Síða 59 af 96

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 01:11
af jardel
Er þetta ekki bara æsifréttamennska?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... grindavik/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 01:13
af jonfr1900
Hagafell gæti hreinlega stöðvað lengingu sprungunnar miðað við kort.

gossprunga 19.12.2023.jpg
gossprunga 19.12.2023.jpg (203.21 KiB) Skoðað 2234 sinnum

Myndin er fengin héðan (twitter.com).

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 01:52
af rostungurinn77
Gígaröðin virðist fara vestur fyrir Hagafell og sveigja til Austurs við Stóra Skógfell.

Þ.e.a.s gígaraðirnar sem voru til staðar frá fyrri gosum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 04:29
af Stuffz
þetta verður langt og plássfrekt gos IMO

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 05:01
af jonfr1900
Jarðskjálftavirkni hætti um klukkan 04:55. Það þýðir að gossprungan er hætt að lengjast í bili. Það er spurning hvað gerist á næstu dögum og vikum þegar gígar fara að lokast.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 05:13
af jonfr1900
Hérna er kort af gos sprunginni frá Veðurstofunni.

Mynd

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 08:25
af Danni V8
rostungurinn77 skrifaði:
Danni V8 skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:Er það bara ég eða finnst fleirum það vera alveg ótrúlega ófagmannlegt af þeim sem fá að fljúga með þyrlunni að þeir standi fyrir myndavélinni og séu að taka myndir á símana sína?

Þyrlan er á sveimi þarna fyrst og fremst til þess að afla upplýsinga, ekki taka upp myndir fyrir okkur sem sitjum heima. Rúv gaurinn fékk greinilega bara að fljóta með.

Myndir eru óhjákvæmilega upplýsingar.

Enda voru þeir sem voru fyrir myndavélinni að taka myndir. Líklega til að senda á kollega sína sem þurftu að fá ákveðnar upplýsingar? Hver veit. En myndefni fyrir fréttastofu var klárlega ekki í forgangi í þessu þyrluflugi.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 11:22
af jardel
Þetta var stutt gos nánast búið sjá hér fyrir neðan

https://www.youtube.com/watch?v=P1e_MWJ1nQc

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 11:44
af appel
jardel skrifaði:Þetta var stutt gos nánast búið sjá hér fyrir neðan

https://www.youtube.com/watch?v=P1e_MWJ1nQc

Er allt komið upp sem þarf að koma upp?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 11:57
af jardel
Já þetta er voðalega lítið gos núna

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 12:20
af rapport
Held að þetta hafi minnkað en svo sést þetta líka bara verr í dagsbirtu...

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 12:49
af jonfr1900
Samkvæmt Veðurstofunni þá dregur hratt úr eldgosinu eins og er.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 14:35
af jardel
Já þetta er orðið óttalegur ræfill eins og m.t sagði

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 15:51
af Uncredible
Gosið hefur sannarlega minnkað en það er samt ennþá stærri en önnur gos síðastliðin ár, en veit einhver hver staðan er á landrisinu? Er landið núna að síga í Svartsengi?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 16:03
af jonfr1900
Uncredible skrifaði:Gosið hefur sannarlega minnkað en það er samt ennþá stærri en önnur gos síðastliðin ár, en veit einhver hver staðan er á landrisinu? Er landið núna að síga í Svartsengi?

GPS gögnin eru farin að sýna lækkun á mælum sem eru hérna. Þetta er hinsvegar ójöfn lækkun og gæti verið vísbending um að þarna séu kannski fleiri en ein silla undir Svartsengi og það sé bara ein að gjósa núna. Það tekur nokkra daga að sjá hvað er útúr þessum GPS gögnum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 18:53
af jonfr1900
Uppfært: Innskot inn í kvikuganginn 10. Nóvember virðist hafa sett þetta allt af stað. Það gæti flækt stöðuna talsvert.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 19. Des 2023 23:25
af jonfr1900
Það er hugsanlegt að þetta eldgos verði stutt eldgos. Gígurinn sem ég er að horfa á Rúv (sem er í miðjunni og virkastur) er nú þegar farinn að sýna merki um það að eldgosið sé að fara að klárast.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 00:06
af jardel
jonfr1900 skrifaði:Það er hugsanlegt að þetta eldgos verði stutt eldgos. Gígurinn sem ég er að horfa á Rúv (sem er í miðjunni og virkastur) er nú þegar farinn að sýna merki um það að eldgosið sé að fara að klárast.

Kemur það þá upp sunnar eða klárast

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 00:27
af jonfr1900
jardel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það er hugsanlegt að þetta eldgos verði stutt eldgos. Gígurinn sem ég er að horfa á Rúv (sem er í miðjunni og virkastur) er nú þegar farinn að sýna merki um það að eldgosið sé að fara að klárast.

Kemur það þá upp sunnar eða klárast

Líklega er þetta að fara að klárast. Ef Svartsengi hefur lækkað um 70mm eins og kom fram í fréttum í dag, og auk þeirrar lækkunar sem er núna í gangi. Þá er hugsanlegt að kvikugangurinn úr sillunni eða kvikuhólfinu hafi lokast aftur eða er að fara að lokast. Þá væntanlega tekur land aftur að rísa þangað til að nýtt eldgos verður á nýjum stað þarna. Væntanlega eftir 30 daga frá því að þessu eldgosi líkur. Ef það endar á morgun, þá er það um 20. Janúar 2024 sem gæti gosið næst.

Þetta eldgos gæti aukist aftur en það er vonlaust að sjá hvort að það gerist í þessum gögnum sem eru núna að koma inn.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 00:33
af jardel
jonfr1900 skrifaði:

Takk fyrir góðan fróðleik Jón.
Myndir þú segja að þetta gos sem komið er sé óttalegur ræfill?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 01:11

Þetta var stórt eldgos, þar sem flæðið í upphafi var um 800m3/sek (samkvæmt óstaðfestum fréttum). Það er þannig með stór eldgos að þau eru oftast mjög stutt og þetta eldgos virðist ætla að fara eftir þeirri reglu alveg sýnist mér. Hugsanlega klárast þetta eldgos fyrir næsta föstudag eða jafnvel mánudag. Það gæti hinsvegar orðið mjög stuttur tími í næsta eldgos eftir þetta, kannski um 30 dagar eða styttri tími.

Núna er þetta eldgos orðið mjög lítið og væntanlega bara að klárast.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 07:51
af Moldvarpan
Er þrýstingurinn farinn undan svartsengi? Hefur landið sigið?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 18:43
af jonfr1900
Moldvarpan skrifaði:Er þrýstingurinn farinn undan svartsengi? Hefur landið sigið?

Samkvæmt GPS gögnum þá er lækkunin 80mm síðan á Mánudaginn. Það er ennþá nóg kvika undir Svartsengi miðað við þetta.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 20:11
af jonfr1900
Líklega mun svipað gerast aftur. Nema það eru hærri líkur á því að kvikunni takist að ná til Grindavíkur næst þegar kvika brýtur sér leið upp á yfirborðið.

kvikugangur-frétt-rúv-20.12.2023.png
kvikugangur-frétt-rúv-20.12.2023.png (429.05 KiB) Skoðað 1091 sinnum

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Mið 20. Des 2023 20:55
af appel
jonfr1900 skrifaði:Líklega mun svipað gerast aftur. Nema það eru hærri líkur á því að kvikunni takist að ná til Grindavíkur næst þegar kvika brýtur sér leið upp á yfirborðið.

kvikugangur-frétt-rúv-20.12.2023.png

úff... þetta er ekki búið. Gosið kann að deyja út núna á næstu dögum, en svo byrjar þetta ball aftur eftir nokkra mánuði, hálft ár eða eitt ár. :catgotmyballs