forumgater skrifaði:Til að hafa nú eitthvað gagn af þessum þræði en ekki bara gaman þá þætti mér gaman að heyra frá þeim sem hafa þekkingu til að tjá sig um það.
Miðað við það að Bjarg ætli sér að þekja þakið með sólarsellum. Hvað er raunhæft fyrir þá að koma mörgum sellum fyrir?
Þú getur sent línu á þennan, hann mun örugglega segja þér allt sem þú vilt heyra og örugglega engin menntun eða reynsla í faginu að þvælast fyrir.
https://www.dv.is/eyjan/2023/10/30/rafh ... rimborgar/En bara til að koma með smá MJÖG gróft uppkast hvernig maður gæti séð þessa grænu rafvæðingu fyrir sér og fyrir þá sem hafa áhuga á hvernig hlutirnir virka nokkurn veginn..
Þá er smá vesen með blessaða landið okkar. Þótt það sé gjöfult af orku, þá eru hér Íslenskar aðstæður.
1MW(mega-Watt) framleiðslugeta ætti að getað séð fyrir 3500-4000 rafmagnsbílum sem keyra uþb 15þkm á ári við bestu aðstæður. En við Íslenskar aðstæður gæti kuldinn keyrt þessa tölu niður í kannski 2500. Minni skilvirkni í núverandi rafhlöðutækni og hitun.
Síðan flækjast hlutirnir þegar það á að rafvæða vörubílaflotann. 1stk vörubíll með þungan farm sem ekur uþb 300km sex daga vikunnar gæti þurft 0.2MW framleiðslu á ársgrundvelli ! Það er eins og mjög mörg heimili. 1MW dugar skammt.
Kannski 0.3MW á veturnar ?
Að rafbílavæða Ísland. Þá fólksbíla, vörubíla og rútur... =~ 8,760 GWh
En þá er ekki upptalið þungavinnuvélar ,flug og sjóflutningar !!
Og til að setja hlutina í samhengi árið 2018 nam heildar framleiðslan á klakanum 19.830 GWh
Það eru komnir einhverjir rafbílar á götuna, en þeir eru bara brota brot af því sem koma skal. Og við erum nú þegar í raforkuskorti, þó það sé eitthvað ráðrúm til að láta bílana hlaða á óreglulegum tímum.
Hérna hefði verið gott ef sólarsellurnar kæmu sterkar inn.
En þær eru gott sem gagnslausar á veturnar þegar nýtnin er sem lægst á rafbílaflotanum.
Þær eru frábærar í að lýsa nokkrar ljósaperur, sjónvarp og minniháttar kyndingu. En fyrrgreindir hlutir eru bara svo smávaxnir í orkunotkun samanborið við rafbíla, hvað þá einhver heavy duty tæki.
Ef einhverjum þykir flókið að rýna þennan texta, hvernig ætli það sé fyrir snillingana okkar á alþingi að setja saman einhverja raunhæfa lausn í þessum málum ? Ég held að þeir hafi ekki minnstu hugmynd um hvað bíður þegar jarðefnaeldsneyti verður fasað út..
Svo þetta bull sem ég byrjaði þráðinn með að vitna í er svo gjörsamlega útí hött miðað við umfangið á því sem bíður okkar, ef það á að gera eitthvað raunhæft í þessum málum. Og bara verið að draga fólk á asnaeyrunum með að gefa þeim falska vonarglætu.
Það eru metnaðarfull virkjannaáform í gangi, sem eru meira að segja RAUNHÆF en þeim lýkur alls ekki á næstu árum.. "RÚV" hefur minni áhuga á þannig leiðinlegum hlutum sem minna fólk á raunveruleikann og eru uppteknir við að glamúræsa eitthvað bull í bröskurum og vinsta öfgafólki.