Re: Kosningakönnun 2016
Sent: Mið 05. Okt 2016 17:02
Hjaltiatla skrifaði:Eru 18 stk af þeim sem völdu X-D pabbastrákar úr Garðabænum eða hafa hagsmuna að gæta ( T.d vilja ekki bjóða kvótann á leigu á opnum markaði og hámarka verðmætið sem fengist með því móti í þágu þjóðarinnar) ?![]()
Bara að reyna að ná samhenginu hvað fær fólk til að halda að þessir aðilar séu að vinna fyrir þjóðina.
hfwf skrifaði:worghal skrifaði:8 komnir sem ætla að kjósa sjálfstæðisflokkinn.
Gleymir að telja þann sem ætlar að kjósa Víðreisn, eða Sjálfstæðisflokkurinn 2.0
rapport skrifaði:Það eru sko ekki 20% þjóðarinnar sem njóta góðs af kvótanum, þannig að ef 20% kjósa xD þá eru kannski MAX 10% (s.s. 10% af 20% = 2%) af þeim að gera það vegna kvótahagsmuna
HalistaX skrifaði:Ég kann að meta að þið svívirðið algjörlega skoðun náungans.
The real way! The only way! The Icelandic way!
Hjaltiatla skrifaði:rapport skrifaði:Það eru sko ekki 20% þjóðarinnar sem njóta góðs af kvótanum, þannig að ef 20% kjósa xD þá eru kannski MAX 10% (s.s. 10% af 20% = 2%) af þeim að gera það vegna kvótahagsmuna
Ok , finnst þetta bara frekar skrítið . Bjarni Ben "Fjármálaráðherra" og Ólöf Nordal bæði tengd við aflandsfélög og nöfn beggja voru í Panama skjölunum. Þetta er flokkur sem vill engar breytingar og virðist eingöngu berjast fyrir því að halda völdum ( ekki fyrir fólkinu í landinu). xD á auðvitað eftir að lofa öllu fögru eins og fyrir seinustu kosningar og svíkja það strax ( eins og með þjóðaratkvæðagreiðsluna í ESB).
Gullfiskurinn er greinilega mættur á svæðið miðað við þessa könnun (hélt nú að vaktarar létu ekki plata sig svona auðveldlega).
linenoise skrifaði:Ef við sleppum mannúðinni - því fólki virðist yfirleitt drullusama um annað fólk, meira að segja þegar það er að stórum hluta Vesturlöndum (þ.m.t. Íslandi) að kenna að það er í vandræðum - þá meikar samt mjög mikinn sens að opna landamæri okkar meira.
Ef stefna íslenskra stjórnvalda væri ekki að halda flóttamönnum afskekktum og atvinnulausum þá væri mjög mikill hagur fyrir efnahagslífið að fá fólk í störf. Hvort heldur sem er láglaunastörf, sem vantar alltaf fólk í, eða betur borguð störf. Mikið að flóttamönnum eru drullumenntaðir, oftar en ekki er það vegna þess að þeir eru menntaðir sem stjórnvöldum er illa við þá. Þetta er líka mjög dugandi fólk, því annars hefði það drepist á flóttanum.
Eins og flestar vestrænar þjóðir þá eigum við við ellivandamál að stríða. Okkur fjölgar ekki nógu hratt til að geta séð um gamla fólkið okkar. Eða svo það sé orðað öðruvísi, við erum með of litla fólkfjölgun til að viðhalda viðunandi hagvexti. Við ÞURFUM fólk, og hví þá ekki vel menntaða, dugandi flóttamenn? Vitið þið hvað kostar að búa til fullorðinn einstakling fyrir þjóðfélagið? Og við fáum bara ókeypis einstakling?
Allir GRÆÐA, jei. Grillum meira.
jonsig skrifaði:[ Má bara vinstra lið eiga aflandsfélög og lenda ekki í RÚV(kommúnísk áróðursskrifstofa) ?
jonsig skrifaði:"Ef það er í boði"
Hjaltiatla skrifaði: ( T.d vilja ekki bjóða kvótann á leigu á opnum markaði og hámarka verðmætið sem fengist með því móti í þágu þjóðarinnar) ?![]()
Bara að reyna að ná samhenginu hvað fær fólk til að halda að þessir aðilar séu að vinna fyrir þjóðina.
urban skrifaði:
Þetta kvótakerfi þarf að laga, það er alveg á hreinu, fyrst og fremst er það frjálst framlag á aflaheimildum sem að er að þessu kerfi, það er það sem að gerir fólki að verða virkilega ríkt.
Það er fyrst og fremst það sem að þarf að laga, en ef að parketið í stofunni hjá þér er ónýtt, þá er alveg óþarfi að kveikja í húsinu til þess að laga parketið.
svanur08 skrifaði:Sagði ekki BB það væri hægt að lifa á 750kr fyrir mat á dag. Einhver sem man eftir því?
vesley skrifaði:urban skrifaði:
Þetta kvótakerfi þarf að laga, það er alveg á hreinu, fyrst og fremst er það frjálst framlag á aflaheimildum sem að er að þessu kerfi, það er það sem að gerir fólki að verða virkilega ríkt.
Það er fyrst og fremst það sem að þarf að laga, en ef að parketið í stofunni hjá þér er ónýtt, þá er alveg óþarfi að kveikja í húsinu til þess að laga parketið.
Taka þarf einmitt fram að þetta er eini útvegurinn í Evrópu sem er ekki ríkisstyrktur.
Og nei ég þekki ekki neinn sem á kvóta og styð ekki núverandi kerfi, til að útiloka allan vafa og áður en einhver óskar þess að brenna mig á báli