Kveðjum Emil Vals (emmi)

Allt utan efnis

Höfundur
bjoggi
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Mið 27. Ágú 2003 20:35
Reputation: 26
Staða: Ótengdur

Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf bjoggi » Fim 16. Jan 2025 22:40

Í morgun er ég fletti í gegnum moggann, sem mér berst stundum frítt á fimmtudögum, brá mér heldur mikið í brún að sjá mynd af elsku Emil Valssyni ( emmi ) í minningargreinunum.

Ég vil nýta tækifærið og minnast hans, líklega þekkja margir til hans hér á Vaktinni þar sem hann er búinn að vera virkur meðlimur í meira en 22 ár.

Við Emil kynntumst á Maclantic, en það var Mac spjallborð og fréttavefur síns tíma sem ég rak í mörg ár (stofnað 2005).

Leið okkar lá saman tengt Mac og tæknimálum og hann var ótrúlegur í netmálum og allt tengt vefsíðum og hýsingum.
Á tímabili rak hann sinn eigin vefþjón og hýsingu og leyfði mér að hýsa síður þar án nokkurs tilkostnaðar.

Hann var ótrúlega góð sál, gott að spjalla við og ótrúlega hjálpsamur í allt og öllu.

Mér er minnisstætt þegar hann sendi mér skilaboð um að hafa verið lagður inn á spítala fyrir einhverjum 8 árum síðan líklega með hættulega hátt gildi í blóðsykri, þrátt fyrir það þá ætlaði hann að halda áfram að hjálpa mér en ég sagði honum að heilsan væri nú númer eitt og hætta að spá í einhverjum tæknimálum. En hann gat ekki hamið sig og varð að klára málið. Það segir ansi margt.

Blessuð sé minning hans og það er sárt að hugsa til þess að litli strákurinn hans hafi þurft að kveðja pabba sinn svona ungur.

Hugsa til þín Emmi, þú varst frábær!




Opes
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 12:02
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Opes » Fim 16. Jan 2025 22:47

Man eftir honum, fróðleiksríkur gaur sem skrifaði vel á Vaktinni og Maclantic. Var með x.is og hann var ekkert smá gjafmildur og gaf mér pláss á vefþjóni um einhvern tíma. Blessuð sé minning hans.
Síðast breytt af Opes á Fim 16. Jan 2025 22:47, breytt samtals 1 sinni.




Televisionary
FanBoy
Póstar: 751
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 155
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Televisionary » Fim 16. Jan 2025 23:17

Leiðinlegt að sjá þetta. Ég átti stundum í viðskiptum við hann og aldrei kom maður að tómum kofanum þegar maður sagði í hvaða pælingum maður væri.

Blessuð sé minning Emma.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3860
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 267
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Tiger » Fös 17. Jan 2025 00:02

Blessuð sé minning hans.

Hann einmitt hýsti hitt og þetta fyrir mig frítt lengi vel, þurfti alveg að snúa uppá hann stundum til að fá að greiða honum fyrir þjónustu og hjálp. Ótrúlega hjálpsamur hérna og leiðinlegt að heyra um andlát hans.




Orri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 951
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 184
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Orri » Fös 17. Jan 2025 00:14

Úff þetta er sárt og erfitt að lesa. Samúðarkveðjur á fjölskyldu og aðstandendur hans.

Það þarf varla að lýsa fyrir meðlimum Vaktarinnar hve mikil áhrif spjallborð sem þessi geta haft á líf manns, en bæði PSX.is og Vaktin höfðu gríðarleg áhrif á mig á mínum unglingsárum, að taka mín fyrstu skref á internetinu, en þökk sé fólki eins og Emil, Guðjóni, og allra þeirra sem halda spjallborðum og vefsíðum sem þessum á lofti tel ég mig töluvert betri manneskju í dag
Síðast breytt af Orri á Fös 17. Jan 2025 17:16, breytt samtals 1 sinni.




Harold And Kumar
Tölvutryllir
Póstar: 610
Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
Reputation: 81
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Harold And Kumar » Fös 17. Jan 2025 00:23

o7


Ryzen 7 7800X3d
RTX 3080 10Gb
32gb ddr5 6000MTS
1440p 180hz


emil40
Kerfisstjóri
Póstar: 1265
Skráði sig: Þri 28. Jún 2016 11:27
Reputation: 191
Staðsetning: Njarðvík
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf emil40 » Fös 17. Jan 2025 16:22

Ég þekkti Emma hérna í gegnum vaktina og hitti hann nokkrum sinnum. Ég var búinn að frétta þetta í gegnum starfskonu hérna á Stapavöllum búsetukjarnanum sem ég bý í en hún og bróðir hans voru par í gamla daga. Ég kunni ekki við að setja þetta hérna inn af tillitsemi við hans nánustu.

Það er mikill missir af honum nafna mínum, hann var mjög fróður um allt sem viðkom tölvummálum og ég lærði mikið af honum. Blessuð sé minning hans.


| BQ! Pure Base 500DX | Ryzen 9 9950x | ASRock Steel Legend X670e | Palit GeForce RTX 5090 GameRock 32GB | Samsung 980 Pro NVMe PCIe M.2 - 2 tb og 2x 1 tb | 1x 16 tb og 1x 20 tb | Be quiet! Straight Power 12 Platinum 1500W | G.Skill 64GB (2x32GB) Trident Z5 Neo RGB 6000MHz | Samsung Odyssey G5 34" WQHD sveigður | Microlab B-77BT hátalarar | Rasperry Pie 5 með 1 tb nvme disk |

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3847
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 162
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Daz » Fös 17. Jan 2025 22:32

Samúðarkveðjur til allra sem minnst hans.
Ég þekkti hann af góðu einu hér á vaktinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf GuðjónR » Mið 22. Jan 2025 15:58

Ég var núna fyrst að sjá þennan þráð og er í áfalli. Það er þyngra en tárum taki að heyra af fráfalli emma, sem var svo mikilvægur hluti af þessu samfélagi okkar hér á Vaktinni nánast frá upphafi.

Emmi var alltaf málefnalegur, yfirvegaður og virtur Vaktari. Hann lét ekki alltaf mikið fyrir sér fara en það sem hann sagði var alltaf vandað og vel ígrundað. Hann hefur verið hluti af samfélaginu okkar í svo mörg ár að það er erfitt að hugsa sér Vaktina án hans.

Ég sendi fjölskyldu hans og öllum sem þekktu hann mínar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans.



Skjámynd

Templar
/dev/null
Póstar: 1460
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Templar » Mið 29. Jan 2025 17:20

Fallegt að að þér að minnast hans með þessum hætti.


--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||

Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kveðjum Emil Vals (emmi)

Pósturaf Silly » Fim 30. Jan 2025 20:37

Já það var áfall að heyra þetta um Emma þegar ég fékk að vita þetta á milli jóla og ný árs. Ég hafði þekkt Emma síðan 2005 og við byrjuðum að brasa saman á Xbox360 og psx síðunum og höfðum verið góðir vinir síðan þá. Hann var alltaf róleg týpa, en það skorti ekki húmorinn hans heldur. Ég gat alltaf leitað til hans með alls konar tech spurningar og vandamál og auðvitað ráðlegggingar í hvað ég ætti að kaupa.

Ég fór eimmit á jarðarförina hans um daginn, sem var erfitt en mjög fallegt á sama tíma.

Mun sakna þess að heyra í honum og fá álit á ýmsu eða bara kjafta. Hans verður saknað mikið. Það er gaman að lesa orð hérna frá öðrum sem þekktu til hans líka.