Trúir þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Allt utan efnis

Fóru Bandaríkjamenn til Tunglsins fyrir 56árum?

106
82%
Nei
19
15%
Veit ekki, get ekki valið.
4
3%
 
Samtals atkvæði: 129

Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Trúir þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 21. Jan 2025 10:24

Mér langar að gera óvísindalega könnun meðal vaktara, hvort þeir trúa því að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?
Síðast breytt af Moldvarpan á Fim 23. Jan 2025 20:46, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 10:44

í guðanna bænum já, plís, við fórum til tunglsins.

Er mjög ánægður með, eins og er, svarað 100% já

Erum síðan í miðju Artemis prógraminu núna og stefnum á að lenda aftur á tunglinu eftir 3 ár. Og vonandi í framhaldi á Mars (var Trump ekki að tala um það í gær?)

Starship prógramið í fullu gangi, vonandi mun það skip standast væntingar og gera áframhaldandi ferðir til tunglsins og ferðir til Mars mögulegar.



Skjámynd

Dropi
Geek
Póstar: 844
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 256
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Dropi » Þri 21. Jan 2025 10:56

Henjo skrifaði:Er mjög ánægður með, eins og er, svarað 100% já

ég hef slæmar fréttir félagi


LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 3x12TB WD Ultrastar DC HC520

Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1081
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 220
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Jón Ragnar » Þri 21. Jan 2025 11:00

Hvaða rök hafa menn fyrir að við fórum EKKI?

Það eru til myndir af landernum á yfirborði tunglsins :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 11:06

Dropi skrifaði:
Henjo skrifaði:Er mjög ánægður með, eins og er, svarað 100% já

ég hef slæmar fréttir félagi


Ég fæ sting í hjartað

Jón Ragnar skrifaði:Hvaða rök hafa menn fyrir að við fórum EKKI?

Það eru til myndir af landernum á yfirborði tunglsins :)


Fólk notar takmarkað innsæi sitt sem er byggt á umhverfi þeirra hérna á jörðinni til að analyza niðurstöðu tunglferðarinnar, en áttar sig ekki á hvernig t.d. myndavélar virka eða hvernig umhverfi sem er ekki með neitt loftslag, engan vind og nánast ekkert þyngdarafl er öðruvísi en yfirborð jarðarinnar.



Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 21. Jan 2025 11:10

https://youtu.be/OAzikSDmslU?t=6763

Mismunandi hverju menn trúa.

En Van Allen radiation belt er talin aðal ástæðan afhverju við erum ekki búin að fara þangað. Sömuleiðis viðtöl við fólk í NASA sem segir að við höfum ekki farið til tungslins ennþá...
Síðast breytt af Moldvarpan á Þri 21. Jan 2025 11:11, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1081
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 220
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Jón Ragnar » Þri 21. Jan 2025 11:11

Moldvarpan skrifaði:https://youtu.be/OAzikSDmslU?t=6763

Mismunandi hverju menn trúa.

En Van Allen radiation belt er talin aðal ástæðan afhverju við erum ekki búin að fara þangað. Sömuleiðis viðtöl við fólk í NASA sem segir að við höfum ekki farið til tungslins ennþá...



Gríðarlega áreiðanleg heimild hehe



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 11:16

Smá vandamálið er að fólk áttar sig ekki á hversu geðbilað hættulegar þessar ferðir voru. Það er mikill miskilningur að þarna hafi verið bara svona skemmtiferð að ræða. Þetta er voru alltaf fyrverandi hermenn sem höfðu séð vini sína í sama starfi brenna til dauða eða springa í loftið í starfinu.

Van allen beltið og geislavirkni? hafa ekkert tíma til að spá í svoleiðis hluti. Það þarf að sigra Rússana.

Þetta er ræðan sem fólk fékk ekki að heyra frá forseta bandaríkjana í framhaldi af fyrstu tungllendinguni:




Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6554
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 529
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf worghal » Þri 21. Jan 2025 11:17

Moldvarpan skrifaði:https://youtu.be/OAzikSDmslU?t=6763

Mismunandi hverju menn trúa.

En Van Allen radiation belt er talin aðal ástæðan afhverju við erum ekki búin að fara þangað. Sömuleiðis viðtöl við fólk í NASA sem segir að við höfum ekki farið til tungslins ennþá...

æji ekki þessi gaur...


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


Viggi
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 125
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Viggi » Þri 21. Jan 2025 11:20

The moon is made of cheese

Höfum nú pottþétt kíkt þangað. Annars eru nú alveg nokkrir áratugir að það verði kíkt til mars og ekki verður nú búið þar eins og ruglukollurinn musk segir. Nóg að gera hjá honum að seig heila


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Frussi
Tölvutryllir
Póstar: 646
Skráði sig: Lau 26. Ágú 2006 19:45
Reputation: 135
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Frussi » Þri 21. Jan 2025 11:22

Moldvarpan skrifaði:https://youtu.be/OAzikSDmslU?t=6763

Mismunandi hverju menn trúa.



Úr descriptioninu á þessu myndbandi:
From claims of hollow interiors to allegations of alien bases, these ideas push the boundaries of conventional wisdom. Experts and researchers present evidence suggesting the moon might be artificially constructed or even a cosmic prison.


Mismunandi hverju menn trúa, já, en veit ekki alveg með þennan gæja. En mér finnast allar pælingar skemmtilegar svosem, bara ekki þegar þær eru settar fram sem einhver sannleikur

(nota bene, horfði ekki á myndbandið svo kannski er þetta ekki conspiracy theory bilunarmyndband heldur eitthvað alvöru áhugavert)


Ryzen 9 5900x // ROG STRIX X570-F // RTX4080 Super // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 11:24

Viggi skrifaði:The moon is made of cheese

Höfum nú pottþétt kíkt þangað. Annars eru nú alveg nokkrir áratugir að það verði kíkt til mars og ekki verður nú búið þar eins og ruglukollurinn musk segir. Nóg að gera hjá honum að seig heila


En málið er að bækistöð á Mars er eigilega must ef við ætlum að senda fólk þangað, því þetta er ekki eins og með tunglið þar sem men geta gist bara eina nótt og farið síðan bara heim. Mannaðar ferðir til Mars er ferðalög sem taka mun lengri tíma.

Þeir virðast ekki vera hanna Starship í kringum það að senda bara eitt að tvö skip.




Viggi
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 125
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Viggi » Þri 21. Jan 2025 11:42

Henjo skrifaði:
Viggi skrifaði:The moon is made of cheese

Höfum nú pottþétt kíkt þangað. Annars eru nú alveg nokkrir áratugir að það verði kíkt til mars og ekki verður nú búið þar eins og ruglukollurinn musk segir. Nóg að gera hjá honum að seig heila


En málið er að bækistöð á Mars er eigilega must ef við ætlum að senda fólk þangað, því þetta er ekki eins og með tunglið þar sem men geta gist bara eina nótt og farið síðan bara heim. Mannaðar ferðir til Mars er ferðalög sem taka mun lengri tíma.

Þeir virðast ekki vera hanna Starship í kringum það að senda bara eitt að tvö skip.


Þyrftu þá að stökva upp í geimskipið sitt á nokkra daga fresti. Myndu annars drepast úr geislun eftir nokkra daga sem mars er vel baðað af

Annars er sería hérna hversu fýsliegt er að hafa stöð þarna. Einfaldlega ekki heil brú í þessu

https://www.youtube.com/playlist?list=P ... 7IK1-1vZxB


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf rapport » Þri 21. Jan 2025 12:06




Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 21. Jan 2025 12:07

Ég trúi ekki á Bandaríkin. :fly



Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 21. Jan 2025 13:22

Ef það er hægt að lenda probe vehicels á aðrar plánetur, þá er lítið mál að senda stupid reflector á tunglið.

En á þessu ári og næsta, þá á þetta eftir að koma betur í ljós, Artemis programið að fara á flug.

Artemis II átti að fara upp á þessu ári en er frestað til næsta árs.



Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 21. Jan 2025 13:31

https://youtu.be/OAzikSDmslU?t=7698

Hérna er 3min segment varðandi Van Allen radiation belt.




Mondieu
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 24. Apr 2017 00:19
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Mondieu » Þri 21. Jan 2025 13:53

Eins og einhver sagði einhvern tímann (umorðað og þýtt eftir minni): "Það er mikilvægt að hafa opinn huga en ekki svo opinn að þú hleypir öllu inn". Rússar hefðu 100% nýtt tækifærið til að gera Bandaríkjamenn að fíflum ef Bandaríkjamenn hefðu feikað tungllendinguna en þeir gerðu það ekki. Af hverju ekki? Af því að þeir vissu að þeim tókst þetta!

Þar að auki þarf að hafa í huga hversu ógeðslega margir komu að þessu verkefni. Miklu fleiri en vinna hjá NASA. Er ALLT þetta fólk þátttakendur í einu stóru samsæri? Það er ekki einu sinni hægt að fá 4 manneskjur í sama herbergi til að þaga yfir einhverju ómerkilegu slúðri.



Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 13:56

Það að við fórum ekki til tunglsins er eins og að seigja að Kólumbus fór aldrei til Ameríku því atlantshafið er svo hættulegt. Miðað við dósirnar sem þeir voru að smíða 1960 þá eru geimflaugar í dag mun flóknari, með mun meiri tölvubúnaði sem er viðkvæmur fyrir svona geislavirkni. Það eru mismunandi áskoranir þarna sem þarf að sigra á til að tryggja að ferðin heppnist. Það að nota klippur af geimförum, sem eru að taka ótrúlega flókna hluti og krumpa þá saman í eina einfalda setningu, og sýna fram á mótsagnir eru einfaldlega ekki góð vísindi.

Ástæðan afhverju NASA talar núna mikið um van allen beltið og allar hætturnar sem eru þarna uppi, er að þetta er ekki kalda stríðið. Það er ekki í boði í dag að leggja fólks líf í alltof mikla hættu. Ekki gleyma að fyrsta áhöfnin sem átti að fara til tunglsins brann lifandi í sætum sínum. Heldurðu að þeim hafi ekki verið fokk sama ef allir þessir gæjar myndu deyja úr krabameini eftir nokkur ár? Þeir voru ekki einusinni vissir að vélarnir myndu ræsa sig aftur í geimnum. NASA í dag gerir ekkert nema þeir eru búnir að reyna tryggja að allt er öruggt.
Síðast breytt af Henjo á Þri 21. Jan 2025 13:57, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 93
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf natti » Þri 21. Jan 2025 16:54

Hvernig gengur þetta upp, ef ég trúi ekki vísindamönnum, og held að þeir hafi feikað heilu fræðigreinarnar til að sannfæra mig um e-ð, hvernig get ég þá vitnað í vísindi mér til stuðnings?
"Þetta er eitt stórt samsæri, og allir sérfræðingar og vísindamenn tóku þátt, þúsundir einstaklinga, hlustaðu hérna á einn afskekktan vísindamann útskýra."
Ef þú "trúir" ekki á tunglferðina, afhverju ættiru að trúa að "Van Allen radiation belt" sé yfir höfuð til?
Er það ekki bara eitthvað sem er búið til í hausnum á einhverjum?
Og súrefni, er það til? Ég hef aldrei séð súrefni, er þetta ekki bara feik til að sannfæra fólk um að fljúga ekki bara sjálft út í geim?
Eða er nóg að trúa vísindum þegar þau eru slitin úr samhengi af einhverjum sem hefur jafnvel ekki skilning á þeim ef það styður undir samsæriskenningarnar sem þú ert með?

Hérna er samt önnur pæling, ef þú hittir einhvern sem "trúir" ekki á tunglferðina, ættiru yfir höfuð að taka mark á einhverju sem viðkomandi segir um eitthvað?
Mín reynsla er að þegar fólk er dottið í þennan gír, þá er það svo djúpt sokkið í confirmation bias á öllum stigum að það meðtekur engar upplýsingar um nokkurn skapaðan hlut nema að það styðji við fyrirfram ákveðnar skoðanir, og tekur oft meðvitaða ákvörðun um að deila engum upplýsingum ef þær eru á skjön við þær skoðanir.


Mkay.

Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2422
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 157
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Black » Þri 21. Jan 2025 19:32

Já, en samt myndi það ekki koma mér á óvart ef síðar kæmi í ljós að þetta hafi verið falsað.

Ég hef velt því fyrir mér hvort geimferðin hafi verið raunveruleg en að myndatökurnar og útsendingarnar hafi verið sviðsettar.

Kannski gerðu þeir þetta þannig að allt virtist ótrúlega flott, en í raun hafi þeir bara rétt svo komist lífs af. Það væri svo ekki endurtekið fyrr en tæknin væri orðin mun þróaðri.


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 19:39

Black skrifaði:Kannski gerðu þeir þetta þannig að allt virtist ótrúlega flott, en í raun hafi þeir bara rétt svo komist lífs af. Það væri svo ekki endurtekið fyrr en tæknin væri orðin mun þróaðri.


Eins og Apollo 1 crewið, eða Apollo 13?

Mynd




ragnarok
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Lau 12. Mar 2022 10:09
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf ragnarok » Þri 21. Jan 2025 19:55

Það gleymist oft að menn hafa farið til Tunglsins sex sinnum og 12 menn hafa gengið þar um.

Það hlýtur að vera vel í lagt að taka sénsinn á að að fakea þetta í fimm skipti í viðbót eftir fyrsta, með nýjum áhöfnum, stjórnendum á jörðu niðri og hundruðum annara sem að hverri ferð koma. Ekki gleyma að Nixon er forseti á meðan á öllum þessum ferðum stóð og það var væntanlega lekasta Hvíta Hús síðustu aldar.

https://simple.wikipedia.org/wiki/List_ ... n_the_Moon

Apollo 11, 21. júl 1969
Apollo 12, 19. nóv 1969
Apollo 14, 5. feb 1971
Apollo 15, 31. júl 1971
Apollo 16, 21. apr 1972
Apollo 17, 11. des 1972
Síðast breytt af ragnarok á Þri 21. Jan 2025 19:56, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Þri 21. Jan 2025 20:12

Er mjög spenntur að heyra, þegar við lendum aftur á næstu árum hvað "skeptikarnir" hafa að segja þá. Munu þeir halda því fram að þau séu ekki á tunglinu, að þetta sé líka allt á sviði. Eða við erum raunverulega á tunglinu núna en vorum það ekki fyrir fimmtíu árum?

Og hvernig verður þetta þegar það verða mannaðar ferðir til Mars. Verða þá líka margir áratugir af fólki að disprova það?

Og fyrir þá sem halda að "X NASA manneskja sagði þetta" þýðir eitthvað. Freeman Dyson trúði ekki á loftlagsbreytingar af mannavöldum. Sagan er full af fólki sem er ótrúlega gáfað á ákveðnum hlutum en ótrúlega vitlaust þegar kemur að öðrum, sérstaklega þegar þessir einstaklingar verða eldri.




agust1337
Gúrú
Póstar: 566
Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
Reputation: 60
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf agust1337 » Þri 21. Jan 2025 20:36

Þetta er nú klassískt dæmi um þá sem trúa frekar á samsæriskenningar en alvöru gögn. Má þar nefna fólk sem heldur því fram að jörðin sé flöt, og ég ætla að vona að þú sért ekki einn af þeim.
Við höfum 100% farið til tungslins og er það eitt af okkar stærsta afrek sem mannskepna, og það næsta verður að koma fólki á Mars.

Ég las yfir það sem þú skrifaðir og langar að leiðrétta nokkra misskilninga sem þú virðist hafa varðandi sumt:
Van Allen beltið er vissulega hættulegt geislasvæði, en tíminn sem geimskip eyða í gegnum það er mjög stuttur. Geimskip eru einnig búin varnarbúnaði sem gerir kleift að komast í gegnum það án þess að geimförunum stafi hættu af. Auk þess er beltið ekki einsleitt – það er minni geislavirkni á sumum stöðum og tímapunktum, og er því vissulega hægt að tímasetja brottför.

Eftir tungllendingarnar voru skilin eftir hlutir á yfirborði tunglsins, eins og speglar sem vísindamenn nota reglulega, til dæmis til að mæla hversu hratt tunglið fjarlægist jörðina.

Það hefði í raun verið miklu erfiðara að sviðsetja þennan atburð en að framkvæma hann í raunveruleikanum. Tæknin á þessum tíma var ekki sérlega háþróuð, sérstaklega ekki þegar kemur að CGI tækni. Geimskipin sjálf voru frekar einföld miðað við tæknina í dag, sem er einnig ein ástæðan fyrir því að við getum ekki einfaldlega tekið upp aftur Saturn V tæknina, hún samræmist ekki tækninni sem við notum í dag, það er ekki eins og að púsla saman púsluspilum.

NASA viðtölin eru oft ef ekki nánast alltaf tekin úr samhengi. Í hvert skipti sem ég rekst á einhvern með samsæriskenningu varðandi tungllendingarnar, þá sé ég að þau eru notuð ranglega eða sett fram í samhengi sem skekkir merkinguna.

Eitt í viðbót: Mannskepnan er hræðileg í að halda leyndarmálum. Heldurðu virkilega að það væri ekki fjöldi uppljóstrara ef þetta hefði verið sviðsett? Mér finnst þetta svo merkilegt, að fólk er tilbúið að kasta afrekum mannskepnunnar í ruslið vegna þess að það kýs frekar að trúa samsæriskenningum.
Síðast breytt af agust1337 á Þri 21. Jan 2025 20:37, breytt samtals 1 sinni.


What ever you do, what ever you think you can do, there'll always be an Asian who's better than you.