ég að vinna í því að finna lækningu við sjúkdómum :) Win Win situation =D>

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 12:11
af chaplin
Allir sem Folda eru sigurvegarar. :wink:

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 12:49
af blitz
Er ekki töluvert "betra" að folda fyrir OCN? Endalausir peningavinningar í boði :)

Ég geri það amk

Re: Folding@home

Sent: Fös 09. Apr 2010 13:19
af chaplin
Ég er nú ekki að folda fyrir OCN fyrir peningana, enda þarf maður að ná massívum árangri til að eiga séns á verðlaunum, er ekki einusinni að taka þátt.. vill bara koma í top 1500 og svo fer ég yfir í að folda fyrir vaktina.. :roll:

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 14:02
af Tiger
Jæja komnir yfir 100.000 stiginn! En það eru ansi fáir activir þarna, ég og Danni með 1/2 stigana þarna.

Koma svo, látið þesasr idle tölvur ykkar vinna gott starf. Þetta truflar mann ekki neitt í daglegri vinnslu, ég spila leiki í hæðstu upplausn með þetta í botni og finn ekki fyrir því.

Mynd

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 14:34
af chaplin
Dragonis, Kobbmeister, Siggi200 eru nú alveg að gera sitt líka, væri þó til að sjá hátt í 20 tölvur að worka þetta, væri ekkert súrt að sjá fleiri admins vinna með í þessu.

Og svo eins og þú sagðir, ég er alltaf með þetta í gangi, finn 0 fyrir þessu sama hvaða leik ég spila þar sem þetta notar aðeins "idle" af örgjörvanum.. :wink:

* Edit

Ef ykkur finnst þið vera fá það fá stig að það sé ekki þess virði að hafa þetta í gangi, að þá þið örfá stig fyrir fyrstu 10 WU A3 sem þið gerið, ca. 300-500 score, eftir það fáiði hátt í 3000-5000 score svo ekki gefast upp á þessu! ;)

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 14:47
af GullMoli
Komdu upp leiðbeiningum um hvernig ég nýti bæði skjákortin mín fullkomlega og ég skelli vélinni minni almennilega í gang :)

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 14:51
af Tiger

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 14:59
af chaplin
Já btw. 8800 kortin með shader clock í 1800 gefur þér +6k á sitthvort kortið! 12k ppd fyrir svona gamal kort er sick! Og svo þegar þú færð bonuses fer það enþá hærra.. :8)

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:12
af GullMoli
daanielin skrifaði:Já btw. 8800 kortin með shader clock í 1800 gefur þér +6k á sitthvort kortið! 12k ppd fyrir svona gamal kort er sick! Og svo þegar þú færð bonuses fer það enþá hærra.. :8)


Bíddu nú við, EVGA Precision segir að kortin mín séu með shader clock í 1300 o.O

Mynd

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:34
af chaplin
Ýttu á "Link" og þá geturu hækkað klukkuna, kortið mitt er 620 / 1803 / 1157 eins og er, viftan er 72% og hitinn mallar í 68°c..

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:42
af vesley
daanielin skrifaði:Ýttu á "Link" og þá geturu hækkað klukkuna, kortið mitt er 620 / 1803 / 1157 eins og er, viftan er 72% og hitinn mallar í 68°c..



what ? ég næ mínu 8800gts 640mb engan vegin í svona háa klukkun.

það er btw stock í 513/1188/792

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:54
af GullMoli
daanielin skrifaði:Ýttu á "Link" og þá geturu hækkað klukkuna, kortið mitt er 620 / 1803 / 1157 eins og er, viftan er 72% og hitinn mallar í 68°c..



Vá, færðu enga vængefna pixels ef þú stresstestar það með t.d. Ati tool dæminu?

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:57
af chaplin
Ca. 620 / 1600 / 1100 virkaði reyndar 100% ef ég man rétt, fór í 650 / 1700 / 1250 var orðið pínu skrítið . En fyrir folding skiptir Shader Clock mestu máli, gæti haft hinar klukkurnar aðeins lægra held ég, en þessar stillingar virka 100% fyrir folding svo ég þarf ekkert að spá í "vængefnum" pixlum.. :lol:

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 15:59
af GullMoli
daanielin skrifaði:Ca. 620 / 1600 / 1100 virkaði reyndar 100% ef ég man rétt, fór í 650 / 1700 / 1250 var orðið pínu skrítið . En fyrir folding skiptir Shader Clock mestu máli, gæti haft hinar klukkurnar aðeins lægra held ég, en þessar stillingar virka 100% fyrir folding svo ég þarf ekkert að spá í "vængefnum" pixlum.. :lol:


Haha, átti vissulega að vera vangefnum. En alltilagi, ég hélt að þetta væri kannski svipað og með örgjörvana. Þeir mega ekki reikna vitlaust eftir yfirklukkun, því þá er ekki mælt með því að vera með þá í einhverju eins og t.d. Prime reikningi.

Re: Folding@home

Sent: Lau 10. Apr 2010 16:06
af chaplin
Þeir mega það alveg, en þá crashar þeir líka og þarft því að breyta stillingunum.. ;)