Síða 68 af 96

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 10:15
af Rafurmegni
Þá er loksins komin fram smá lækkun í Svartsengi:

Mynd

Og því er að virðist öllu svæðinu:

Mynd

Næstu dagar segja svo til um í hvaða átt þetta stefnir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 10:22
af appel
Vinnuvélar strax komnar að hraunjaðrinum á Grindavíkurvegi, hvað er planið, byrja skófla þessu í burtu?

vinnuvelar.jpg
vinnuvelar.jpg (167.83 KiB) Skoðað 1686 sinnum

Kannski þurfi að fá svona hitaþolna risa-jarðýtu sem er mannlaus og getur skafað þetta í burtu af veginum einsog um snjó sé að ræða.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 11:26
af Nariur
B0b4F3tt skrifaði:
sverrirgu skrifaði:
Nariur skrifaði:Já. Það er gaman hvernig þetta virðist vera frekar heidlstætt sýnidæmi um kosti og galla varnargarðana. Þeir beina hrauni, staðfest. En hvert þeir beina því þarf ekki að vera frábært heldur. Þessi varnargarður hefur mögulega valdið meiri skaða en hann hefur bjargað með því að beina hrauninu yfir heitavatnsleiðsluna. Svo er það augljósi gallinn að þeir gera ekkert (eða mögulega illt verra) ef hraunið kemur upp fyrir innan þá.

Frekar skrýtið að menn hafi ekki sett meiri kraft í frágang í kringum lagnirnar einmitt þarna í línu við varnargarðana.

Varnargarðurinn var ekki tilbúinn þegar það byrjaði að gjósa. Þeir lögðu allt kapp á að loka garðinum frekar en að klára fráganginn á lögninni. Höfðu líklega ekki tæki og mannskap til þess að geta gert bæði.
Held að það sé auðveldara að laga frostskemmdir í húsi heldur en hús sem fara undir hraun.

Varnargarðurinn var nógu tilbúinn til að taka á móti þessu hrauni allavega og gerði nákvæmlega það sem hann átti að gera.
Það er klárlega auðveldara að endurbyggja 5 hús en að gera við frostskemmdir í 1000(?) húsum.

Frá því þessi atburðarás hófst hef ég haft þá athugasemd við þessa varnargarða að þeir virðast illa úthugsaðir. Meira setjum "vegg þarna, þarna og þarna", frekar en byggt á almennilegri vel rökstuddri greiningu sérfræðinga.
Það er mjög mikilvægt að svara spurningunni "er þetta að fara að gera eitthvað og er það eitthvað jákvætt?" almennilega áður en maður fer að hella milljörðum í það. Ég haf nefnilega ekki séð neinar skýrslur þess efnis.

Ég tek fram að ég er alls ekki á móti varnargörðum, en ég er á móti því að gera bara eitthvað svo manni líði eins og maður sé að gera eitthvað.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 12:01
af zetor
Nariur skrifaði:

Þetta er náttúruleg gert í kapphlaupi við tímann og menn eru að prufa sig áfram. Held að þessi venjulega skýrsuleið sé ekki alveg að henta núna. Held einmitt að sérfræðingar séu að standa sig nokkuð vel á miðað við aðstæður, þetta eru náttúrlega aðstæður seim eiga sér enga hliðstæðu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 12:34
af B0b4F3tt
Nariur skrifaði:
B0b4F3tt skrifaði:
sverrirgu skrifaði:
Nariur skrifaði:Já. Það er gaman hvernig þetta virðist vera frekar heidlstætt sýnidæmi um kosti og galla varnargarðana. Þeir beina hrauni, staðfest. En hvert þeir beina því þarf ekki að vera frábært heldur. Þessi varnargarður hefur mögulega valdið meiri skaða en hann hefur bjargað með því að beina hrauninu yfir heitavatnsleiðsluna. Svo er það augljósi gallinn að þeir gera ekkert (eða mögulega illt verra) ef hraunið kemur upp fyrir innan þá.

Frekar skrýtið að menn hafi ekki sett meiri kraft í frágang í kringum lagnirnar einmitt þarna í línu við varnargarðana.

Varnargarðurinn var ekki tilbúinn þegar það byrjaði að gjósa. Þeir lögðu allt kapp á að loka garðinum frekar en að klára fráganginn á lögninni. Höfðu líklega ekki tæki og mannskap til þess að geta gert bæði.
Held að það sé auðveldara að laga frostskemmdir í húsi heldur en hús sem fara undir hraun.

Varnargarðurinn var nógu tilbúinn til að taka á móti þessu hrauni allavega og gerði nákvæmlega það sem hann átti að gera.
Það er klárlega auðveldara að endurbyggja 5 hús en að gera við frostskemmdir í 1000(?) húsum.

Frá því þessi atburðarás hófst hef ég haft þá athugasemd við þessa varnargarða að þeir virðast illa úthugsaðir. Meira setjum "vegg þarna, þarna og þarna", frekar en byggt á almennilegri vel rökstuddri greiningu sérfræðinga.
Það er mjög mikilvægt að svara spurningunni "er þetta að fara að gera eitthvað og er það eitthvað jákvætt?" almennilega áður en maður fer að hella milljörðum í það. Ég haf nefnilega ekki séð neinar skýrslur þess efnis.

Ég tek fram að ég er alls ekki á móti varnargörðum, en ég er á móti því að gera bara eitthvað svo manni líði eins og maður sé að gera eitthvað.

Ég er nokkuð viss um það að allnokkrir sérfræðingar hafi komið að þessum varnargörðum. Þetta var ekki bara einhver gröfukall útí bæ sem var settur í þetta. Og mögulega eru til einhverjar skýrslur um þetta, hver veit.
En ég er á því að þessi varnargarður hafi gert sitt. Ef hann hefði ekki verið þá hefði mögulega runnið hraun úr stærri sprungunni inn í Grindavík með tilheyrandi tjóni.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 12:40
af falcon1
Magnús Tumi að segja það sem er orðið augljóst að ekki sé hægt að búa í Grindavík í langan tíma.

https://www.visir.is/g/20242515943d/ekk ... afn-vel-ar

Nú er spurningin hvernig er best að tryggja Grindvíkingum öruggt húsaskjól, þarf að fara í einhverjar aðgerðir eins og var gert þegar Vestmannaeyjagosið var að flytja inn hús og planta niður á öruggu svæði?
Svo er spurningin hvernig þetta verður bætt, líklegasta niðurstaðan finnst mér að það verði farið eftir brunabótamati.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 12:49
af Nariur
zetor skrifaði:Þetta er náttúruleg gert í kapphlaupi við tímann og menn eru að prufa sig áfram. Held að þessi venjulega skýrsuleið sé ekki alveg að henta núna. Held einmitt að sérfræðingar séu að standa sig nokkuð vel á miðað við aðstæður, þetta eru náttúrlega aðstæður seim eiga sér enga hliðstæðu.

Það skiptir engu máli hvort tíminn sé naumur eða ekki. Að gera bara eitthvað er ekki rétt viðbrögð í neyð. Það þarf að greina vandamálið áður en farið er í framkvæmdir svo maður sé að beita auðlindunum rétt og sé ekki að gera illt verra. Yfirveguð og vel hugsuð viðbrögð (en samt hröð, að sjálfsögðu) eru alltaf bestu viðbrögðin í neyð.
Vonandi var þetta vel úthugsað, en ég hef ekki enn séð greininguna að baki hönnun varnargarðanna.

B0b4F3tt skrifaði:En ég er á því að þessi varnargarður hafi gert sitt. Ef hann hefði ekki verið þá hefði mögulega runnið hraun úr stærri sprungunni inn í Grindavík með tilheyrandi tjóni.

Á móti kemur að hann tók líka heitt vatn af bænum með tilheyrandi tjóni, sem er vel mögulega mun meira en hann bjargaði.

Ég ætla að segja það aftur. Ég vona að þetta hafi verið vel hugsað, en það er samt ekki myndin sem ég fæ af þessum framkvæmdum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 12:57
af sverrirgu
B0b4F3tt skrifaði:
sverrirgu skrifaði:Frekar skrýtið að menn hafi ekki sett meiri kraft í frágang í kringum lagnirnar einmitt þarna í línu við varnargarðana.

Varnargarðurinn var ekki tilbúinn þegar það byrjaði að gjósa. Þeir lögðu allt kapp á að loka garðinum frekar en að klára fráganginn á lögninni. Höfðu líklega ekki tæki og mannskap til þess að geta gert bæði.
Held að það sé auðveldara að laga frostskemmdir í húsi heldur en hús sem fara undir hraun.

Mossi__ skrifaði:
sverrirgu skrifaði:Frekar skrýtið að menn hafi ekki sett meiri kraft í frágang í kringum lagnirnar einmitt þarna í línu við varnargarðana.

Fólk er að vinna stanslaust sólarhringum saman á hættulegu sprungusvæði sem vikum skiptir og fengu ca 4 klst fyrirvara um þetta gos.

Það að þeir skulu hafa náð að leggja þessa aukalínu þarna á þetta stuttum tíma ofan á allt er þrekvirki.

Það er ekki eins og það séu ekki fleiri verktakar til sem eiga jarðvinnuvélar, skil alveg að tækin á staðnum hafi verið notuð í varnargarðana.
En það er þetta með að vinna á fleiri vígstöðvum... annars er voða auðvelt að spá og spauglera úr sófanum. ;)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 14:41
af jericho
sverrirgu skrifaði:annars er voða auðvelt að spá og spauglera úr sófanum. ;)

Einmitt - mjög auðvelt að vera vitur eftir á. Líklegast héldu allir að þeir höfðu lengri tíma.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 16:11
af falcon1
Það eru auðvitað allir að gera sitt besta undir fáránlega erfiðum kringumstæðum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 17:35
af Mossi__
falcon1 skrifaði:Það eru auðvitað allir að gera sitt besta undir fáránlega erfiðum kringumstæðum.

Margir hér:
vaktin2024.jpg
vaktin2024.jpg (28.81 KiB) Skoðað 1347 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 17:54
af Le Drum
appel skrifaði:Vinnuvélar strax komnar að hraunjaðrinum á Grindavíkurvegi, hvað er planið, byrja skófla þessu í burtu?

vinnuvelar.jpg

Kannski þurfi að fá svona hitaþolna risa-jarðýtu sem er mannlaus og getur skafað þetta í burtu af veginum einsog um snjó sé að ræða.

Skilst að það sé verið að reyna að komast í loka á vatnslögnum sem eiga að vera þarna undir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 18:13
af jonfr1900
Samkvæmt Veðurstofunni þá hefur myndast nýr sigdalur austan við sigdalinn sem myndaðist þann 10. Nóvember 2023. Þessi nýi sigdalur er um 1000 metrar á breidd og um 1 metra djúpur. Þessi sigdalur er ennþá að dýpka og breikka. Þetta breytir öllu í þessu og gerir stöðuna mun verri, þar sem bæði er hættan á eldgosum þarna orðin mun meiri en einnig eykur þetta sprungur á yfirborði til muna og gerir allt svæðið stórhættulegt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 18:16
af jonfr1900
Hérna er mynd af nýjum sigdal. Myndin er fengin héðan.

Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 19:12
af appel
Grindavíkurbær óíbúðarhæfur.

Yfir 1 þús heimili í Grindavík, bara búið að kaupa um hvað 140 íbúðir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 19:39
af rapport
appel skrifaði:Grindavíkurbær óíbúðarhæfur.

Yfir 1 þús heimili í Grindavík, bara búið að kaupa um hvað 140 íbúðir.

Drífa þetta af, kaupa þetta og svo getur ríkið farið í uppgerð og AirBnB þegar allt róast

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 19:57
af jonfr1900
Þetta er gott og gilt en það verður eldgos innan Grindavíkur eftir minna eða að hámarki eftir 30 daga. Þar sem hvert eldgos fer sunnar. Hugsanlega mun næsta eldgos einnig ná niður í höfnina og út í sjó.

Heitt vatn og raf­magn komið á í Grinda­vík að mestu (Vísir.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:17
af Henjo
Greyið konan sem átti báða bílana sem voru í innkeyrslunni sem hraunið var að nálgast, tryggingafélagið hringdi í hana meðan gosið var í gangi til að tilkynna henni að þeir væru ekki tryggðir fyrir svona skemmdum. Hefur verið mikill léttir þegar það stoppaði bara örfáa metra frá.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:20
af rapport
Henjo skrifaði:Greyið konan sem átti báða bílana sem voru í innkeyrslunni sem hraunið var að nálgast, tryggingafélagið hringdi í hana meðan gosið var í gangi til að tilkynna henni að þeir væru ekki tryggðir fyrir svona skemmdum. Hefur verið mikill léttir þegar það stoppaði bara örfáa metra frá.

Hvaða tryggingafélag?

Ég vil ekki versla við svona lið, ojj.

Það hefði verið betra að halda kjafti en að hringja þetta símtal.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:29
af GunZi
https://strokkur.raunvis.hi.is/gps/SENG_4hrap.png

Er landrisið í Svartsengi að aukast? Sýnist vera meiri hraði á því í dag.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:34
af appel
Henjo skrifaði:Greyið konan sem átti báða bílana sem voru í innkeyrslunni sem hraunið var að nálgast, tryggingafélagið hringdi í hana meðan gosið var í gangi til að tilkynna henni að þeir væru ekki tryggðir fyrir svona skemmdum. Hefur verið mikill léttir þegar það stoppaði bara örfáa metra frá.

Fékk hún að sækja bílana? Hvernig er það?
En það er rétt, tryggingafélög firra sig af ábyrgð í svona tilvikum, náttúruhamförum. Öll tryggingafélög gera það, þannig af þér mislíkar það og vilt skipta um tryggingafyrirtæki útaf því þá ertu bara að láta einhverja tilfinningasemi ráða för, svona "lashing out". En mér finnst það ágætt hjá tryggingafyrirtækinu að hringja í konuna og láta hana vita áður en þetta gerist.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:47
af rapport
appel skrifaði:

Af hverju að nudd henni uppúr því á á meðan það stefnir í að hún horfi á bílana brenna í beinni?

Það er miklu mannúðlegra að taka símtalið og útskýringarnar bara eftirá EF hún hringir í tryggingafélagið með spurningar.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 20:59
af Henjo
Ég heyrði þetta á þessum íbúðafundi í laugardagshöll áðan, en hún var þá að spyrja hvort hún geti fengið að sækja bílana, því eins og er, þá hefur hún ekki fengið að gera það. Þó svo að fréttafólk fær að labbar þarna í kringum húsið hennar að skoða hraunið.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 21:03
af Manager1
Það er ekkert mál að hleypa fréttamönnum frá 10-20 fjölmiðlum inn í bæinn í fylgd björgunarsveitafólks og á afmörkuð svæði, en ef þessi kona á að fá að sækja bílana sína þá þarf að hleypa öllum hinum Grindvíkingunum inn líka og það er bara ekki hægt strax.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 16. Jan 2024 21:20
af Henjo
Yeap en það er augljóst að skipulagið er oft mjög undarlegt, t.d. þegar það vera fyrst verið að takmarka allt þarna fyrir tveimur mánuðum eða hvenar sem það var. þá fengu fá stórfyrirtæki eða ákveðnir einstaklingar að koma ítrekað að bjarga verðmætum meðan aðrir höfðu ekkert fengið að fara.

En á sama tíma, og ég veit að þetta verður ekki vinsæl skoðun, að persónuleg ábyrgð þarf að koma smá inní málið á einhverjum tímapunkti. Afhverju... eru tveir bílar skildnir eftir útá planni inná virku eldfjallasvæði? Það er ekki til endalausar auðlindir, ekki endalaus vinna, og það er á ábyrgð okkar allra að passa uppá okkar.