Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Allt utan efnis
Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf Henjo » Mið 15. Jan 2025 10:32

Hrotti skrifaði:
Henjo skrifaði:
Hrotti skrifaði:
Ég var ekki að tala um öryggi. Snýst um betra grip, betri bremsur, gripmeiri dekk og endalaus hjálparkerfi.

Hvað er það annað en öryggi? Eru bílar ekki með gripmeiri dekk, betri bremsur og fleiri hjálparkerfi til að gera þá öruggari? Eða er þetta bara til að vera fljótari í eitthverjum kappakstursleik.

Það er til að vera fljótari í kappaskstursleik.

Þú getur rausað þangað til þú verður blár í framan, það verður samt aldrei rétt hjá þér að ný alvöru græja og gamalt drasl séu á sama plani þegar báðir eru á sama hraða.

Og þú getur reynt að sannfæra sjálfan þig um að þessi glæfraakstur, þar sem þú ert keyra eins og fáviti og leggja annað fólk í hættu er í lagi vegna þessa að bílar í dag eru svo rosalega góðir.

Þú getur keyrt hratt eða þú getur keyrt öruggara. Þú getur ekki gert bæði. Þú talar um allskonar vitleysu eins og bílar í dag eru með betri bremsur eða dekk.

Allir bílar í dag eru með betri dekk, það er enginn að panta dekk frá 2002 með tímavél.

Ég keyrði í mörg ár á bíll frá níunda áratuginum og hann átti í engum vandræðum að kicka in ABS'inu á 60-70km/h á þurru malbiki. Og í raun fannst mér bremskurnar í þeim bíll virka oft betur en á mörgum nýlegum bílum sem ég keyrði.

Hvað kemur í ljós þegar ég googla hlutina? 1985 E-class er einungis með 10% lengri bremsulengd en 2025 E-class. Og 1985 bíllinn var mældur á þeim tíma á 1985 dekkjum. Vá, þvílíkt progress, ég get bara farið og gefið allt í og sagt lögguna að fokka sér því bíllinn er svo rosa öruggur. Ég get bara sagt við lögguna að þessi bíll bremsar 10% hraðar og hann er bara á allt öðru plani.

Sama hvaða bíl þú ert með, að bremsa frá t.d. 130km/h mun alltaf taka helmingi lengri tíma en að bremsa frá 100km/h (það er metrar sem tekur þig til að stoppa)

Og það eru enginn 20 ára gömull hræ á Íslandi sem ekki geta bremsað, bílar á íslandi fara í skoðun árlega. Nema þú sért alltaf á svo nýjum bíll að þú upplifir það aldrei.

Þú getur runsað þangað til þú verður blár í framan, en þú hefur rangt fyrir þér. Bílar í dag eru svo sannarlega öruggari en gamlir bílar, en þessi hugmynd að þeir eru death proof og við getum keyrt eins og bjánar er bara alvitlaus.

Síðan tala ég ekki um að helmingurinn af þessu nýlegum bílum sem þú talar um eru allir á hálfónýttir hjólbörðum. Enda virka það alltaf þannig í umferðinni að liðið á þessum nýjum bílum keyra eins og bjánar, gefa allt í, bremsa eins og þeir eru í kappakstri (er það kannski þú?) og velta fyrir sér afhverju dekkin eru ónýtt eftir 20þús km.

Googlaði hvað þessar Teslur eru að bremsa, tekur uþb 40 metra að stoppa frá 100km/h. Vá, geggjað. Meðan gamla hræjið mitt var að taka þetta á 35 metrum fyrir 40 árum.
Síðast breytt af Henjo á Mið 15. Jan 2025 10:40, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf Hrotti » Mið 15. Jan 2025 13:31

Ég veit að það er þvæla að svara þessu íslandsmeti í rökvillum (nema þetta sé kaldhæðni hjá þér) en þessi strámannaher fór í taugarnar á mér.

Henjo skrifaði:
Og þú getur reynt að sannfæra sjálfan þig um að þessi glæfraakstur, þar sem þú ert keyra eins og fáviti og leggja annað fólk í hættu er í lagi vegna þessa að bílar í dag eru svo rosalega góðir.

Ég talaði ekkert um að keyra eins og fáviti, þú komst með það inn í umræðuna.

Henjo skrifaði:Þú getur keyrt hratt eða þú getur keyrt öruggara. Þú getur ekki gert bæði. Þú talar um allskonar vitleysu eins og bílar í dag eru með betri bremsur eða dekk.

Eru s.s bílar í dag ekki með betri bremsur eða dekk?

Henjo skrifaði:Allir bílar í dag eru með betri dekk, það er enginn að panta dekk frá 2002 með tímavél.

Hárrétt þrátt fyrir að þú hafir verið að kalla það "allskonar vitleysu" hérna rétt fyrir ofan. Hitt er svo annað að nýjir bílar eru almennt með breiðari dekk en þeir eldri þó að nýtt gúmmí sé oftast eins. (reyndar kaupa menn sjaldnast frábær/dýr dekk undir gamla bíla en látum það liggja á milli hlluta)

Henjo skrifaði:Ég keyrði í mörg ár á bíll frá níunda áratuginum og hann átti í engum vandræðum að kicka in ABS'inu á 60-70km/h á þurru malbiki. Og í raun fannst mér bremskurnar í þeim bíll virka oft betur en á mörgum nýlegum bílum sem ég keyrði.

Ég efast ekkert um að þú finnir gamla bíla sem virka ágætlega miðað við einhverja bíla í dag en það er svo sannarlega ekki reglan.

Henjo skrifaði:Hvað kemur í ljós þegar ég googla hlutina? 1985 E-class er einungis með 10% lengri bremsulengd en 2025 E-class. Og 1985 bíllinn var mældur á þeim tíma á 1985 dekkjum. Vá, þvílíkt progress, ég get bara farið og gefið allt í og sagt lögguna að fokka sér því bíllinn er svo rosa öruggur. Ég get bara sagt við lögguna að þessi bíll bremsar 10% hraðar og hann er bara á allt öðru plani.

Hvað þú ætlar að segja við lögguna í einhverjum aðstæðum sem eru bara til í hausnum á þér verður bara að vera þitt mál, enda enginn annar hérna að ræða hvað maður eigi að segja við lögguna.

Henjo skrifaði:Sama hvaða bíl þú ert með, að bremsa frá t.d. 130km/h mun alltaf taka helmingi lengri tíma en að bremsa frá 100km/h (það er metrar sem tekur þig til að stoppa)

Það er nærri lagi hjá þér en 2025 módel af 911 er ekki helmingi lengur að stoppa frá 130kmh heldur en 2002 model af yaris er að stoppa frá 100kmh

Henjo skrifaði:Og það eru enginn 20 ára gömull hræ á Íslandi sem ekki geta bremsað, bílar á íslandi fara í skoðun árlega. Nema þú sért alltaf á svo nýjum bíll að þú upplifir það aldrei.

Það en enginn að segja að þeir séu ekki með bremsur en þær eru miklu lélegri. Ég seldi síðasta "fornbílinn" minn fyrir 3-4 árum sem var 94' módel og þetta ekkert svipað og bílar í dag.

Henjo skrifaði:Þú getur runsað þangað til þú verður blár í framan, en þú hefur rangt fyrir þér. Bílar í dag eru svo sannarlega öruggari en gamlir bílar, en þessi hugmynd að þeir eru death proof og við getum keyrt eins og bjánar er bara alvitlaus.

Aftur, enginn að tala um að keyra eins og bjáni á deathproof bíl nema þú.

Henjo skrifaði:Síðan tala ég ekki um að helmingurinn af þessu nýlegum bílum sem þú talar um eru allir á hálfónýttir hjólbörðum. Enda virka það alltaf þannig í umferðinni að liðið á þessum nýjum bílum keyra eins og bjánar, gefa allt í, bremsa eins og þeir eru í kappakstri (er það kannski þú?) og velta fyrir sér afhverju dekkin eru ónýtt eftir 20þús km.

"Allir sem eru á nýjum bílum haga sér eins" er eiginlega orðið of langsótt og heimskt til að svara, nema að því leiti að ég er sjálfur alltaf á góðum dekkjum, svona fyrst þú spurðir sérstaklega um það.

Henjo skrifaði:Googlaði hvað þessar Teslur eru að bremsa, tekur uþb 40 metra að stoppa frá 100km/h. Vá, geggjað. Meðan gamla hræjið mitt var að taka þetta á 35 metrum fyrir 40 árum.

Ég veit ekki hvort ég á að óska þér til hamingju með að nota loksins sinnhvern bílinn í samanburðinum eða hvað 85' módelið sem þú áttir hefur verið helvíti góður. þú færð svo reyndar Teslur sem stoppa á 32m en það skiptir ekki öllu.

Kannski þarftu bara að finna ennþá fleiri hluti/aðstæður sem enginn er að tala um nema þú og lesa mér svo pistilinn?

Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf Henjo » Mið 15. Jan 2025 14:29

Hrotti skrifaði:

Það er þú sem ert að tala um að vera fljótari í kappakstursleik, talandi að betra grip, betri bremsur og gripmeiri dekk sé ekki að snúast um öryggi.

Þekki sjálfur löggu sem ég hef oft margtalað um svona mál, og hann segir að annar hver maður er með svona afsökun "já sorry maður, maður finnur sko ekkert fyrir hraðanum í þessu sko" og alltaf eitthverja svona heimskulega þvælu hvað bíllinn þeirra er merkilegur eins og það eigi að afsaka hraðakstur.

2025 911 er 31 meter að stoppa frá 100kmh, þannig jú. Myndi halda að Yaris væri líklega fljótari að stoppa frá 130kmh í metrum.

Bílar á síðustu 20 árum eru bara með mjög sviapað ef ekki sömu bremsueiginleika.

Að fara blanda eitthverjum ofursportbíl í dæmið er auðvitað bara hrein heimska.

Sounda eins og þú kunnir ekki að viðhalda fornbílnum þínum. Bíll frá 94" á alveg að bremsa almennilega.

Þú átt að geta keypt teslu sem bremsar svona vel, en t.d. Plaid bílarnir með sínar ofurbremsur hafa verið ítrekað til vandræða. Margir bílanir virðast vera mælast með helmunarvegalend 45 metra plús. Kannski það er ástæðan afhvejru það eru líklegasti nýji bíll til að drepa fólk þrátt fyrir að vera með alla þessa nýju fídusa og öryggisbúnað.

Og já, breiðari dekk þýða ekki endilega að bíllinn sé öruggari. Aftur, veist ekki hvað þú ert að tala um. Auki er fullt af fólki á nýlegum bílum sem kaupa kínverst rusl undir bílana sína, enda oft dýr dekk vegna fáranlegara stærðar. Meðan er 20 ára gamli Yarisin á glænýjum michelin dekkjum.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf rapport » Mið 15. Jan 2025 18:13

svanur08 skrifaði:Rapport, þannig það er ekki fljót lausn á vandanum hér, vextir á íbúðarlánum er það sem þarf að laga fyrst. Vandamálið er hér og nú, ekki eftir nokkur ár.

Hvernig geta vextir verið aðal vandamálið þegar húsnæðisverð hefur hækkað margfalt á við aðra verðlagsþróun?

Rót vandans er of lítil samkeppni á byggingamarkaði vegna skorts á lóðum og hversu lítil verkefnin eru.

Okkur vantar nýtt Breiðholt og helst á 5-10 ára fresti... en borgin er ekki með nein plön.

Reykjanesbær er að blómstra, vex tvöfalt hraðar en landsmeðaltal.

Að involvera þá traffík ekki í Borgarlínuverkefnið er galin skammsýni.

slapi
Gúrú
Póstar: 586
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 72
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf slapi » Mið 15. Jan 2025 18:23

Shit hvað þetta er leiðinlegur þráður

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf Hrotti » Mið 15. Jan 2025 19:18

rapport skrifaði:
svanur08 skrifaði:Rapport, þannig það er ekki fljót lausn á vandanum hér, vextir á íbúðarlánum er það sem þarf að laga fyrst. Vandamálið er hér og nú, ekki eftir nokkur ár.

Hvernig geta vextir verið aðal vandamálið þegar húsnæðisverð hefur hækkað margfalt á við aðra verðlagsþróun?

Rót vandans er of lítil samkeppni á byggingamarkaði vegna skorts á lóðum og hversu lítil verkefnin eru.

Okkur vantar nýtt Breiðholt og helst á 5-10 ára fresti... en borgin er ekki með nein plön.

Reykjanesbær er að blómstra, vex tvöfalt hraðar en landsmeðaltal.

Að involvera þá traffík ekki í Borgarlínuverkefnið er galin skammsýni.

Reykjanesbær er líklega því miður að hægja verulega á sér, útaf lóðaskorti/lóðaverði. Bæjaryfirvöld hérna hafa verði algerlega með buxurnar á hælunum varðandi lóðir, það hefur bara bjargað okkur síðustu ár að Árni sigfússon lét útbúa stórt hverfi, malbikað og klart fyrir hrun og þar hefur uppbyggingin verið hröð og gengið vel. Núverandi bæjaryfirvöld hafa nánast ekkert gert og það litla sem þó hefur gerst hefur verið tómt klúður. Illa hönnuð hverfi með íbúðastærðum sem enginn var að biðja um. Nýjasta útspilið er svo að hækka gatnagerðargjöld nógu mikið til að þeir sem fengu úthlutað eru að skila lóðunum í hrönnum. Auðvitað mun einhver byggja þarna en það verða ekki reynslumikil fyrirtæki sem geta reiknað kosnaðinn til enda.

Þetta var kannski óþarfa rant og stutta útgáfan er: sammála um að lóðaskortur fokkar íbúðaverði svakalega.

Verðlöggur alltaf velkomnar.

B0b4F3tt
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 326
Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
Reputation: 66
Staða: Tengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf B0b4F3tt » Fim 16. Jan 2025 08:09

Ertu þá að tala um Innri-Njarðvík sem þetta hverfi sem Árni lét útbúa?
Og nú veit ég ekki betur til en að Bygg, sem eru með stærri byggingarverktökum á landinu, séu að byggja Hlíðarhverfið. Þetta hverfi mun innihalda um 500 íbúðir þegar því lýkur. Og Reykjanesbær heldur áfram að stækka í áttina að Vogum.
Er ekki bara vandamálið á landsvísu að íbúum hefur fjölgað mun hraðar en menn áttu von á. Þar spila stórt hlutverk aðfluttir útlendingar sem koma hingað í leit að vinnu.
Samkvæmt þessarri grein hefur íbúum Reykjanesbæjar fjölgað um 60% á síðastliðnum 10 árum. https://www.vf.is/adsent/sameining-svei ... urnesjum-1
Held að það sé frekar erfitt að skipuleggja sig í kringum það eða gera ráð fyrir svona mikilli fólksfjölgun.

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Píp, píp, píp... fyrirhyggjustefna í akstri

Pósturaf Hrotti » Fim 16. Jan 2025 12:12

B0b4F3tt skrifaði:
Hrotti skrifaði:
rapport skrifaði:
svanur08 skrifaði:Rapport, þannig það er ekki fljót lausn á vandanum hér, vextir á íbúðarlánum er það sem þarf að laga fyrst. Vandamálið er hér og nú, ekki eftir nokkur ár.

Hvernig geta vextir verið aðal vandamálið þegar húsnæðisverð hefur hækkað margfalt á við aðra verðlagsþróun?

Rót vandans er of lítil samkeppni á byggingamarkaði vegna skorts á lóðum og hversu lítil verkefnin eru.

Okkur vantar nýtt Breiðholt og helst á 5-10 ára fresti... en borgin er ekki með nein plön.

Reykjanesbær er að blómstra, vex tvöfalt hraðar en landsmeðaltal.

Að involvera þá traffík ekki í Borgarlínuverkefnið er galin skammsýni.

Reykjanesbær er líklega því miður að hægja verulega á sér, útaf lóðaskorti/lóðaverði. Bæjaryfirvöld hérna hafa verði algerlega með buxurnar á hælunum varðandi lóðir, það hefur bara bjargað okkur síðustu ár að Árni sigfússon lét útbúa stórt hverfi, malbikað og klart fyrir hrun og þar hefur uppbyggingin verið hröð og gengið vel. Núverandi bæjaryfirvöld hafa nánast ekkert gert og það litla sem þó hefur gerst hefur verið tómt klúður. Illa hönnuð hverfi með íbúðastærðum sem enginn var að biðja um. Nýjasta útspilið er svo að hækka gatnagerðargjöld nógu mikið til að þeir sem fengu úthlutað eru að skila lóðunum í hrönnum. Auðvitað mun einhver byggja þarna en það verða ekki reynslumikil fyrirtæki sem geta reiknað kosnaðinn til enda.

Þetta var kannski óþarfa rant og stutta útgáfan er: sammála um að lóðaskortur fokkar íbúðaverði svakalega.

Ertu þá að tala um Innri-Njarðvík sem þetta hverfi sem Árni lét útbúa?
Og nú veit ég ekki betur til en að Bygg, sem eru með stærri byggingarverktökum á landinu, séu að byggja Hlíðarhverfið. Þetta hverfi mun innihalda um 500 íbúðir þegar því lýkur. Og Reykjanesbær heldur áfram að stækka í áttina að Vogum.
Er ekki bara vandamálið á landsvísu að íbúum hefur fjölgað mun hraðar en menn áttu von á. Þar spila stórt hlutverk aðfluttir útlendingar sem koma hingað í leit að vinnu.
Samkvæmt þessarri grein hefur íbúum Reykjanesbæjar fjölgað um 60% á síðastliðnum 10 árum. https://www.vf.is/adsent/sameining-svei ... urnesjum-1
Held að það sé frekar erfitt að skipuleggja sig í kringum það eða gera ráð fyrir svona mikilli fólksfjölgun.

Það er rétt en Bygg standa sjálfir að því hverfi og ekkert nema gott um það að segja. Reykjanesbær stækkar ekkert meira að vogum en hverfið sem er nýbúið að úthluta, amk miðað við aðalskipulag til 2035. Það hverfi var meira að segja til vandræða útaf einhverjum landeigandamálum. Það verður eitthvað byggt á Ásbrú á næstu árum en þar eru líka einkaaðilar að útbúa hverfin. Það sama á við háhýsabyggðina fyrir neðan Hafnargötu.

Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér og væri þvílíkt til í að Bæjarfélagið tæki sig saman í andlitinu, en er ekkert of bjartsýnn.

Edit: Það koma nokkrar einbýlishúsalóðir í viðbót í miðri Innri-Njarðvík, Ég var búinn að gleyma því.
Síðast breytt af Hrotti á Fim 16. Jan 2025 12:13, breytt samtals 1 sinni.

Verðlöggur alltaf velkomnar.