Pósturaf wICE_man » Fös 13. Maí 2005 13:52
En hvenær kemur græjan út?
Þessi nýju skjákort koma með haustinu fyrir PC, Tvíkjarna Athlon64 gjörvi ræður líka við 6 aðgerðir á klukku og er áreiðanlega með styttri pípun en þessir 3.2GHz gjörvar.
Það sem gerir XBOX kraftmeiri en ella er að öll forrit eru skrifuð sérstakleg fyrir hardware-ið svo að allir þessir þræðir nýtast upp í top.
Og hvað mun þetta kosta?
Ég held að þeir treysti á að selja skrilljón svona vélar ef þeir ætla að hagnast eitthvað á þessu. Allavega með þessum íhlutum. R520 með 512MB af GDDR3 minni mun örugglega kosta 400-500$, bætum við 3 gjörvum og eitthvað innra minni, sennilega í dýrari kantinum.
Þetta myndi kosta yfir 1000$ í PC vél, ég efast um að þeir fari að selja leikjatölvur á meira en 500$ svo að þeir þurfa að fá góðan magnafslátt. Munið að þeir töpuðu stórum fjárhæðum á gamla XBOXinum. Núna eiga þeir reyndar framleiðsluréttinn á öllum hlutum vélarinnar en samt....
Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu.