GullMoli skrifaði:Ég hef nú ekki fylgst nægilega vel með þessu, en mér skilst að Sólveig hafi komið einstaklega illa fram við starfsfólkið á skrifstofunni og mér finnst eins og það sé endlaust horft framhjá því þar sem að hún hefur náð ýmsu fram í kjaramálum. Svo er hún endurkjörin í óþökk starfsfólksins, hún ósátt með starfsólkið (vegna þess að það klagaði í fjölmiðla?) og segir öllum upp?!? Er ég að misskilja? Í mínum eyrum hljómar þetta eins og algjör steypa og er gáttaður á framkomu hennar.
Ég væri fluttur í annað stéttarfélag ef ég væri þar. Þar að auki hefði ég núll áhuga á því að starfa undir einstaklingi sem kemur svona fram við starfsfólkið sitt.
Viltu þá ekki fylgjast betur með og lesa þér betur til svo þú öðlist betri skilning?
Það er orðið mjög skrítið hversu mikið fólk er að misstúlka og misskilja umræðuna og breytingarnar sem verið er að reyna knýja fram. Það er svo sem eðlilegt líka miðað við að fréttaflutningurinn í kringum þetta hefur alltaf verið einhliða og hlutdrægur. Það þarf að opna allar fréttir, jákvæðar og neikvæðar, lesa innihald og efni þeirra og pistlanna og leggja skilning í það sem verið er að segja. Stundum eru hlutir teknir úr samhengi og jafnvel umorðaðir án þess þó að upprunalegur texti sé hvergi nálægt því sem skýrt er svo frá í fréttunum á helstu miðlum.
Grundavallarmismunurinn á því sem þú ert að segja og því sem raunverulega í gangi er þetta:
hún hefur náð ýmsu fram í kjaramálum.
Það er rétt - og þessi árangur er ástæðan fyrir því hún fékk endurnýjað umboð frá
félagsmönnum.
Svo er hún endurkjörin í óþökk starfsfólksins,
Starfsfólkið vinnur fyrir félagsmenn. Formaðurinn vinnur fyrir félagsmenn. Félagsmenn kjósa sér leiðtoga og stjórn sem honum fylgir sem hefur ákveðna hugmyndafræði og áætlanir. Hvort einhver er endurkjörin í óþökk einhvers á ekki að skipta félagsmenn neinu máli. Ef stjórnmálaflokkur vinnur yfirburðarkosningu á Alþingi og leiðir stjórnarmyndunarviðræður þá getur fólk á skrifstofunni og í stjórnarráðinu ekki bara farið í fýlu og neitað að vinna með flokknum því þeim líkar ekki að formaðurinn lagði til frumvarp um að stofnunin ætti að opinbera launakjör starfsmanna og koma þannig upp um spillingu þar sem dregið er til sín fé og til einkanota. Í þeim tilvikum er sett út á spilltu aðilana en ekki uppljóstrarann...
Þetta er ekki fyrirtæki og er mun stærra hugtak en "skrifstofa" eða bara "verkalýðsfélag." Efling og önnur verkalýðsfélög mynda eina heild annaðhvort saman í gegnum stærri félög eins og ASÍ, SGS ofl. eða semja ein fyrir sína félagsmenn um kjarasamninga.
Formaðurinn sem náði mjög góðum árangri í seinustu kjaraviðræðum fyrir
alla - ekki bara sína félagsmenn (Lífskjarasamningarnir. Ég er enn að njóta góðs af þeim og ég er í VR.) Það voru mörg rotin epli að vinna þarna á skrifstofunni. Ekki hafði verið kosið um nýjan formann síðan félagið varð til eftir sameiningu fyrir 18 árum (22 ár síðan í dag, sjá
https://www.efling.is/2018/03/solveig-anna-jonsdottir-verdur-naesti-formadur-eflingar-stettarfelags/). Hennar listi vann yfirburðakosningu árið 2018 og fór strax í að uppræta spillingu innan félagsins og mjög margir voru ósáttir við að það gæti ekki haldið áfram eins og áður var.
https://stundin.is/grein/11338/Svo eru allir greinilega búnir að gleyma mörgu sem átti sér stað sbr. hér að ofan vegna fjármálastjórans fyrrverandi
hún ósátt með starfsólkið (vegna þess að það klagaði í fjölmiðla?) og segir öllum upp?!? Er ég að misskilja?
Hún er augljóslega ósátt við að starfsfólkið sem á að vera vinna að betri kjörum fyrir sínum félagsmönnum (sínum vinnuveitendum - sem kusu sinn formann til að leiða baráttuna og stýra félaginu) kýs frekar að leka trúnaðargögnum í fjölmiðla og vinna gegn henni og vilja félagsmanna. Starfsfólkið vinnur gegn því að gerðar séu nauðsynlegar breytingar til að spara pening félagsmanna og sjóðum Eflinga í launa - og starfsmannakostnaði sem á ekki rétt á sér. Hún er ekki að segja neinum upp til að losna við fólkið. Verið er að segja fólki upp svo hægt sé að gera þessar breytingar. Hvort fólk vilji halda áfram að vinna sína vinnu skv. nýrri starfslýsingu (sem hefur ekki verið breytt s.l. 22 ár) er undir þeim komið. Það er brugðið fyrir hana fæti hvar sem hún fer og sést það í umræðunni allstaðar hvað allar leiðir eru nýttar til að koma óorði á hana og stjórnina og félagið því
þeir sem raunverulega stjórna samfélaginu vilja ekki að aðili eins og hún fái að leiða viðræður um launakjör láglaunafólks í komandi kjarasamningum Í mínum eyrum hljómar þetta eins og algjör steypa og er gáttaður á framkomu hennar.
Það er skrítið að fordæma framkomu hennar og félagsins miðað við allt sem það starfsfólk sem á að vera vinna fyrir hinn almenna félagsmann hefur gert til að koma í veg fyrir þessar breytingar.
Varðandi uppsagnirnar eru ástæður þeirra útskýrðar hér:
https://www.efling.is/2022/04/spurt-og- ... reytingar/Í grunninn snýst þetta um að uppræta núverandi launafyrirkomulag. Það þýðir ekki launalækkun.
Þetta snýst um að jafna launabilið á milli aðila og borga jöfn laun fyrir sömu störf, fyrir bæði kyn. Það þýðir ekki launalækkun.
Þetta snýst um að auka gagnsæi og launakjör séu ákveðin á málefnalegum grunni - ekki "allir fá fasta yfirvinnu, frían mat, ökutækjastyrk". Það þýðir ekki launalækkun.
Það er ólöglegt að gera einhliða breytingar á starfslýsingu og kjörum einstakra starfsmanna og neyða fólk til að skrifa undir eða missa vinnuna. Það væri ólöglegt uppsögn eða hópuppsögn.
Það er ekki ólöglegt að segja öllum þeim stöðugildum upp og auglýsa störfin með nýjum áherslum og hvetja fólk til að sækja um stöðuna aftur.