rapport skrifaði:Í Noregi segja ráðherrar af sér ef þeir nota óvart fyrirtækjakort þegar þeir eru útí búð að kaupa bleyjur.
En það verður alltaf erfiðara og erfiðara að sjá eitthvað öðruvísi við Pírata og hvernig þeir höndla hlutina, þá í samanburði við aðra flokka.
En er þetta rétt fyrirsögn hjá MBL? Var hún handtekin?
Ég er nú fæddur og uppalinn á veitingahúsum, hótelum og starfaði við slíkt í 14 ár.. Löggan
hirðir viðkomandi, það er réttara orðið. Viðkomandi er ekki handtekinn og settur í steininn fyrir það að fá sér aðeins of mikið og láta eins og asni. Menn hafa oft sagt að hinn og þessi var handtekinn og "svo sleppt út á næsta horni" en það er augljóslega ekki handtaka, heldur bara tiltal.
Það að menn séu hirtir í áfengisrugli og keyrt eitthvað, út á horn, gista í klefa, spítala eða heim til sín, hefur verið daglegt brauð hjá löggunni svo lengi sem elstu menn muna. Mér finnst rosalega líklegt að þessi þingmaður hafi bara drukkið ótæpilega, reynt að gubba þessu upp úr sér, drekka vatn og reyna ná áttum á salerninu.. Svo leið bara hálftími og pissuröðin orðin 20 manns skiljið þið. Þá kemur dyravörðurinn og nær í viðkomandi, sér að hann er í andlegu ójafnvægi og hringir á lögguna og segir "Já þetta er á Kíkí ...getiði komið og hirt þennan"
Svo er þessu slengt upp í fyrirsögn á eins dramatískan hátt og hugsast getur, og látið eins og aðrir stjórnmálamenn hafi aldrei gert slíkt. Ég man eftir því þegar maður stillti upp fyrir veislur sjálfstæðisflokksins og framsókn að heilu vodkaflöskunum var stillt upp á borð eins og rauðvínsflöskum. Þá drukku menn þangað til engin var heima og menn gátu ekki talað. Þá var það bara alveg eins... menn keyrðir heim í
Maríu, sem voru nokkurs konar lögreglu-sendibíll fyrir þá sem fengu sér of mikið í tánna, jafnvel báðar. Þetta þótti bara hinn eðlilegasti hlutur
![Wink ;)](./images/smilies/icon_wink.gif)
edit mynd af Maríu og aftaní henni voru sæti fyrir 6 ofurölvaða minnir mig:
![maria.jpg](./download/file.php?id=32712&sid=03a63db9662439a16477f7fc431f2f01)
- maria.jpg (67.46 KiB) Skoðað 1632 sinnum