Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Allt utan efnis
Skjámynd

Sultukrukka
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Fim 26. Des 2002 23:38
Reputation: 56
Staða: Tengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf Sultukrukka » Fim 03. Apr 2025 09:38

Ég ætlaði nú ekki að fara í einhverjar skotgrafir eða standa í einhverjum röksemdafærslum hérna. Þetta er farið að minna fullmikið á pólitíska rýmið, sem ég fagna að sé kominn í sér kategóríu. Mögulega á þessi þráður erindi þangað.

Var einfaldlega að benda á það sem Rapport minnist svo réttilega á að grunnforsenda fyrir velmegun er húsnæði.
Ekki kræsileg tilhugsun að að eiga 98" sjónvarp, með nýjasta Iphoneinn og búa svo í næsta rjóðri.

Hvernig mælir maður velmegun þegar einn stærsti stólpi þess mælikvarða er orðinn ómöguleiki fyrir marga? Ég er ekki með svarið við því.
Síðast breytt af Sultukrukka á Fim 03. Apr 2025 09:50, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rapport » Fim 03. Apr 2025 10:25

Sultukrukka skrifaði:Ég ætlaði nú ekki að fara í einhverjar skotgrafir eða standa í einhverjum röksemdafærslum hérna. Þetta er farið að minna fullmikið á pólitíska rýmið, sem ég fagna að sé kominn í sér kategóríu. Mögulega á þessi þráður erindi þangað.

Var einfaldlega að benda á það sem Rapport minnist svo réttilega á að grunnforsenda fyrir velmegun er húsnæði.
Ekki kræsileg tilhugsun að að eiga 98" sjónvarp, með nýjasta Iphoneinn og búa svo í næsta rjóðri.

Hvernig mælir maður velmegun þegar einn stærsti stólpi þess mælikvarða er orðinn ómöguleiki fyrir marga? Ég er ekki með svarið við því.


Eru öll skoðanaskipti orðin að stjórnmálum?

Koníaksstofan er enn fyrir allt utan efnis.

En ef það á að útskúfa almennri umræðu um fréttir og málefni líðandi stundar... þá er það enn önnur stefnubreytingin.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf Moldvarpan » Fim 03. Apr 2025 11:15

rapport skrifaði:
Sultukrukka skrifaði:Ég ætlaði nú ekki að fara í einhverjar skotgrafir eða standa í einhverjum röksemdafærslum hérna. Þetta er farið að minna fullmikið á pólitíska rýmið, sem ég fagna að sé kominn í sér kategóríu. Mögulega á þessi þráður erindi þangað.

Var einfaldlega að benda á það sem Rapport minnist svo réttilega á að grunnforsenda fyrir velmegun er húsnæði.
Ekki kræsileg tilhugsun að að eiga 98" sjónvarp, með nýjasta Iphoneinn og búa svo í næsta rjóðri.

Hvernig mælir maður velmegun þegar einn stærsti stólpi þess mælikvarða er orðinn ómöguleiki fyrir marga? Ég er ekki með svarið við því.


Eru öll skoðanaskipti orðin að stjórnmálum?

Koníaksstofan er enn fyrir allt utan efnis.

En ef það á að útskúfa almennri umræðu um fréttir og málefni líðandi stundar... þá er það enn önnur stefnubreytingin.


Þegar þú virðir ekki skoðanir annarra, þá fer þetta alltaf sömu leið. Þras sem enginn nennir að standa í, keppast um að eiga síðasta orðið.
Það er allt í lagi að vera ósammála.



Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rostungurinn77 » Fim 03. Apr 2025 12:19

rapport skrifaði:Hvaða mælikvarða setur þú á velmegun þegar þú segir að hún hafi aukist?


Það þarf nú ekki meira en að standa við stofnbraut og horfa á bílana til að sjá að það er velmegun.

Þú getur opnað kortasjá og séð að við einbýlishús eru komnir risasólpallar og heitir pottar.

Þú getur horft á bílastæði við fjölbýlishús sem eru yfirfull vegna þess að fleiri íbúar þeirra eiga bíl

Að sama skapi geturðu skoðað bílastæði framhalds- og háskóla sem eru yfirfull vegna þess að háskólanemar geta rekið bíl.

Þú getur horft á allan fjöldann af verslunum sem eru að selja munaðarvarning sem lifa góðu lífi.

Þú getur meira að segja flett samfélagsmiðlum til að skoða (meint) glanslíf fólks.

Það er ekki bara hægt að tína til einhvern afmarkaðan hóp fólks og segja "sjáðu þau eru ekki að verða rík" og nota það sem rök fyrir því að velmegun sé ekki að aukast.

https://index.prosperity.com/globe/iceland



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rapport » Fim 03. Apr 2025 12:49

rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:Hvaða mælikvarða setur þú á velmegun þegar þú segir að hún hafi aukist?


Það þarf nú ekki meira en að standa við stofnbraut og horfa á bílana til að sjá að það er velmegun.

- Er það mælikvarði á velmegun eða lélegar almenningssamgöngur?
- Þessar tölur segja að vöxturinn undanfarin 20 ár séu 50% bílaleigubílar og að hlutfallslegur fjöldi heimiisbíla hafi í raun ekkert aukist m.v. að það voru 291þ. íbúar 2004 en 390þ. í dag

https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/ ... tisnotkun/
https://hagstofa.is/talnaefni/ibuar/mannfjoldi/yfirlit/


Þú getur opnað kortasjá og séð að við einbýlishús eru komnir risasólpallar og heitir pottar.

Hér er hægt að sjá að einbýli á landinu eru 25,5% allra fasteigna en bara 10,1% íbúða í byggingu.

https://hms.is/gogn-og-maelabord/maelab ... -i-bygging
u


Þú getur horft á bílastæði við fjölbýlishús sem eru yfirfull vegna þess að fleiri íbúar þeirra eiga bíl

Eða að börnin eru ekki að ná að flytja að heiman (er með tvö stk. og fjóra bíla á mínu heimili... í blokk)


Að sama skapi geturðu skoðað bílastæði framhalds- og háskóla sem eru yfirfull vegna þess að háskólanemar geta rekið bíl.

Fjöldi bíla í einkaeigu hefur ekki aukist í 20 ár ená sama tíma hefur þjóðin elst = líklega bara færri börn pr. fjölskyldu og foreldranir að styrkja þetta.

En 1997 þegar ég var í menntó þá voru allflestir á bílum


Þú getur horft á allan fjöldann af verslunum sem eru að selja munaðarvarning sem lifa góðu lífi.

Sérverslunum hefur farið fækkandi, svakalega og umtalað að það sé ekki einusinni hægt að reka verlsun á Laugaveginum og rekstrargrundvöllur í Kringlunni og Smáralind sé oft tæpur, sérstaklega fyrri sérverslanir.

Ég er alinn upp í 101 og Laugavegurinn er engin verslunargata lengur, ekkert ein sog hann var 1995. Núna eru þarna veitingastaðir og lundabúðir.


Þú getur meira að segja flett samfélagsmiðlum til að skoða (meint) glanslíf fólks.

Já, trúi þessari glansmynd ekki. Trúi ekki að einhver kaupi þetta hrátt.


Það er ekki bara hægt að tína til einhvern afmarkaðan hóp fólks og segja "sjáðu þau eru ekki að verða rík" og nota það sem rök fyrir því að velmegun sé ekki að aukast.

Velmegun er hagfræðihugtak, ég hefði haldið að þú mudnir tiltaka aukinn kaupmátt eða eitthvað fullroðins sem rök fyrir þessum pælingum þínum.

En kaupmáttur eykt að sjálfsögðu ekki þegar 60-80% útgjalda er húsaleiga eða húsnæðsilán og fasteignir eru að hækka langt umfram almennt verðlag.



https://index.prosperity.com/globe/iceland




KristinnK
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf KristinnK » Fim 03. Apr 2025 17:18

Ég myndi segja að þrátt fyrir fasteignamarkaðinn ríkir samt meiri almenn velmegun í dag en hvenær sem er í fortíðinni. Allar vörur eru miklu ódýrari í dag miðað við fjölda unninna vinnustunda en áður fyrr, sérstaklega fyrir láglaunafólk (það eru sumir hópar eins og sérfræðingar í opinbera geiranum sem hafa staðið í stað síðustu ~20 ár, en það er undantekningin, og velmegun hjá þeim hópum er samt miklu meiri en áður ef maður fer lengra aftur í tímann), og munurinn þeim mun meiri því lengra sem farið er aftur í tímann. Sem bara eitt pínkulítið dæmi þá voru húsgögn eitthvað sem fólk safnaði sér fyrir áður fyrr. Í dag er það eitthvað sem fólk kaupir bara hvenær sem það sýnist.

Húsnæðisverð er í raun birtingarmynd þessarar aukinnar velmegunar. Vegna þess hvað allt sem fólk hefur þörf á eða getur langað í er svo ódýrt miðað við laun þá getur það varið sífellt stærri hluta tekna sinna til húsnæðiskaupa. En vegna þess að húsnæðismarkaðurinn hefur bara fast framboð, sem er langtum minna en eftirspurnin, þá hefur það leitt til gríðarlegra hækkana á húsnæðismarkaðinum þegar allir keppast um hverja eign með því að verja sífellt stærri hluta tekna sinna í það. Þannig ef fólk hefði ekki almennt svona meira milli handanna en áður þá hefðu verð ekki aukist svona mikið.

(Færa má rök fyrir því að covidfaraldurinn olli ákveðnum vatnaskilum í þessum efnum. Fólk hafði almennt ekki vanist því að verja eins stórum hluta tekna sinna til fasteignakaupa eins og í dag. En þegar fólk gat í þónokkurn tíma ekki eytt peningum í mikið annað, varði meiri tíma en áður á heimili sínu, og vaxtir þar að auki lágir, jókst vilji kaupenda til að verja stærri hluta tekna sinna í fasteignakaup. Þó svo vextir eru núna ekkert lægri en þeir voru fyrir faraldurinn, og laun ekkert mikið hærri, þá eru fasteignaverð beinlínis tvisvar sinnum hærri nú en fyrir faraldurinn.)

Auðvitað er ekkert af þessu til góða, og það er sannarlega hætta á því að samkeppni um fasteignir beinlínis éti upp alla almenna velmegunaraukningu sem verður, ef auknar tekjur einstaklinga verða einfaldlega til þess að auka fasteignakostnað til jafns með samkeppninni um hverja eign. En velmegun er samt meiri í dag en áður fyrr. Eina lausnin er að byggja miklu, miklu meira. Byggja á minnsta kosti tvö stór ný hverfi á höfuðborginni til jafns við Breiðholtið, og svo halda áfram að bæta við.


AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rapport » Fös 04. Apr 2025 14:16

Ef að fólk skoðar bara undirvísitölur vísitölu neysluverðs þá sést að byggingarefni hefur ekki hækkað nema brotabrot af því sem fasteignaverð hefur hækkað... en mismunurinn er náttúrlega lóðaverð sem hefur snarhækkað en svo er það skorturinn á íbúðum sem keyrir verð upp úr öllu valdi.

En Íslendingar hafa alltaf notið nokkurrar velmegun, hér áttu öll heimili sjónvarp, videotæki, afruglara, heimilistölvu og internet komst mjög hratt inn á hvert heimili...

Velmegun hefur minnkað því að verst settu hópar samfélagsins hafa það verra í dag en áður.

Almenna velmegun samfélags á ekki að mæla út frá þeim sem hafa það best, heldur þeim sem hafa það verst.



Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rostungurinn77 » Sun 06. Apr 2025 01:26

rapport skrifaði:- Þessar tölur segja að vöxturinn undanfarin 20 ár séu 50% bílaleigubílar og að hlutfallslegur fjöldi heimiisbíla hafi í raun ekkert aukist m.v. að það voru 291þ. íbúar 2004 en 390þ. í dag

Bílar í rekstrarleigu teljast væntanlega ekki til heimilisbíla. Þeir eru hins vegar margir og eru allir í eigu bílaleiga vænti ég.




rapport skrifaði:Hér er hægt að sjá að einbýli á landinu eru 25,5% allra fasteigna en bara 10,1% íbúða í byggingu.

https://hms.is/gogn-og-maelabord/maelab ... -i-bygging


Þó ekki nema 10%.

Dágóður hluti einbýla á landinu er úti á landi. Þar er lítið sem ekkert verið að byggja (ì flestum þorpum) og hefur ekki verið byggt í mörg ár eða áratugi.

Þess utan eru það sveitarfélögin sem stýra skipulaginu og úthluta lóðunum.

Þegar lóðir eru seldar hæstbjóðanda og einbýlishúsalóðir eru farnar að kosta hátt í hundrað milljónir eða meira þá er þetta ekki bara 10% af fasteingum í byggingu.

Sérverslunum hefur farið fækkandi, svakalega og umtalað að það sé ekki einusinni hægt að reka verlsun á Laugaveginum og rekstrargrundvöllur í Kringlunni og Smáralind sé oft tæpur, sérstaklega fyrri sérverslanir.

Ég er alinn upp í 101 og Laugavegurinn er engin verslunargata lengur, ekkert ein sog hann var 1995. Núna eru þarna veitingastaðir og lundabúðir.


Ég veit ekki af hverju verslanir í 101 ættu að plumma sig sérstaklega vel. Þær eru langt úr alfaraleið fyrir flesta sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Það er auk þess ekki mjög þægilegt að komast þangað á bíl. Þess utan eru þessar verslanir í samkeppni við lundabúðir eða annað sambærilegt sem eru að þjónusta þá sem eru fjölmennastir á svæðinu. Sem merkilegt nokk eru túristarnir.

Það er því ekkert óeðlilegt að verslanir séu að flýja dýrt leiguhúsnæði sem er auk þess ekki á með góða staðsetningu.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rapport » Mán 07. Apr 2025 09:24

rostungurinn77 skrifaði:
rapport skrifaði:- Þessar tölur segja að vöxturinn undanfarin 20 ár séu 50% bílaleigubílar og að hlutfallslegur fjöldi heimiisbíla hafi í raun ekkert aukist m.v. að það voru 291þ. íbúar 2004 en 390þ. í dag

Bílar í rekstrarleigu teljast væntanlega ekki til heimilisbíla. Þeir eru hins vegar margir og eru allir í eigu bílaleiga vænti ég.

Gögnunum í töflunni er lýst sem "Ef ökutækjum er skipt niður eftir umráðanda, er hlutur heimila langstærstur."




rapport skrifaði:Hér er hægt að sjá að einbýli á landinu eru 25,5% allra fasteigna en bara 10,1% íbúða í byggingu.

https://hms.is/gogn-og-maelabord/maelab ... -i-bygging


Þó ekki nema 10%.

Dágóður hluti einbýla á landinu er úti á landi. Þar er lítið sem ekkert verið að byggja (ì flestum þorpum) og hefur ekki verið byggt í mörg ár eða áratugi.

Þess utan eru það sveitarfélögin sem stýra skipulaginu og úthluta lóðunum.

Þegar lóðir eru seldar hæstbjóðanda og einbýlishúsalóðir eru farnar að kosta hátt í hundrað milljónir eða meira þá er þetta ekki bara 10% af fasteingum í byggingu.

Þú varst að tala um að velmegun væri svo mikil að einbýlishúsum sé að fjölga... tölurnar segja allt aðra sögu... og þetta eru 10% íbúða í byggingu sama hvað þetta kostar... og ekki nóg með það þá eru einbýli yfirleitt mun lengur í byggingu en blokkir því að fólk er með þetta óklárað áratugum saman = einb´li í byggingu þyrftu að vera mun hærri en 25% af öllum íbúðum í byuggingu ef þeim væri að fjölga.


Sérverslunum hefur farið fækkandi, svakalega og umtalað að það sé ekki einusinni hægt að reka verlsun á Laugaveginum og rekstrargrundvöllur í Kringlunni og Smáralind sé oft tæpur, sérstaklega fyrri sérverslanir.

Ég er alinn upp í 101 og Laugavegurinn er engin verslunargata lengur, ekkert ein sog hann var 1995. Núna eru þarna veitingastaðir og lundabúðir.


Ég veit ekki af hverju verslanir í 101 ættu að plumma sig sérstaklega vel. Þær eru langt úr alfaraleið fyrir flesta sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Það er auk þess ekki mjög þægilegt að komast þangað á bíl. Þess utan eru þessar verslanir í samkeppni við lundabúðir eða annað sambærilegt sem eru að þjónusta þá sem eru fjölmennastir á svæðinu. Sem merkilegt nokk eru túristarnir.

Það er því ekkert óeðlilegt að verslanir séu að flýja dýrt leiguhúsnæði sem er auk þess ekki á með góða staðsetningu.

Velmegun er svo mikil að sérverslanir geta ekki lengur hópað sig saman í verslanakjörnum eða Laugaveginum... því það er of dýrt. Er það merki um velmegun?




Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rostungurinn77 » Mán 07. Apr 2025 18:48

Nú sit ég hér og velti fyrir mér hvort ég sé ófær um að skilja skrifaðan texta eða hvort þú ert að misskilja svona hrapalega rapport.

Á síðunni sem þú vísaðir í um fjölda bíla kemur þetta fram.

Fjöldi ökutækja sem skráð voru á heimili hefur vaxið frá 1995 til ársins 2018. Þetta þýðir að fjögun ökutækja er umfram fólksfjölgun í landinu.


Ennfremur kemur þetta fram

Tafla 1: Fjöldi einstaklinga (í janúar) á móti fjölda bíla sem skráðir eru í notkun heimila (í ágúst)
1995 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018
Mannfjöldi 1. janúar/þúsund 267,0 268,0 272,4 279,0 286,6 290,6 299,9 315,5 317,6 319,6 325,7 332,5 348,5
Ökutæki á heimilum/þúsund 119,1 122,7 134,0 151,7 155,3 164,3 183,8 198,2 192,8 194,7 198,3 208,2 229,5
Bílar á þúsund einstaklinga 446,1 457,9 491,9 543,6 541,8 565,3 612,8 628,2 607,1 609,2 608,8 626,1 658,7


Nú minnist ég þess ekki að hafa sagt að einbýlishúsum væri að fjölga neitt sérstaklega eða hlutfallslega. Hvar sagði ég það rapport?. Ég benti hins vegar á að þau væru að verða íburðarmeiri, samanber stóra sólpalla og heita potta.

Þess utan þá veit ég ekki af hverju þú ert að gera laugaveg og kringluna að einhverri forsendu fyrir því að selja munaðarvarning. Laugarvegurinn er túristagildra og kringlan er mest megnis fata og smátækjaverslun.

Það er nóg af verslunum sem t.d. eru að selja mjög dýrar innréttingar í fasteignir eða dýr leiktæki fyrir fullorðna, jafnvel pjatt og pjátur fyrir gæludýr. Þær eru hins vegar ekki í Kringlunni eða Laugarvegi vegna þess að þær þurfa ekki að vera þar. Verslunarmiðstöðvar eru og verða dýrar staðsetningar með fyrirsjáanlega fyrirtækjaveltu.

Það gerist hins vegar vissulega að breytingar á neysluhegðun hefur áhrif á ákveðnar verslanir. Þannig hefur líklega snjallsíminn gjörbreytt tveimur geirum. Annars vegar sölu á myndavélum sem hefur mikið dregist saman af eftir að hafa verið heitasta kartaflan í kringum hrun og samhliða þeim samdrætti er samdráttur á framköllun eða prentun. Hins vegar (væntanlega) sölu á tölvubúnaði sem er í stífri samkeppni við bæði snjallsímann og leikjatölvurnar.

Það er ekkert óeðlilegt við þetta og segir ekkert um það hvort eða hversu mikil velmegun er.



Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vinkill í umræðuna um ástand nútímans

Pósturaf rapport » Mán 07. Apr 2025 20:40

rostungurinn77 skrifaði:Nú sit ég hér og velti fyrir mér hvort ég sé ófær um að skilja skrifaðan texta eða hvort þú ert að misskilja svona hrapalega rapport.

Á síðunni sem þú vísaðir í um fjölda bíla kemur þetta fram.

Fjöldi ökutækja sem skráð voru á heimili hefur vaxið frá 1995 til ársins 2018. Þetta þýðir að fjögun ökutækja er umfram fólksfjölgun í landinu.


Ennfremur kemur þetta fram

Tafla 1: Fjöldi einstaklinga (í janúar) á móti fjölda bíla sem skráðir eru í notkun heimila (í ágúst)
1995 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018
Mannfjöldi 1. janúar/þúsund 267,0 268,0 272,4 279,0 286,6 290,6 299,9 315,5 317,6 319,6 325,7 332,5 348,5
Ökutæki á heimilum/þúsund 119,1 122,7 134,0 151,7 155,3 164,3 183,8 198,2 192,8 194,7 198,3 208,2 229,5
Bílar á þúsund einstaklinga 446,1 457,9 491,9 543,6 541,8 565,3 612,8 628,2 607,1 609,2 608,8 626,1 658,7


Nú minnist ég þess ekki að hafa sagt að einbýlishúsum væri að fjölga neitt sérstaklega eða hlutfallslega. Hvar sagði ég það rapport?. Ég benti hins vegar á að þau væru að verða íburðarmeiri, samanber stóra sólpalla og heita potta.

Þess utan þá veit ég ekki af hverju þú ert að gera laugaveg og kringluna að einhverri forsendu fyrir því að selja munaðarvarning. Laugarvegurinn er túristagildra og kringlan er mest megnis fata og smátækjaverslun.

Það er nóg af verslunum sem t.d. eru að selja mjög dýrar innréttingar í fasteignir eða dýr leiktæki fyrir fullorðna, jafnvel pjatt og pjátur fyrir gæludýr. Þær eru hins vegar ekki í Kringlunni eða Laugarvegi vegna þess að þær þurfa ekki að vera þar. Verslunarmiðstöðvar eru og verða dýrar staðsetningar með fyrirsjáanlega fyrirtækjaveltu.

Það gerist hins vegar vissulega að breytingar á neysluhegðun hefur áhrif á ákveðnar verslanir. Þannig hefur líklega snjallsíminn gjörbreytt tveimur geirum. Annars vegar sölu á myndavélum sem hefur mikið dregist saman af eftir að hafa verið heitasta kartaflan í kringum hrun og samhliða þeim samdrætti er samdráttur á framköllun eða prentun. Hins vegar (væntanlega) sölu á tölvubúnaði sem er í stífri samkeppni við bæði snjallsímann og leikjatölvurnar.

Það er ekkert óeðlilegt við þetta og segir ekkert um það hvort eða hversu mikil velmegun er.


Ég hef greinilega ekki lesið þetta nógu vel sjálfur, var að lesa rangt úr myndinni en skoðaði ekki töfluna og það er rétt hjá þér, ég dróg rangar ályktanir.

Ég féll líka í þá gryfju að nota tölur um bíla 2018 og mannfjölda 2025, var greinilega að flýta mér of mikið.

Það stenst því heldur ekki það sem ég sagði um fjölgun bíla héldi ekki í við öldrun þjóðarinnar, að þó að við hugsum um að hlutfall fólks 17+ hafi farið úr 72,2% mannfjöldans 1995 og 77,9% 2018 (79,4% í dag) þá hefur veginn fjöldi bíla aukist umtalsvert meira.

Einhver nostalgía dróg svo Laugaveginn og Kringluna inn í umræðuna, margri verslanaeigendur sem maður þekkir sem hafa verið að segja manni sögur af því hvernig verslun hefur breyst og sérstaklega sérverslana (sérð það bara best hér á Vaktinni á úrvali tölvuverslana). En það er heldur ekki mælikvarði á velmegun.

En ég er enn á þeirri skoðun að almenn velmegun sé minni í samfélaginu í dag, ég hef aldrei áður séð jafn mikla fátækt og örvinglun hjá fólki, úrræðaleysi og það sem verst er, ég sé fólk í góðum stöðum kvabba og kveina yfir "þessu fólki".

Í samfélaginu í dag upplifi ég sterklega þær skoðanir og fordóma sem endurspeglast t.d. í "Grave of the fireflies" sem er nýlega orðin aðgengileg á íslenska Netflix og fæ illt við tilhugsunina um að fólk ætli að loka augunum gagnvart þessu vandamáli.

Fyrir mér er velmegun mæld með því að skoða hvernig þeir verst settu hafa það.

Það er meiri auðsöfnun og meiri einkaneysla á Íslandi í dag en oft áður EN bgilið milli ríkra og fátækra er að stækka, þeir fátæku eru fátækari en þeir ríku eru miklu miklu ríkari.