Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Allt utan efnis

Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

42
38%
Nei
42
38%
Veit ekki
28
25%
 
Samtals atkvæði: 112


Höfundur
mikkimás
Tölvutryllir
Póstar: 616
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 125
Staða: Ótengdur

Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf mikkimás » Fös 14. Feb 2025 20:31




Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 15. Feb 2025 09:52

Maður skoðar það , gekk vel seinast.
Keypti fyrir 700.000 kr og hagnaðist um 126.404 kr (18,04%) stuttu seinna þegar ég seldi.
Síðast breytt af Hjaltiatla á Lau 15. Feb 2025 10:10, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Lau 15. Feb 2025 11:07

Veltur það ekki á útboðsgenginu hvort svarið er já eða nei?
Ef núverandi markaðsverð verður notað þá er engin ávinningur fyrir okkur að kaupa.

Ef þeir selja undir markaðsverði þá er mögulegur ávinningur fyrir braskara að kaupa en á sama tíma væri skárra fyrir ríkið að eiga bankann.




vatr9
Nörd
Póstar: 124
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 44
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf vatr9 » Lau 15. Feb 2025 11:12

Skil ég rétt að minnsti skammtur er 2 millur fyrir einstaklinga. Sem sagt þarf að eiga 2 millur sem þú ætlar ekki að nota á næstunni.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 15. Feb 2025 11:20

vatr9 skrifaði:Skil ég rétt að minnsti skammtur er 2 millur fyrir einstaklinga. Sem sagt þarf að eiga 2 millur sem þú ætlar ekki að nota á næstunni.

Það er undir liðnum Tilboðsbók B þetta lágmark en grunar að flestir einstaklingar notfæri sér Tilboðsbók A fyrir allt að 20 m.kr. Hvert lágmarkið þar verður er ekki enn komið fram en í seinasta útboði var lágmarkið 50 þúsund krónur.

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=cb682436-c787-11eb-813a-005056bc8c60


Just do IT
  √

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Þri 13. Maí 2025 09:27

Út­boðið á ríkis­hlutum í Ís­lands­banka hafið
https://www.visir.is/g/20252725497d/ut-bodid-a-rikis-hlutum-i-is-lands-banka-hafid

Ætlið þið að versla ?


Just do IT
  √

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 13. Maí 2025 09:38

Í tilboðsbók A er fast verð, 106,56 kr. á hlut.


Þetta á að vera besta verðið, en hvert er virði hluta í dag?



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Þri 13. Maí 2025 09:41

rostungurinn77 skrifaði:
Í tilboðsbók A er fast verð, 106,56 kr. á hlut.


Þetta á að vera besta verðið, en hvert er virði hluta í dag?


114.5 , var í 107 fyrir ekki svo löngu síðan. Ekkert brjálaður afsláttur.
https://keldan.is/Markadir/Hlutabref/ISB


Just do IT
  √

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6554
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 529
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf worghal » Þri 13. Maí 2025 09:48

Hjaltiatla skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:
Í tilboðsbók A er fast verð, 106,56 kr. á hlut.


Þetta á að vera besta verðið, en hvert er virði hluta í dag?


114.5 , var í 107 fyrir ekki svo löngu síðan. Ekkert brjálaður afsláttur.
https://keldan.is/Markadir/Hlutabref/ISB

þetta er bara afsláttur fyrir þá sem kaupa fyrir miljónir :fly


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Þri 13. Maí 2025 10:11

106.56 er frekar hátt miðað við að gengið rokkar á milli 112 og 114 þessa dagana. Að því sögðu þá er þetta svo sem engin áhætta. Bara lítill ávinningur nema þú sért með háar fjárhæðir.

Síðasta útboðsgengi var 79 og fór hæst í ~135
Ég seldi í sept 2023 á 112.5 og gengið er búið að vera nokkuð stöðugt síðan þá.



Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 13. Maí 2025 11:24

Tilboðsbók A er með föstu verði og einstaklingar mega kaupa frá 100 þúsund upp að 20 milljónum.

Gefið að ég keypti 187687 hluti fyrir 20 milljónir og gæti selt þá á genginu 112.5 eða 114 þá væri ég að fá 1.1 eða 1.4 í söluhagnað.

Eða svona um það bil 7% hagnað. Skiptir engu hvort viðskiptin eru fyrir 20 milljónir eða 200 þúsund.

Ef þetta eru tölurnar sem um ræðir þá er peningurinn að skila svipuðu eða meiru á bankabók.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Þri 13. Maí 2025 13:29

rostungurinn77 skrifaði:Tilboðsbók A er með föstu verði og einstaklingar mega kaupa frá 100 þúsund upp að 20 milljónum.

Gefið að ég keypti 187687 hluti fyrir 20 milljónir og gæti selt þá á genginu 112.5 eða 114 þá væri ég að fá 1.1 eða 1.4 í söluhagnað.
Eða svona um það bil 7% hagnað. Skiptir engu hvort viðskiptin eru fyrir 20 milljónir eða 200 þúsund.
Ef þetta eru tölurnar sem um ræðir þá er peningurinn að skila svipuðu eða meiru á bankabók.

Sóri munurinn er sá að þú færð þessi 7% strax, en á bankabókinni þarftu að bíða í ár, sem þýðir að þú getur sett hagnaðinn inn á bankabók og ávaxtað hann með þessum 7%.
Eða átt bréfin og fengið arðgreiðslur, ég fékk tvisvar sinnum 75k í aðrgreiðslur á þessa milljón sem ég keypti síðast. En þá átti ég fleiri hluti þar sem hver hlutur var ódýrari.



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Þri 13. Maí 2025 13:40

Þarf ekki að bíða í 30 daga með þessi bréf áður en að þá má selja hlutabréfin.

Einnig, fannst mér að ríkið væri að losa sig alveg út, en þeir ætla að eiga 25% hlut áfram. (heyrði þetta út undan mér, er ekki með þetta staðfest.)



Skjámynd

russi
Geek
Póstar: 803
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 196
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf russi » Þri 13. Maí 2025 13:50

Gengið var 115 kl 10 í morgun, er núna þegar klukkan er að verða 14:00 komið í 110.50.
Afslátturinn fuðrar upp :D

En miðað við síðustu útboð þá fór þetta á smá ferð þegar bréfin voru afhent, það er hægt að veðja á það gerist aftur og taka smá auka aur á bókina sína. Bara að hafa í huga að kostnaður er fastur við sýsl á bréfum og því borgar sig ekki að vinna með lágmarks upphæðir



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Mið 14. Maí 2025 10:24

Verð nú að segja að það er ekkert aðlaðandi við það að kaupa þessi bréf.

Ekki nema kannski ef maður vill halda þeim í nokkur ár.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 14. Maí 2025 12:35

Ég skráði mig fyrir hlut uppá 1.000.000 kr í þetta skiptið. Líklega ekki sama plan og seinast að kaupa og selja strax aftur. Reikna með að halda í bréfin eitthvað áfram. Sjáum hvað setur :D


Just do IT
  √


Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Dr3dinn » Mið 14. Maí 2025 12:36

Finnst þetta bara ekki nógu spennandi, afslátturinn er lítil miðað við áhættuna að eiga bréfin + núverandi gengi bréfanna.

Átti fyrri bréfin lengi ágætis arðgreiðslur (samt lægri en vextir í banka) en hækkanir rosalega litlar miðað við erlendis tesla/micro/nvida etc, áhætta vs hagnaður finnst mér bara ekki nógu spennandi.


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf rostungurinn77 » Mið 14. Maí 2025 14:00

GuðjónR skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:Tilboðsbók A er með föstu verði og einstaklingar mega kaupa frá 100 þúsund upp að 20 milljónum.

Gefið að ég keypti 187687 hluti fyrir 20 milljónir og gæti selt þá á genginu 112.5 eða 114 þá væri ég að fá 1.1 eða 1.4 í söluhagnað.
Eða svona um það bil 7% hagnað. Skiptir engu hvort viðskiptin eru fyrir 20 milljónir eða 200 þúsund.
Ef þetta eru tölurnar sem um ræðir þá er peningurinn að skila svipuðu eða meiru á bankabók.

Sóri munurinn er sá að þú færð þessi 7% strax, en á bankabókinni þarftu að bíða í ár, sem þýðir að þú getur sett hagnaðinn inn á bankabók og ávaxtað hann með þessum 7%.
Eða átt bréfin og fengið arðgreiðslur, ég fékk tvisvar sinnum 75k í aðrgreiðslur á þessa milljón sem ég keypti síðast. En þá átti ég fleiri hluti þar sem hver hlutur var ódýrari.


Tveir fuglar í skógi og einn í hendi.

Kjarni málsins er sá hver hlutur kostar það sama óháð því hvort þú kaupir fyrir eina milljón eða 20 og hagnaðurinn eða tapið af sölu bréfa er því sá sami per hlut.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Mið 14. Maí 2025 14:08

Vitiði hvernig það virkar, þurfa einstaklingar að vera fjárráða til að bjóða í eða mega krakkar undir 18 ára fjárfesta í bankanum með sparifénu sínu?
Og væntanlega er þett eins og síðast, verður að fara í gegnum Íslansbanka sem stofnar vörslureikning sem kostar 3700 kr. á ári ef ég man rétt?



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Mið 14. Maí 2025 14:48

Getur stofnað vörslureikning á mörgum stöðum, kostar minnst 3-4 þús á ári eða 0,04%
Síðast breytt af nidur á Mið 14. Maí 2025 14:49, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fim 15. Maí 2025 12:15

Vitið þið hvað gerist ef maður tekur þátt í útboði, skráir sig fyrir hlut, fær greiðsluseðil en borgar svo ekki.
Fara hlutirnir þá aftur í sölu eða fer reikningurinn í innheimtu?



Skjámynd

C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 25
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf C2H5OH » Fim 15. Maí 2025 12:24

GuðjónR skrifaði:Vitið þið hvað gerist ef maður tekur þátt í útboði, skráir sig fyrir hlut, fær greiðsluseðil en borgar svo ekki.
Fara hlutirnir þá aftur í sölu eða fer reikningurinn í innheimtu?


Hlutirnir fara aftur á sölu, ef þeir seljast svo á lægra verði en uppsett þegar þú pantaðir, þarft þú að borga mismuninn



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fim 15. Maí 2025 12:42

C2H5OH skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vitið þið hvað gerist ef maður tekur þátt í útboði, skráir sig fyrir hlut, fær greiðsluseðil en borgar svo ekki.
Fara hlutirnir þá aftur í sölu eða fer reikningurinn í innheimtu?


Hlutirnir fara aftur á sölu, ef þeir seljast svo á lægra verði en uppsett þegar þú pantaðir, þarft þú að borga mismuninn


Ertu viss um að það virki þannig?



Skjámynd

C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 25
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf C2H5OH » Fim 15. Maí 2025 12:47

GuðjónR skrifaði:
C2H5OH skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vitið þið hvað gerist ef maður tekur þátt í útboði, skráir sig fyrir hlut, fær greiðsluseðil en borgar svo ekki.
Fara hlutirnir þá aftur í sölu eða fer reikningurinn í innheimtu?


Hlutirnir fara aftur á sölu, ef þeir seljast svo á lægra verði en uppsett þegar þú pantaðir, þarft þú að borga mismuninn


Ertu viss um að það virki þannig?


"Ef greiðsla fer ekki fram að fullu innan tilskilins frests samkvæmt greiðsluleiðbeiningum, getur úthlutun útboðshluta verið dregin til baka og útboðshlutirnir seldir til þriðja aðila. Ef slík sala fer fram og söluverð verður lægra en tilboðsgengi í útboðinu, getur sá aðili sem upphaflega fékk úthlutun á útboðshlutum verið ábyrgur fyrir mismuninum."

Stendur í skilmálunum :happy



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fim 15. Maí 2025 13:17

@C2H5OH takk!!!