Vextir - Snjóhengjan fellur!

Allt utan efnis
Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1473
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 177
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Lexxinn » Fim 01. Maí 2025 22:34

rapport skrifaði:Hvað finnst ykkur um sjónarmiðið að þessi skuldsetning eigna fyrir neyslu sé í eðli sínu eignatilfærsla milli kynslóða þar sem ungt fólk er að gjalda fyrir fasteignabrask og bruðl miðaldra fólks ?

Er ekki með rökin en heyrði þessar pælingar fyrst í dag og það er eitthvað smá til í þessu.

Sorglegt. Ungt fólk getur ekki keypt eignir og ef það getur það skuldsetur það sig 20-100m meira en nágranninn. Í fyrra keypti ég minni eign en nágranni minn, munar um 30fm, sem kaupir 4 árum á undan mér og 34m ódýrara. Hann situr því á núna 16m verðmætari eign ef mv sambærilegar eignir í götunni en greiðir 34m minna því hann kemst fyrr á það "level" í fasteignakaupum. Ég er því tæpar 34m meira í skuld (leiðrétt f fermetra á núverandi $/fm í hverfinu) sbr viðkomandi fyrir það eitt að kaupa 4 árum seinna. Þetta telur vissulega covid hækkanir inn í en þær skemmdu líka markaðinn.

Ég á vini tæplega þrítugir sem sjá aldrei fram á að komast í eigin húsnæði ef þeir búa ekki áfram í foreldrahúsum til að safna eftir nám, eða bíða eftir að foreldrarnir eru tilbúnir að minnka við sig og geti þá "lánað" eða í raun fengið fyrirframgreiddan arf til að komast á húsnæðismarkað. Á meðan er fjöldi einstaklinga með tugi eigna í sinni eigu einungis til að lifa á launum leigjenda sinna.

Edit; hugsið ykkur hvað þetta er galið. Alma og fleiri jafn ógeðsleg leigufélög, ganga út á það að fá hluta af launum vinnandi fólks sem leggur í raun eitthvað til samfélagsins með sinni vinnu. Greiða sér svo arð upp á hundruði milljóna. Gefa ekkert frá sér. Þessi hagnaðardrifnu leigufélög eru í raun eins og "dýr sem lifir sníkjulífi" á samfélagið. Útskýring.
Síðast breytt af Lexxinn á Fös 02. Maí 2025 00:36, breytt samtals 2 sinnum.

Skjámynd

Oddy
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Sun 12. Jan 2020 20:34
Reputation: 77
Staðsetning: Akureyri
Staða: Tengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Oddy » Fös 02. Maí 2025 06:33

Lexxinn skrifaði:

Ég er byrjaður að greiða fyrirframgreiddann arf til dóttur minnar svo að hún hafi pening fyrir útborgun í íbúð. Þegar sonur minn kemst á það level að vilja kaupa þá fær hann líka. Ég sé þetta sem eini möguleiki þeirra til að geta keypt sér og þá líka eini möguleiki minn að losna við þau úr mínum húsum.

Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Dr3dinn » Fös 02. Maí 2025 09:18

Æltaði að svara quote-i en það var komið í löngu vitlausu.

Tilvísun mín í að hætta að eyða allri okkar orku í að borga lán og njóta frekar lífsins, það er alveg búið að heilaþvo okkur að borga skuldir en það sem ég reyndi kannski of heiðarlega að vísa í að við erum ekkert að sigra í lífinu með afborgunum.

Það eru til óverðtryggð lán núna og hægt er að festa vexti, við erum ekki föst í verðtryggingnunni og allt hækki endalaust. (húsnæði hækkar frekar en lánin sem dæmi)

Ef menn eru ekki með lítil börn og nóg að gera í lífinu, þá má alveg fresta því að leggja allt sparifé á lán og einbeita sér að gera hluti með fjölskyldunni, það er alltaf hægt að borga inn á lán þegar börn eldast eða tímar róast.

Við erum komnir á svo skringilegan stað andlega þar sem allt snýst um lán og eignir.

Margir í vinnunni hjá mér eru að festa lán og ætla ferðast meira og leika sér, stoppa aðeins og njóta launanna, auðvitað eru ekki allir í þeirri aðstöðu en við þurfum heldur ekki öll að vera í lífskapphlaupinu að staðgreiða lánin okkar og ætla að njóta eftir 10-15ár að vera skuldlaus.

Það er engan veginn öruggt að við höfum heilsu til að njóta eftir 10 ár, eða að börn og aðrir hafi tíma eða áhuga til að fara með okkur í frí þegar við loksins klárum lánin.

Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Fös 02. Maí 2025 10:43

Það mun gerast (og þarf að gerast) og líklega fyrr en seinna, að það kemur högg á fasteignamarkaðinn, líkt og í hruninu sem mun valda því að fasteignaverð mun ekki hækka í um áratug og þannig mun fasteignaverð leiðréttast.

Það sem þarf að gerast er að setja þak á arðsemi fasteignafélaga sem gengur út á að ef þau sýna hagnað yfir t.d. 2% + stýrivextir, þá eigi það að skila sér í lægri leigu til leigjenda.

Það er nefnilega algjhörlega galið að ríki og sveitafélög séu að niðurgreiða himinháa leigu án þess að nokkuð sé gert til að halda leigu lágri, þá er í raun bara verið að fóðra vasa leigusala með skattfé.

Líkt og vaxtabæturnar eru í raun bara að fóðra vasa lánveitenda sem niðurgreiðsla á lánum til almennings.

Þannig að unga fólkið þarf að borga meira fyrir fasteignirnar + borga fulla skatta og skattarnir fara ekki í þjónustu og innviði heldur til leigusala og fjármagnseigenda...

Þannig skapast innviðaskuld sem þau munu þurfa að greiða fyrir þegar innviðir drabbast niður því allir skattpeningarnir fóru í niðurgreiðslur.

Skjámynd

Oddy
FanBoy
Póstar: 798
Skráði sig: Sun 12. Jan 2020 20:34
Reputation: 77
Staðsetning: Akureyri
Staða: Tengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Oddy » Fös 02. Maí 2025 11:34

Dr3dinn skrifaði:Æltaði að svara quote-i en það var komið í löngu vitlausu.

Tilvísun mín í að hætta að eyða allri okkar orku í að borga lán og njóta frekar lífsins, það er alveg búið að heilaþvo okkur að borga skuldir en það sem ég reyndi kannski of heiðarlega að vísa í að við erum ekkert að sigra í lífinu með afborgunum.

Það eru til óverðtryggð lán núna og hægt er að festa vexti, við erum ekki föst í verðtryggingnunni og allt hækki endalaust. (húsnæði hækkar frekar en lánin sem dæmi)

Ef menn eru ekki með lítil börn og nóg að gera í lífinu, þá má alveg fresta því að leggja allt sparifé á lán og einbeita sér að gera hluti með fjölskyldunni, það er alltaf hægt að borga inn á lán þegar börn eldast eða tímar róast.

Við erum komnir á svo skringilegan stað andlega þar sem allt snýst um lán og eignir.

Margir í vinnunni hjá mér eru að festa lán og ætla ferðast meira og leika sér, stoppa aðeins og njóta launanna, auðvitað eru ekki allir í þeirri aðstöðu en við þurfum heldur ekki öll að vera í lífskapphlaupinu að staðgreiða lánin okkar og ætla að njóta eftir 10-15ár að vera skuldlaus.

Það er engan veginn öruggt að við höfum heilsu til að njóta eftir 10 ár, eða að börn og aðrir hafi tíma eða áhuga til að fara með okkur í frí þegar við loksins klárum lánin.

Er þetta ekki bara spurning um þetta jafnvægi sem þarf að vera? Ekki leika þér ofmikið þannig að ekki sé hægt að borga skuldir og ekki borga ofmikið inná skuldir svo að ekki sé hægt að leika þér neitt. Hver og einn þrf svo að finna sitt jafnvægi

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Fös 02. Maí 2025 11:46

rapport skrifaði:
Það er nefnilega algjhörlega galið að ríki og sveitafélög séu að niðurgreiða himinháa leigu án þess að nokkuð sé gert til að halda leigu lágri, þá er í raun bara verið að fóðra vasa leigusala með skattfé.

Líkt og vaxtabæturnar eru í raun bara að fóðra vasa lánveitenda sem niðurgreiðsla á lánum til almennings.

Hversu stór er þessi hópur sem á rétt á vaxtabótum? Hámarkið er 420 þúsund fyrir einhleypa og 630 fyrir hjón.

Til þess að fá þessi 400 þúsund þarf viðkomandi líklegast að vera á lágmarkslaunum og vera nýbúinn að kaupa þ.e.a.s. eignastofn nánast 0.

En þá kemur hið augljósa, einstaklingur með þessi laun stenst ekki greiðslumat, nema viðkomandi sé að kaupa einhvern skúr úti á landi.

Þetta byggi ég á því að fikta í reiknivél vaxtabóta á heimasíðu skattsins. https://www.skatturinn.is/einstaklingar ... vaxtabota/

rapport skrifaði:Það mun gerast (og þarf að gerast) og líklega fyrr en seinna, að það kemur högg á fasteignamarkaðinn, líkt og í hruninu sem mun valda því að fasteignaverð mun ekki hækka í um áratug og þannig mun fasteignaverð leiðréttast.

Til þess þarf líklegast:
a) Annað hrun - Líklegast en ekki líklegt.
b) Verulega fækkun aðflutts vinnuafls - Ekki mjög líklegt.
c) Verulega sprengingu í byggingu húsnæðis. - Trúi því þegar ég sé það.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Mán 05. Maí 2025 07:21

rostungurinn77 skrifaði:

Skjámynd 2025-05-02 135502.png
Skjámynd 2025-05-02 135502.png (11.18 KiB) Skoðað 5613 sinnum

70 milljarðar á ári fara í húsnæðis- og vaxtabætur, sem er um 55% af því sem kostar að reka Landspítalann sem er að greiða um 10.000 starfsmönnum laun og er um 75% launakostnaður = þetta jafngildir að greiða um 7500 manns 650þ. í mánaðarlaun laun allt árið...

s.s. ríkið greiðir 192 milljónir á dag í einhverskonar húsnæðisbætur.

Það eru 130.000 heimili í landinu = 1500 kr. á dag pr. heimili = meðalheimili er að fá 530þ. á ári í einhverskonar húsnæðisbætur.

70 milljarðar eru svo 0,458% af heildarfasteignamati landsins skv. https://hms.is/frettir/fasteignamat-2025

Sem er fáránlega hátt hlutfall að greiða í húsnæðis og vaxtabætur, á 20 árum fá fasteignaeigendur því að meðaltali um 10% af andvirði eignarinnar í bætur frá ríkinu... á líftíma 40 ára láns

p.s. inn í þessar tölur vantar sérstakar húsnæðisbætur greiddar af sveitafélögum.

Ég held að fyrsta skrefið til að vinda ofanaf þessari þróun sé að tengja saman bótakerfin (barnabætur, húnsæðis- og vaxtabætur) og hætta að greiða þessar bætur út og veita frekar aukinn persónuafslátt og að foreldrar geti nýtt persónuafslátt barna á þeirra forræði og framfærslu.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Mán 05. Maí 2025 10:31

Þetta eru alveg merkilegar upphæðir.

Það er ekki hægt að álykta annað en að fjöldi þeirra sem fær þessar bætur séu tugir þúsunda eða jafnvel hundruðir þúsunda.

Þegar ég skoða þetta betur þá sé ég reyndar að einstæðir eiga nánast engan möguleika á þessum bótum en fólk í sambúð á það, þó svo bæði séu með milljón á mánuði (og jafnvel þó svo þau séu með 4 milljónir samtals) og á meðan eign þeirra í fasteigninni er ekki meira en 15 milljónir, þegar eignarhluturinn er kominn í 20 milljónir þá eru bæturnar 0.

Sem fær mig samt til að velta því fyrir mér, miðað við reiknivélina (og talan þín kann að vera fyrir árið 2023 mögulega en reiknivélin er fyrir 2024).

Þetta er alveg verulegur fjöldi sem hlýtur þá að eiga 15 milljónir eða minna í eigninni sinni (virði eignar virðist ekki vera ráðandi þáttur) sem er forvitnilegt ef við miðum við að 50 milljónir eru nokkurn veginn lágmarkið fyrir 3ja herbergja íbúð og útborgunin þá 7.5 milljónir fyrir fyrstu kaupendur eða 10 fyrir aðra.

Kaupendur sem keyptu fyrir 2020 og þá á 30-40 milljónir eru hins vegar líklegast búnir að eignast góðar 5-10 milljónir í íbúðinni sinni (eða meira) vegna verðhækkana á fasteignum (gefið að viðkomandi sé með óverðtryggt).

Kannski fasteignaeigendur séu bara mun verra staddir en maður myndi ætla.

Smá fyrirvari, það er vissulega hægt að eiga rétt á vaxtabótum sem einstaklingur en mjög ólíklegt að maður fái fullar bætur (420 þúsund), frekar að fólk sé að fá 100 þúsund eða minna.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Maí 2025 11:36

Það er langt síðan Bjarni Ben eyðilagði vaxtabótakerfið. Síurnar eru svo strangar að annaðhvort áttu of mikið eða ert með of há laun nema hvort tveggja sé. Efast um að margir séu að fá vaxtabætur í dag.

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3847
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 162
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Daz » Þri 06. Maí 2025 14:08

rapport skrifaði:

Skjámynd 2025-05-02 135502.png

70 milljarðar á ári fara í húsnæðis- og vaxtabætur... .

Ertu með einhverja heimild fyrir þessum tölum?
Miðað við fjárlög 2025 fara 2,1 milljarðar í vaxtabætur 2025.
Húsnæðisbætur 11 milljarðar 2025) eru greiddar til þeirra sem leigja húsnæði, fasteignaeigendur fá bara vaxtabætur.

Tölur teknar frá https://www.stjornarradid.is/verkefni/o ... maelabord/

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Þri 06. Maí 2025 14:46

Daz skrifaði:
rapport skrifaði:

Skjámynd 2025-05-02 135502.png

70 milljarðar á ári fara í húsnæðis- og vaxtabætur... .

Ertu með einhverja heimild fyrir þessum tölum?
Miðað við fjárlög 2025 fara 2,1 milljarðar í vaxtabætur 2025.
Húsnæðisbætur 11 milljarðar 2025) eru greiddar til þeirra sem leigja húsnæði, fasteignaeigendur fá bara vaxtabætur.

Tölur teknar frá https://www.stjornarradid.is/verkefni/o ... maelabord/

https://rikisreikningur.is/fjarhagur

EN... andskotinn hafi Power BI, að filterinn virðist ekki halda milli síðna og fyrir vikið þá er ég vitna í tölur fyrir "öll árin"...

Vel gripið ;-)

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 21. Maí 2025 10:35

Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf GuðjónR » Mið 21. Maí 2025 12:36

Já, 0,25% var viðbúið, flestir spáðu 0 til 0,25 prósentum.

Bankinn er að fara í frí fram í lok ágúst, svo þetta eru í raun bara smá brauðmolar fyrir almenning og til að þagga niður í verkalýðshreyfingunni. Bankinn getur alltaf sagt að þeir séu að lækka vexti sem þeir eru jú að gera.

Það sem vekur óhug er þessi hótun Seðlabankastjóra um að þetta gæti verið síðasta vaxtalækkunin á árinu.
Það er ekkert sem bendir til þess að verðbólga sé að hjaðna, þvert á móti þá hefur hún verið að hækka.

Ég var búinn að ákveða að bíða fram í ágúst með endurfjármögnun, var bjarstýnn og sá fyrir mér 0,50% lækkun í ágúst (ofan á þessa 0.25%) og ætlaði að endurfjármagna þessa 8,75% föstu vexti.
En miðað við þessa þróun gæti maður alveg eins gert það fyrr...eða ekki!

Það vantar algerlega fyrirsjáanleika á þessu skrípaskeri.
Þetta "það reddast" hugarfar sem ríkir alls staðar, líka hjá stjórnvöldum er gjörsamlega galið.
Viðhengi
Screenshot 2025-05-21 at 11.43.19.png
Screenshot 2025-05-21 at 11.43.19.png (1.23 MiB) Skoðað 965 sinnum

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Mið 21. Maí 2025 12:49

GuðjónR skrifaði:
Það vantar algerlega fyrirsjáanleika á þessu skrípaskeri.
Þetta "það reddast" hugarfar sem ríkir alls staðar, líka hjá stjórnvöldum er gjörsamlega galið.

Er þessi verðbólga á Íslandi núna ekki að litlu leiti tilkomin vegna óstöðugleika eða óvissu innanlands?

Liggur ekki fyrir að fokdýrar opinberar framkvæmdir munu kalla á mikil opinber útgjöld (Nýr Landspítali, Borgarlína og skuld í vegagerð).

Það mun hugsanlega eitthvað skapa þennslu/verðbólgu.

En er óvissa innanlands um eitthvað sem er nógu stórt til að skekja efnahaginn?

Harold And Kumar
Tölvutryllir
Póstar: 610
Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
Reputation: 81
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Harold And Kumar » Mið 21. Maí 2025 15:49

Ég sem tvítugur einstaklingur get ekki séð raunverulega fyrir mér að eiga heima á Íslandi ef þetta heldur svona áfram… húsnæðisverð ein og sér eru himinhá, vextir á lánum margfalt hærri en í öðrum löndum, verðbólga allstaðar óstöðvandi, og ég veit ekki hvað og hvað meira. Ég er líklegast að flytja út til Danmörk, Svíþjóðar eða Noregs…

Ryzen 7 7800X3d
RTX 3080 10Gb
32gb ddr5 6000MTS
1440p 180hz

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Mið 21. Maí 2025 18:29

Harold And Kumar skrifaði:Ég sem tvítugur einstaklingur get ekki séð raunverulega fyrir mér að eiga heima á Íslandi ef þetta heldur svona áfram… húsnæðisverð ein og sér eru himinhá, vextir á lánum margfalt hærri en í öðrum löndum, verðbólga allstaðar óstöðvandi, og ég veit ekki hvað og hvað meira. Ég er líklegast að flytja út til Danmörk, Svíþjóðar eða Noregs…

Ég hugsa að ef þú náir inn á fasteignamarkaðinn þá sértu mögulega sneggri að safna þér fyrir fasteign númer 2 en meðalmaðurinn á leigumarkaði að safna sér fyrir fyrstu fasteign.

Harold And Kumar
Tölvutryllir
Póstar: 610
Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
Reputation: 81
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Harold And Kumar » Mið 21. Maí 2025 18:31

rostungurinn77 skrifaði:
Harold And Kumar skrifaði:Ég sem tvítugur einstaklingur get ekki séð raunverulega fyrir mér að eiga heima á Íslandi ef þetta heldur svona áfram… húsnæðisverð ein og sér eru himinhá, vextir á lánum margfalt hærri en í öðrum löndum, verðbólga allstaðar óstöðvandi, og ég veit ekki hvað og hvað meira. Ég er líklegast að flytja út til Danmörk, Svíþjóðar eða Noregs…

Ég hugsa að ef þú náir inn á fasteignamarkaðinn þá sértu mögulega sneggri að safna þér fyrir fasteign númer 2 en meðalmaðurinn á leigumarkaði að safna sér fyrir fyrstu fasteign.

Algjörlega… en það er samt sem áður mikið fjárhagslega öruggara að kaupa húsnæði í bókstaflega öllum öðrum norðurlöndum.

Ryzen 7 7800X3d
RTX 3080 10Gb
32gb ddr5 6000MTS
1440p 180hz

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Mið 21. Maí 2025 19:08

Harold And Kumar skrifaði:Algjörlega… en það er samt sem áður mikið fjárhagslega öruggara að kaupa húsnæði í bókstaflega öllum öðrum norðurlöndum.

Tjahh. Miðað við að fasteignaverð hefur hækkað vel umfram verðlag á Íslandi þá er ég ekkert viss um að fjárfestingin sé svo slæm.

Hins vegar er þetta ekki beint epli og epli samanburður.

Í Svíþjóð virðast t.d. 60% fólks vera fasteignaeigendur(eða búa í eigin húsnæði) á meðan hlutfallið er 75% á Íslandi, 79% í Noregi (heimild wikipedia, já þið megið hlæja).

Það að 60% eigi fasteignir bendir mögulega til þess að það sé erfiðara að eignast fasteign. Ef það er erfitt að eignast fasteign þá er það mögulega vegna þess að það eru strangari kröfur á lántakendur. Strangari kröfur valda því að lántakendur eru líklegri til að greiða af lánunum sínum sem veldur því að kostnaður bankans verður minni og því hægt að bjóða betri lán meim sem fá lán.

Síðan kann vel að vera að þetta sé bara kolrangt.

halldorjonz
</Snillingur>
Póstar: 1029
Skráði sig: Þri 11. Des 2007 21:23
Reputation: 22
Staðsetning: Heima
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf halldorjonz » Mið 21. Maí 2025 23:25

Folk heldur alltaf það se odyrt a norðurlöndunum
Það er hins vegar þægilegt að bera saman verð a höfuðborgarsvæðinu a isl og svo eitthversstaðar ut i sveit i sviþjoð og segja sjaðu sviþjoð er odyrara en td borgarnes vs stockholm þa er isl örgl odyrara :-k

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Fim 22. Maí 2025 08:31

Til að fasteignaverð jafni sig á hækkunum seinustu 20 ára þá þarf þessi markaður a.m.k. 10 ár í kælingu svo fólk fari ekki í þrot.

Það þarf að koma í veg fyrir uppsóp eigna og þessa himinháu leigu, rest mun þá vonandi lagast hægt og rólega.

fhrafnsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 306
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 55
Staða: Tengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf fhrafnsson » Fim 22. Maí 2025 10:18

rostungurinn77 skrifaði:
Harold And Kumar skrifaði:Algjörlega… en það er samt sem áður mikið fjárhagslega öruggara að kaupa húsnæði í bókstaflega öllum öðrum norðurlöndum.

Tjahh. Miðað við að fasteignaverð hefur hækkað vel umfram verðlag á Íslandi þá er ég ekkert viss um að fjárfestingin sé svo slæm.

Hins vegar er þetta ekki beint epli og epli samanburður.

Í Svíþjóð virðast t.d. 60% fólks vera fasteignaeigendur(eða búa í eigin húsnæði) á meðan hlutfallið er 75% á Íslandi, 79% í Noregi (heimild wikipedia, já þið megið hlæja).

Það að 60% eigi fasteignir bendir mögulega til þess að það sé erfiðara að eignast fasteign. Ef það er erfitt að eignast fasteign þá er það mögulega vegna þess að það eru strangari kröfur á lántakendur. Strangari kröfur valda því að lántakendur eru líklegri til að greiða af lánunum sínum sem veldur því að kostnaður bankans verður minni og því hægt að bjóða betri lán meim sem fá lán.

Síðan kann vel að vera að þetta sé bara kolrangt.

Gæti líka verið vegna þess að þar er heilbrigðari leigumarkaður. Mun fleiri sem velja að kaupa ekki vegna þess að það er góður kostur að leigja, annað en hér á landi.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Fim 22. Maí 2025 10:43

fhrafnsson skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:
Harold And Kumar skrifaði:Algjörlega… en það er samt sem áður mikið fjárhagslega öruggara að kaupa húsnæði í bókstaflega öllum öðrum norðurlöndum.

Tjahh. Miðað við að fasteignaverð hefur hækkað vel umfram verðlag á Íslandi þá er ég ekkert viss um að fjárfestingin sé svo slæm.

Hins vegar er þetta ekki beint epli og epli samanburður.

Í Svíþjóð virðast t.d. 60% fólks vera fasteignaeigendur(eða búa í eigin húsnæði) á meðan hlutfallið er 75% á Íslandi, 79% í Noregi (heimild wikipedia, já þið megið hlæja).

Það að 60% eigi fasteignir bendir mögulega til þess að það sé erfiðara að eignast fasteign. Ef það er erfitt að eignast fasteign þá er það mögulega vegna þess að það eru strangari kröfur á lántakendur. Strangari kröfur valda því að lántakendur eru líklegri til að greiða af lánunum sínum sem veldur því að kostnaður bankans verður minni og því hægt að bjóða betri lán meim sem fá lán.

Síðan kann vel að vera að þetta sé bara kolrangt.

Gæti líka verið vegna þess að þar er heilbrigðari leigumarkaður. Mun fleiri sem velja að kaupa ekki vegna þess að það er góður kostur að leigja, annað en hér á landi.

Leigumarkaðurinn í Svíþjóð er skondin skepna. Hann lítur líklegast mjög vel út á pappírunum.

Hins vegar er raunin önnur þar sem flestir sem þangað koma leigja af leigjendum sem setja íbúðirnar í framleigu. Biðtíminn eftir að komast í leigu er síðan mældur í árum. RÚV var að sýna einhverja þætti um þríbura sem eru að taka litlar íbúðir í gegn og gera þær hæfar fyrir pör. Nær undantekningarlaust voru íbúarnir að leigja framleigða íbúð.

KristinnK
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf KristinnK » Fim 22. Maí 2025 13:45

halldorjonz skrifaði:Folk heldur alltaf það se odyrt a norðurlöndunum
Það er hins vegar þægilegt að bera saman verð a höfuðborgarsvæðinu a isl og svo eitthversstaðar ut i sveit i sviþjoð og segja sjaðu sviþjoð er odyrara en td borgarnes vs stockholm þa er isl örgl odyrara :-k

Algjörlega. Maður sem ég þekki keypti íbúð í fjölbýlishúsi í úthverfi í Svíþjóð árið 2019. Íbúðin kostaði yfir 100 millur! Á þeim tíma fengust einbýlishús í Reykjavík á því verði.

Hins vegar þá er Reykjavíkursvæðið alveg sérstaklega viðkvæmt fyrir því sem veldur þessum gríðarlegu verðhækkunum á húsnæði í öllum vestrænum löndum: aðflutningi fólks. Það er gríðarleg eftirsókn í að búa á Íslandi, og nær allir sem koma hingað koma á höfuðborgarsvæðið. Og þar sem Ísland er svo fámennt land þá er fólkfjölgunin hlutfallslega miklu meiri en annars staðar, sem verður til þess að hækkanirnar hafa verið meiri hér en á mörgum öðrum stöðum á síðustu ári.

Eina leiðin til að fasteignaverð fari í einhverjar eðlilegar skorður er að byggja minnst 40-50 þúsund íbúðir á næstu örfáu árum, og halda áfram að byggja til að halda í við fólksfjölgunina, eða að hætta að taka á móti svona mikið af aðfluttu fólki. Af tvennu óframkvæmanlegu veit ég ekki hvort er ólíklegra til að verða að veruleika.

AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf nidur » Fim 22. Maí 2025 15:03

Nýbyggingar eru dýrar í byggingu, verðið er ekkert á leiðinni niður.

Aðföng og mannafli eru alltaf að hækka í verði, hvað ætli standi mikið eftir 10-15% fyrir byggingaraðilann.

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1473
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 177
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Lexxinn » Lau 24. Maí 2025 21:46

nidur skrifaði:Nýbyggingar eru dýrar í byggingu, verðið er ekkert á leiðinni niður.

Aðföng og mannafli eru alltaf að hækka í verði, hvað ætli standi mikið eftir 10-15% fyrir byggingaraðilann.

Það er nú alþekkt að sumir verktakar vilja frekar liggja á hátt verðsettum íbúðum í nýbyggingum sem seljast ekki frekar en að lækka þær um 2-3milljónir og láta reyna á sölu.

Ef ég man rétt minnir mig einnig að enginn iðnaður á Íslandi sé jafn arðbær og byggingariðnaðurinn, er með 33% aftan í hausnum á mér af eitthverri ástæðu.
Síðast breytt af Lexxinn á Lau 24. Maí 2025 22:07, breytt samtals 1 sinni.