Hrotti skrifaði:Henjo skrifaði:Hrotti skrifaði:
Ég var ekki að tala um öryggi. Snýst um betra grip, betri bremsur, gripmeiri dekk og endalaus hjálparkerfi.
Hvað er það annað en öryggi? Eru bílar ekki með gripmeiri dekk, betri bremsur og fleiri hjálparkerfi til að gera þá öruggari? Eða er þetta bara til að vera fljótari í eitthverjum kappakstursleik.
Það er til að vera fljótari í kappaskstursleik.
Þú getur rausað þangað til þú verður blár í framan, það verður samt aldrei rétt hjá þér að ný alvöru græja og gamalt drasl séu á sama plani þegar báðir eru á sama hraða.
Og þú getur reynt að sannfæra sjálfan þig um að þessi glæfraakstur, þar sem þú ert keyra eins og fáviti og leggja annað fólk í hættu er í lagi vegna þessa að bílar í dag eru svo rosalega góðir.
Þú getur keyrt hratt eða þú getur keyrt öruggara. Þú getur ekki gert bæði. Þú talar um allskonar vitleysu eins og bílar í dag eru með betri bremsur eða dekk.
Allir bílar í dag eru með betri dekk, það er enginn að panta dekk frá 2002 með tímavél.
Ég keyrði í mörg ár á bíll frá níunda áratuginum og hann átti í engum vandræðum að kicka in ABS'inu á 60-70km/h á þurru malbiki. Og í raun fannst mér bremskurnar í þeim bíll virka oft betur en á mörgum nýlegum bílum sem ég keyrði.
Hvað kemur í ljós þegar ég googla hlutina? 1985 E-class er einungis með 10% lengri bremsulengd en 2025 E-class. Og 1985 bíllinn var mældur á þeim tíma á 1985 dekkjum. Vá, þvílíkt progress, ég get bara farið og gefið allt í og sagt lögguna að fokka sér því bíllinn er svo rosa öruggur. Ég get bara sagt við lögguna að þessi bíll bremsar 10% hraðar og hann er bara á allt öðru plani.
Sama hvaða bíl þú ert með, að bremsa frá t.d. 130km/h mun alltaf taka helmingi lengri tíma en að bremsa frá 100km/h (það er metrar sem tekur þig til að stoppa)
Og það eru enginn 20 ára gömull hræ á Íslandi sem ekki geta bremsað, bílar á íslandi fara í skoðun árlega. Nema þú sért alltaf á svo nýjum bíll að þú upplifir það aldrei.
Þú getur runsað þangað til þú verður blár í framan, en þú hefur rangt fyrir þér. Bílar í dag eru svo sannarlega öruggari en gamlir bílar, en þessi hugmynd að þeir eru death proof og við getum keyrt eins og bjánar er bara alvitlaus.
Síðan tala ég ekki um að helmingurinn af þessu nýlegum bílum sem þú talar um eru allir á hálfónýttir hjólbörðum. Enda virka það alltaf þannig í umferðinni að liðið á þessum nýjum bílum keyra eins og bjánar, gefa allt í, bremsa eins og þeir eru í kappakstri (er það kannski þú?) og velta fyrir sér afhverju dekkin eru ónýtt eftir 20þús km.
Googlaði hvað þessar Teslur eru að bremsa, tekur uþb 40 metra að stoppa frá 100km/h. Vá, geggjað. Meðan gamla hræjið mitt var að taka þetta á 35 metrum fyrir 40 árum.