Síða 3 af 4

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 09:30
af Jón Ragnar
worghal skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:skal engum koma á óvart.

meðann menn læra það ekki að láta íslenskt efni vera og sleppa því að deila því á þessum síðum.

af hverju langar fólki að horfa á íslenskt sjónvarpsefni yfir höfuð?
íslenskt sjónvarpsefni er svo ógeðslega leiðinlegt, illa gert og illa skrifað.



Hvar ert þú búinn að vera?

langflest nýtt íslenskt efni í dag er gríðarlega gott.

Hraunið er t.d alveg dúndurstöff imo

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 09:45
af HalistaX
worghal skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:skal engum koma á óvart.

meðann menn læra það ekki að láta íslenskt efni vera og sleppa því að deila því á þessum síðum.

af hverju langar fólki að horfa á íslenskt sjónvarpsefni yfir höfuð?
íslenskt sjónvarpsefni er svo ógeðslega leiðinlegt, illa gert og illa skrifað.

Svo satt.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 09:56
af AntiTrust
Ég meika ekki innlent sjónvarpsefni. HBO og Co er algjörlega búið að skemma það fyrir mér, ég fæ orðið bara kjánahroll við að horfa á íslenskt efni.

Ég þyrfti amk. ekki að hugsa mig lengi um ef ég þyrfti að velja á millI VOD's og erlendrar SVOD þjónust.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:02
af playman
rapport skrifaði:p.s.

Hvaða listi er þetta...

http://unblocksit.es/country/Iceland/

Ég hló og hló þegar ég sá að leikjanet væri blokkað á Íslandi...

Þetta er nú meira kjaftæðið, siminn.is/ruv.is/mbl.is/google.is er á þessum lista meðal annars, væri gaman
að vita hvar þeir fá þessar upplýsingar.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:07
af Stutturdreki
Íslenskt efni hefur nú skánað svakalega síðustu árinn. Og það er akkurat vandamálið að það hefur verið í deilingu og íslenskir framleiðendur hafa farið í fílu.

En lausnin þeirra er bara ömurleg og dauðadæmd frá upphafi, allur þeirra hugsunarháttur miðast við ferlið: bíó/sjónvarp -> dvd sala -> útsölumarkaðir. Það þurfa að koma til einhver kynslóða skipti þarna svo þeir fari að fatta að það er miklu gróðvænlega fyrir þá að henda þessu sjálfir á netið, eftir að það er búið að frumsýna í bíó/sjónvarpi, og selja aðgang að efninu þar heldur en að gefa út dvd diska.

Nú kostar td. fangavaktin kr. 2995 hjá Elko, hvað ætli stór hluti þeirrar upphæðar skili sér í vasa framleiðanda/útgefanda? Væri ekki nær að selja þetta á 500kall á netinu/streimi og fá 70-100% hagnað? Útgáfukostnaðurinn er nánast enginn, upplagið endalaust og svo væri hægt að henda á þetta enskum texta og markaðurinn margfaldast.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:11
af AntiTrust
Stutturdreki skrifaði:Nú kostar td. fangavaktin kr. 2995 hjá Elko, hvað ætli stór hluti þeirrar upphæðar skili sér í vasa framleiðanda/útgefanda? Væri ekki nær að selja þetta á 500kall á netinu/streimi og fá 70-100% hagnað? Útgáfukostnaðurinn er nánast enginn, upplagið endalaust og svo væri hægt að henda á þetta enskum texta og markaðurinn margfaldast.


Dagurinn sem stúdíóin fatta að þetta er eina viable leiðin í boði, er dagurinn sem ólöglegt niðurhal droppar um tugprósentur.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:12
af hfwf
Stutturdreki skrifaði:Íslenskt efni hefur nú skánað svakalega síðustu árinn. Og það er akkurat vandamálið að það hefur verið í deilingu og íslenskir framleiðendur hafa farið í fílu.

En lausnin þeirra er bara ömurleg og dauðadæmd frá upphafi, allur þeirra hugsunarháttur miðast við ferlið: bíó/sjónvarp -> dvd sala -> útsölumarkaðir. Það þurfa að koma til einhver kynslóða skipti þarna svo þeir fari að fatta að það er miklu gróðvænlega fyrir þá að henda þessu sjálfir á netið, eftir að það er búið að frumsýna í bíó/sjónvarpi, og selja aðgang að efninu þar heldur en að gefa út dvd diska.

Nú kostar td. fangavaktin kr. 2995 hjá Elko, hvað ætli stór hluti þeirrar upphæðar skili sér í vasa framleiðanda/útgefanda? Væri ekki nær að selja þetta á 500kall á netinu/streimi og fá 70-100% hagnað? Útgáfukostnaðurinn er nánast enginn, upplagið endalaust og svo væri hægt að henda á þetta enskum texta og markaðurinn margfaldast.


Þeir eru jafnvel hættir að setja myndir í blu-ray/dvd framleiðslu, XL sem kom út jan 2013 í bío er ennþá ekki kominn út í því formi. Til að nefna dæmi.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:15
af Stutturdreki
Já, þeir eru oft að 'bíða' eftir rétta tímanum, jólaútgáfu eða eitthvað. Eins og hérna um árið þegar Balti var að kvarta yfir að allir væru að stela myndinni hans, þá var hvergi hægt að kaupa hana. Markaðssnillingarnir hans voru beinlínis að missa af tímabilinu þegar fólki langaði virkilega að horfa á myndina.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:52
af GuðjónR

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 11:03
af Moldvarpan
Megnið af þessu íslenska efni er hreint út sagt ömurlegt. Það eru þó undantekningar á því.

Ég hef sótt einstaka íslenskt efni á torrent síðum forvitninar vegna, en það er ekki hægt að tala um það sem "tapaða sölu" því ég hefði aldrei keypt þetta efni á annaðborð.

En muniði eins og þegar Mugison gaf út sinn fyrsta geisladisk að mig minnir, þá setti hann bara upp vefsíðu sem hægt var að downloada disknum hans á eitthverjar 700kr.
Ég hikaði ekki við að kaupa þann disk(gögn), rétt eins og margir aðrir.

Þetta er að mínu viti frammtíðin, gefa fólki kost á því að nálgast efnið rafrænt á hagstæðu verði. Og þar með er nátturulega verið að skera út þennan millilið sem er að kafna úr græðgi.

Fyrirbæri eins og STEF, eru risaeðlur sem eru að deyja út. Það er staðreynd.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 12:18
af playman

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 12:50
af Skippó
playman skrifaði:hehe, þetta var fyrirsjáanlegt
http://www.ruv.is/frett/deildunet-flutt ... s=og.likes


Hvernig ætli að þeir hafi komist að þessu? :guy

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 15:18
af tlord
Afhverju var STEFdrotttingin ekki spurð hvort lausnin væri ekki, að bjóða löglegt og þægilegt aðgengi á sanngjörnu verði?

IMO er eina lausnin að fá Netflix til landsins og selja þeim rétt til að vera með efnið

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 17:35
af aron31872
ég held að það sé ekkert mál að komast fram hjá þessu notar bara proxy ég meina netflix er bannað á isl enn fólk notar bara proxy

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 17:40
af tlord
aron31872 skrifaði:ég held að það sé ekkert mál að komast fram hjá þessu notar bara proxy ég meina netflix er bannað á isl enn fólk notar bara proxy



Netflix er EKKI bannað á Íslandi - erlendir aðilar gera bara ekki ráð fyrir að það sé notað þar..

ps: allavega ekki bannað með lögum, kona úti í bæ getur auðvitað reynt að banna þér að nota Netflix, en þarftu að hlýða henni?

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 17:51
af aron31872
tlord skrifaði:
aron31872 skrifaði:ég held að það sé ekkert mál að komast fram hjá þessu notar bara proxy ég meina netflix er bannað á isl enn fólk notar bara proxy



Netflix er EKKI bannað á Íslandi - erlendir aðilar gera bara ekki ráð fyrir að það sé notað þar..

ps: allavega ekki bannað með lögum, kona úti í bæ getur auðvitað reynt að banna þér að nota Netflix, en þarftu að hlýða henni?

hehe sorry :D

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 18:56
af stefhauk
Þetta er dauðadæmt frá fæðingu hjá þeim.

Algjörlega ömögulegt að ætlast til að geta lokað á þetta. Þetta lið þarf að fara taka hausinn úr rassgatinu á sér til að sjá að þetta er ekki leiðin.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 19:05
af dori
Ég er hræddastur við að þegar þeir fatta hversu auðvelt er að færa þetta á milli verði sett krafa um eitthvað blanket-leyfi fyrir einhvern embættismann þar sem hann getur af sjálfstáðum lokað á hinar og þessar vefsíður. Ef slíkt kerfi kemst í gang er nefnilega alveg gefið að það muni verða misnotað og fullt af mistökum gerð í tengslum við það.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 20:16
af sweeneythebarber
bara ef að stef myndi eyða allri þessari orku og peningum í að ná netflix og HBO til Íslands. (i would be so happy)
https://www.youtube.com/watch?v=z_17RHGKNTY

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Mið 15. Okt 2014 20:28
af jericho
Ég grenjaði úr hlátri....

Mynd

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Fim 16. Okt 2014 01:15
af Viktor
jericho skrifaði:Ég grenjaði úr hlátri....

[ Mynd ]


hahahaha... funny because it's true

Mynd

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Fim 16. Okt 2014 21:16
af Stufsi

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Fös 17. Okt 2014 08:35
af Stutturdreki
Miðað við nýlegar fréttir af viðræðum um að hleypa loksins Netflix & co til landsins þá er mig farið að gruna að þetta sé planið:

1. Gera smá mál og vekja athygli með því að fara fram á þessar lokanir.
2. Opna fyrir subscription streymi þjónustu
3. Download minnkar stórlega vegna opnunar á streymiþjónustunni
4. Hrósa sigri og halda því fram að aðgerðir STEF og Smáís hafi borið svo svakalega mikinn árangur.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Fös 17. Okt 2014 09:41
af Darknight
Ég þekki ekki einn sem er í lögreglu, dómsvaldi eða ríkistjórn sem notar ekki eða hefur notað torrent. Ertu að segja mér að þetta fólk noti ekki torrent sjálft? Eða eigi börn, frændur frænkur sem noti það? Ekki fræðilegur, þeir sem nota ekki torrent á Íslandi eru í minnihluta.

Ef þetta mundi ganga of langt mundi fólkið byrja kjósa á móti þeim. Það hefur einfaldlega ekki verið þjónusta í boði sem kemur í stað torrenta. Þessi skemmtiiðnaður hefur verið þvílíkt tregur að koma með hluti á borð við netflix sem snarlækkaði torrent notkun erlendis. Ef netflix bætir bara aðeins við content mun fólk endanlega hætta nota torrent og nota netflix. Nema við meganördar ofcourse.

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Sent: Fös 17. Okt 2014 12:22
af Bjosep
Menn láta eins og netflix sé himinn og haf í afþreyingarefni. Það eru til mun fleiri efnisveitur en Netflix og ein efnisveita mun aldrei koma í stað þess úrvals sem er á þessum torrentsíðum.

Darknight skrifaði:Ég þekki ekki einn sem er í lögreglu, dómsvaldi eða ríkistjórn sem notar ekki eða hefur notað torrent. Ertu að segja mér að þetta fólk noti ekki torrent sjálft? Eða eigi börn, frændur frænkur sem noti það? Ekki fræðilegur, þeir sem nota ekki torrent á Íslandi eru í minnihluta.


Óháð því hversu marga þú þekkir eða þekkir ekki í ríkisstjórninni þá nota ekkert allir torrent.