Sjálfur er ég oft með útfærslu af samskonar töng frá facom eða Facom 793936 Swingo. Þá er hægt að fara niður í 0.25q og uppí 10q og þurfa ekki að stressa sig á að særa vírana. Kostaði 20þ í ísól fyrir mörgum árum síðan

Ódýrari tangir eru yfirleitt pain- in the assholes. og best að sleppa því að kaupa þannig.
Mæli samt ekki með að splæsa í svona alvöru töng nema þú sért að vinna í stýringum með milljón vírendum og vilt staðla afhýðinguna af vírunum.
6tommu "rafvirkjabítarinn" er flottur í nánast allt nema klippa dragbönd, nota bara classic skábít í það verkefni.
þessi ab töng virðist eiga getað klemmt einangruð bílatengi líka... það er aldrei sniðugt að nota multitool / gizmo töng í þeim ásetningi. Það er yfirleitt ekki að koma vel út. Og illa pressuð rafmagnstengi eru yfirleitt einhverskonar grief.
Frekar eitthvað proper verkfæri eins og klein tools ratcheting crimp.