Hljóðtækninám

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
spjallið.is
Póstar: 418
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Hljóðtækninám

Pósturaf Fennimar002 » Þri 05. Ágú 2025 19:47

Sælir vaktarar,

Síðan 2021 hef ég tekið mér "námspásu" til þess að vinna og safna mér fyrir námi. Tók eina önn í HÍ í viðskiptafræði í fyrra og fann það að bóklegt nám er alls ekki fyrir mig. Fékk svo auglýsingu um hljóðtækni í lok annar um námið og hef verið að pæla í því alveg síðan og er alveg fastur á því að sækja um þar.

Mínar pælingar eru hvort það sé strangt ferli að komast inn og hvað getur "aukið líkurnar" við að fá samþykkt í viðtal?
Er "guaranty" að geta fundið sér fast starf að loknu námi ef ég vildi fara meira í live hlutann á hljóðtækninni? :-k


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz


HaZaR
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Sun 06. Jan 2019 13:33
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðtækninám

Pósturaf HaZaR » Mið 06. Ágú 2025 15:06

Hvað varðar að komast inn í slíkt nám þá hef ég ekki þekkingu á því , á ekki von á að það sé strangt.

Hvað varðar svo að fá vinnu.

Eins og með mörg önnur svið þá er reynsla allsráðandi.

Afar litlar líkur á þvi að fara að starfa sem live engineer strax eftir nám, en líklega hægt að verða sér útum starf hjá Exton eða slíku fyrirtæki og vinna sig upp. Hljóðvinnsla er mikið til byggð á reynslu og stundum er vandamál að þeir sem hafa lært telja sig kunna eitthvað.
Svo lengi sem þú ert auðmjúkur gagnvart því að þú veist ekki neitt eftir nám og er til í að leggja á þig tíma og vinnu við að verða þér útum reynslu þá er líklega allt hægt í þessu bransa.

En þetta er algert hark, illa borgað, erfiður vinnutími ...en skemmtilegt :)
Gangi þér vel.



Skjámynd

Baldurmar
Geek
Póstar: 853
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðtækninám

Pósturaf Baldurmar » Fim 07. Ágú 2025 12:35

Er það ekki þetta nám? https://tskoli.is/namsbraut/hljodtaekni/
Þú þarf að hafa lokið grunn­skóla og tveggja anna fram­halds­skóla­námi, að lág­marki 60 ein­ingum, þar af að lág­marki 10 ein­ingum í ensku, 10 ein­ingum í íslensku og 10 í stærðfræði, allt á 2. þrepi.

Einnig er æski­legt að hafa stundað tón­list­arnám eða hafa reynslu af tón­listar­flutn­ingi.

Inn­ritað er og tekið inn í námið á vorönn ár hvert.


Ef að þú komst inn í viðskiptafræði þá ertu 100% að uppfylla allar kröfur


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - AMD 7900XTX

Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
spjallið.is
Póstar: 418
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðtækninám

Pósturaf Fennimar002 » Þri 04. Nóv 2025 18:14

Nú er opið fyrir umsóknir, ef aðrir voru að pæla, en hvernig fylgiskjöl þarf að setja? Bara eitthvað almennt fyrir náms umsóknir?

Spyr því það er sér síða fyrir starfsreynslu og umsagnaraðila.


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2145
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 187
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Hljóðtækninám

Pósturaf DJOli » Mið 05. Nóv 2025 08:34

Ég meina. Hefurðu eitthvað unnið við að róta eða verið með einhverjum í því eða einhverju tengdu hljóði? Ef svo þá er um að gera að senda það með, annars er held ég engin krafa um að hafa unnið í þessu sviði.

Svo varðandi vinnuna eftirá þá er að mér hefur sýnst, meira en nóg í boði og alltaf flott ef fólki langar að læra meira og safna sér reynslu og þekkingu.

Fyrir mér og þeim sem ég þekki í bransanum skiptir mestu máli að hafa áhuga á hljóði og hafa löngun til að fikta og læra.


i7-11700KF|64gb(2x32gb) ddr4|RTX 4060Ti-16gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 990 Evo nvme m.2|Corsair HX1200