Síða 85 af 97
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fim 14. Mar 2024 17:52
af Moldvarpan
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fim 14. Mar 2024 21:52
af jardel
Moldvarpan skrifaði:
hvar nálgast þú þessi kort?
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fim 14. Mar 2024 23:21
af jonfr1900
jardel skrifaði:Moldvarpan skrifaði:
hvar nálgast þú þessi kort?
Þetta er sett inn á
vedur.is.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 16:18
af jardel
Takk en nú fer maður að hætta að skoða þetta þar sem allir eru að spá um að umbrotum sé að ljúka.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 17:14
af Uncredible
jardel skrifaði:Takk en nú fer maður að hætta að skoða þetta þar sem allir eru að spá um að umbrotum sé að ljúka.
Þótt það sé að hægjast á þessu þá finnst mér hæpið að þessum atburði á Reykjanesi sé að ljúka í bráð. Spurning hvað taki við þegar landris hættir, gengur landrisið til baka?
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 18:18
af jonfr1900
jardel skrifaði:Takk en nú fer maður að hætta að skoða þetta þar sem allir eru að spá um að umbrotum sé að ljúka.
Þessu líkur eftir um 300 til 400 ár. Það munu koma tímabil þar sem minna er að gerast og það er fullkomlega það sem búast má við.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 19:21
af Henjo
jonfr1900 skrifaði:jardel skrifaði:Takk en nú fer maður að hætta að skoða þetta þar sem allir eru að spá um að umbrotum sé að ljúka.
Þessu líkur eftir um 300 til 400 ár. Það munu koma tímabil þar sem minna er að gerast og það er fullkomlega það sem búast má við.
Fólk virðist ekki skilja akkúrat þetta. Þetta eldfjalladæmi er ekki bara fara klárast eftir 1-2 ár og allir í grindavík geta farið og lifað hamingjusamir það sem eftir er. Síðasta eldfjallatímabil var einmitt í kringum 300-400 ár. Þetta er bara rétt að byrja. Ef horft er á hraun frá síðasta tímabili, og því sem var á undan. Þá lítur út fyrir að það sé bara tímaspurnsmál hvenar Grindavík, Bláa lónið og þessi virkjun fari undir hraun.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 19:52
af jardel
Var að lesa greinar eftir tvo ónafngreinda jarðfræðinga.
Þeir báðir standa fastir á því að þetta er búið og þetta fari allt að róast til hins betra.
Verður maður ekki að treysta jarðfræðingunum.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 20:16
af Uncredible
jardel skrifaði:Var að lesa greinar eftir tvo ónafngreinda jarðfræðinga.
Þeir báðir standa fastir á því að þetta er búið og þetta fari allt að róast til hins betra.
Verður maður ekki að treysta jarðfræðingunum.
Já þeir eru að tala um það sem er að gerast í Svartsengi, ekki allt Reykjanesið.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Fös 15. Mar 2024 21:29
af jonfr1900
jardel skrifaði:Var að lesa greinar eftir tvo ónafngreinda jarðfræðinga.
Þeir báðir standa fastir á því að þetta er búið og þetta fari allt að róast til hins betra.
Verður maður ekki að treysta jarðfræðingunum.
Þeir hafa ekki einu rétt fyrir sér með Svartsengi. Innflæðið sveiflast og uppsetning kvikuhólfa er líklega flókin og fleira en eitt hólf sem er þarna. Það er væntanlega kvikuhólf á um 20 km dýpi sem fæðir kvikuhólf sem er á um 5 km dýpi. Þetta fær síðan allt saman kviku af kvikuhólfi sem er líklega staðsett á um 200 km dýpi þarna undir og það virðist vera öflugt, þó svo að streymið upp sé ekki alltaf jafnt endilega.
Það munu koma róleg tímabil í Svartsengi og þannig hefur eldstöðin verið síðan þessi atburðarrás hófst í Janúar 2020 í Svartsengi.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 17:16
af jonfr1900
Mér sýnst að það sé farið að styttast í eldgos. Jarðskjálftavirknin í Fagradalsfjalli er einnig farinn að verða á minna dýpi. Byrjaði á 12 km dýpi og er núna kominn á um 7 km dýpi.
- 240316_1605.png (24.02 KiB) Skoðað 1870 sinnum
- 240316_1605_trace.png (17.72 KiB) Skoðað 1870 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 20:07
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Mér sýnst að það sé farið að styttast í eldgos. Jarðskjálftavirknin í Fagradalsfjalli er einnig farinn að verða á minna dýpi. Byrjaði á 12 km dýpi og er núna kominn á um 7 km dýpi.
240316_1605.png
240316_1605_trace.png
Ég var að horfa á þetta hér fyrir neðan
https://www.visir.is/g/20242543738d/seg ... gja-manadaEr engin möguleiki á því að þetta súlurit snúist við og kvikan fari að aukast miðað við þetta myndbrot eiga þessir sérfræðingar þá varla von á fleiri eldgosum?
Það sem er magnað er að þú Jón hefur alltaf haft yfirhöndina í spám umfram jarðfræðingama.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 20:17
af jonfr1900
jardel skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Mér sýnst að það sé farið að styttast í eldgos. Jarðskjálftavirknin í Fagradalsfjalli er einnig farinn að verða á minna dýpi. Byrjaði á 12 km dýpi og er núna kominn á um 7 km dýpi.
240316_1605.png
240316_1605_trace.png
Ég var að horfa á þetta hér fyrir neðan
https://www.visir.is/g/20242543738d/seg ... gja-manadaEr engin möguleiki á því að þetta súlurit snúist við og kvikan fari að aukast miðað við þetta myndbrot eiga þessir sérfræðingar þá varla von á fleiri eldgosum?
Það sem er magnað er að þú Jón hefur alltaf haft yfirhöndina í spám umfram jarðfræðingama.
Hvað gerist er eitthvað sem erfitt er að segja til um. Það sem skiptir máli er hvað gerist á um 200 til 500 km dýpi og það er ekki almennilega þekkt hvað gerist þar. Þar sem engar mælingar ná þar niður. Það væri kannski hægt að búa til líkan miðað við virkni til að áætla að sjá hvað gerist.
Ég reikna samt með því að næstu mánuðir verði mánuðir margra eldgosa, bæði lítilla og stórra. Það gætu jafnvel orðið mörg eldstöð í mörgum eldstöðvum á sama tíma. Það verður hinsvegar að koma í ljós hvort að það gerist.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 20:25
af appel
Eldgosið byrjað.
- Screenshot 2024-03-16 202520.png (320.42 KiB) Skoðað 1806 sinnum
byrjaði 20:23
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 20:30
af jonfr1900
Þetta eldgos varð án þess að það væri svo til nokkur jarðskjálftavirkni.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 20:37
af appel
Er þetta ekki bara á sama stað og síðast og svipaðri stærð? Spurning hvort hraun flæði ekki aftur að svartsengi einsog síðast?
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 21:01
af jonfr1900
Þessi gosspruna er orðin að lágmarki 3 til 5 km löng þegar þetta er skrifað.
Hérna er kort frá Veðurstofunni.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 22:18
af jonfr1900
Hérna er nýtt kort frá Veðurstofunni af gossprungunni.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 22:49
af jonfr1900
Grindavíkurvegur er að fara aftur undir hraun.
- Vísir.is - Grindavíkurvegur - svd 16.03.2024 at 2247utc.png (1.52 MiB) Skoðað 1591 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:01
af jonfr1900
Þessi þróun er ekki góð.
- mbl.is - Grindavík - svd 16.03.2024 at 2257utc.png (1.26 MiB) Skoðað 1589 sinnum
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:06
af appel
Vá hvað þetta æður hratt fram í átt að Grindavík, komið að varnargarðinum.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:21
af falcon1
Það er spurning hvort maður komist í sturtu á morgun...
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:26
af appel
Kröftugasta gosið á Reykjanesi síðustu ár
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... dustu_gos/Mér finnst einsog hraunmagnið þarna sé meira en hefur komið svona einsog ég sé það.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:32
af falcon1
Hraunstraumurinn er að nálgast Grindavíkurveg óhuggulega hratt.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Sent: Lau 16. Mar 2024 23:35
af falcon1
Allavega er það að dreifa mest úr sér á skömmum tíma, er búið að ná varnargörðunum í Grindavík og er að ná Grindavíkurveginum við Svartsengi.