Tbot skrifaði:rapport skrifaði:jonsig skrifaði:Ég er farinn að fatta af hverju fólk kýs að vera í góða liðinu. Fyrir utan að vera lausir við sjálfstæða hugsun.
Jú! Það er auðvelt að þykjast vita betur, það er minnsta mál að googla það sem ég sagði en við vitum að mikið af svona gögnum er haldið til hliðar í þágu fjölmenningar og bannað að kanna svona hluti nema fólk hafi félagslegar sjálfsvígshugsanir og vilja binda snökkt á starfsferilinn sem er oftar en ekki á vegum hins opinbera í þessum efnum eða á opinberum styrkjum. Flestir hafa áttað sig á að vestræn stjórnvöld eru meira minna rotin af pólitískri rétthugsun.
Ef ég mætti ráða þá óska ég ykkur pc liðum að búa í miðju hverfi með sharia lögum, en því miður bitnar þetta á okkur sem vilja ekki sjá þessa miðaldamenningu hingað.
Ef þú veist að það er verið að halda gögnum til hliðar, er þá verið að halda þeim til hliðar?
Í stað þess að vera blása gufi hingað inn, viltu ekki bara blammera okkur með þessu info og upplýsa okkur?
Engum ríkisstarfmanni er hægt að segja upp nema hann hafi brotið illa af sér í starfi, hreinlega framið glæp eða hann hefur ítrekað verið áminntur fyrir brot í starfi.
Þú talar um að vera rotinn af pólitískri rétthugsun, hvernig virkar það?
Fólk sem hefur það að leiðarljósi að virða lögbundin réttindi allra og mismuna fólki ekki ... hvernig er það rotið?
Þú ert hreinlega fúll á móti því að það er fólk þarna úti sem trúir ekki á það sama og þú, er öðruvísi en þú á litin, talar annað tungumál en þú og því langar að eiga heima á Íslandi.
Þetta fólk erum við, við Íslendingar erum svona. Þetta er fólkið sem mun erfa landið með börnunum okkar.
Nú er komið að þér að leggja þig fram og aðlagast þeirri staðreynd að þetta fólk er alveg jafn gagnlegtir þegnar samfélagsins og þú sjálfur, hefur sömu réttindi og þú og þér ber að virða þessi réttindi.
Ef það er erfitt fyrir þig, þá er um að gera að leita sér hjálpar og vera hluti af lausninni en ekki hluti af vandamálinu.
Ríkið segir upp fólki líka án nokkurs fyrirvara, þá er það eina sem hægt er að gera er að fara í mál, með tilheyrandi tíma og kostnaði.
Þú þvaðrar stöðugt um réttindi allra innflytjenda og " velferðar flóttamanna".
Þá skulum við nálgast þetta á annann hátt.
Allir þeir sem koma til landsins, innflytjendur og velferðargengið, fá ekki krónu frá ríkinu fyrr en eftir 5. ára veru á landinu.
Undantekningar á þessu er þegar báðir aðilar eru vinnandi og borga skatta, þá fær viðkomandi fjölskylda sömu réttindi og aðrir, þó ekki fyrr en eftir 1. ár.
Ef annar aðili er óvinnufær skal hinn sjá um kostnaðinn. Fær ekkert úr ríkissjóði.
Báðir aðilar óvinnufærir, þá er það guð og gaddurinn.
Nema r
apport ætli að borga undir það með tekjum sínum sem hann heldur eftir skatta.
Hvar ert þú á þewssu riti?
https://www.stjornarradid.is/efst-a-bau ... rikissjod/Hvaða hópur kostar ríkið mest?
Er það hópurinn með lægstu launin eða hópurinn með meðallaunin?
Getur verið að þú sért dýrari fyrir kerfið en fólk sem er með engar tekjur?
Ert þú í topp 30% í launum og ert að greiða um 1700þ. á ári í skatta = c.a. 600þ. á mánuði í laun fyrir skatt þá kannski ertu að ná að koma út á sléttu gagnvart ríkinu.
Ég vann hjá ríkinu í 10 ár og allt það verðmæti sem ég skapaði með minni vinnu fór til samfélagsins, ekki til einkaaðila.
Varðandi að reka ríkisstarfsmenn, þá er það ekki hægt án fyrirvara og án ástæðu. Ef það er gert þá fer stéttafélagið í mál fyrir þína hönd og þú færð það bætt.
Hér er eitt dæmið sem ég man eftir, hún fékk GSM kosnaðinn meira að segja greiddan -
http://www.visir.is/g/2016161019346Ég þekki heilbrigðis- og velferðarkerfið ágætlega, var nánast alinn upp á ýmsum elliheimilum og LSH í vinnunni hjá mömmu, vann á LSH í 10 ár og er kvæntur félagsráðgjafa sem starfar hjá borginni.
Við það bætist að ég var 10 ár í Austurbæjarskóla þegar það var eini nánast "fjölmenningarskólinn" í Reykjavík.
Sá og upplifði dugnaðinn hjá mörgum vina minna sem eru í dag betri í íslensku en ég og hafa skapað sér frábært líf hér.
Ég upplifði líka öll vandræðin og fordómana hjá öðrum í garð þeirra og hvernig mörg vandamál hurfu ekki við að flytjast milli landa.
Hvernig þau flest fengu hjálp og hafa náð að fóta sig.
Ég hef trúa á kerfinu því að ég hef séð það virka.
Ég sé enga ástæðu og engan tilgang í að gera fólki sem kemur hingað lífið eitthvað erfiðara.
p.s. innflytjendur og flóttafólk eru almennt ekki á neinum bótum, megnið af öllu bótafé er örorka eða atvinnuleysisbætur.