Sælir
Af hverju er shipping á einhverju smádrasli á ali kominn uppí 1500-3500 stk. Og ef maður ætlar að kaupa kannski tvennt af litlu smádrasli þá tvöfaldast sendingarkostnaðurinn í stað þess að hækka kannski 20% per stk.
Það sem ég meina með smádrasli er eitthvað dót sem er kannski eitthvað kringum 300gr og ummálið á kassanum kannski 10x20x5 cm og minni.
Er líka að versla af banggood, en shipping þar er ennþá dólandi kringum 2evrur ? Síðan hef ég ekki verið var við einhverjar massívar hækkanir á amazon.
Aliexpress shipping dýrt ?
-
- spjallið.is
- Póstar: 479
- Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
- Reputation: 151
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Rétt athugað með flutningskostnað á einu og öðru @ aliexpress. Ég þurfti á síðasta ári nokkra smáhluti sem voru á fínu verði í Kína en sendingarkostnaður var orðinn eitthvert rugl. Fékk sömu (að því er ég best gat séð) vöru hjá amazon.de á fínu verði og jafnframt með vel þolanlegum sendingartíma og sendingarkostnaði. Mæli með að menn skoði slíkan möguleika.
-
- Nörd
- Póstar: 138
- Skráði sig: Lau 19. Des 2020 11:05
- Reputation: 45
- Staða: Ótengdur
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Ég held að ástæðan sé sú að söluaðilar eru meira farnir að senda með DHL eða Fedex. Í það minnsta virðist það alltaf vera ástæðan þegar ég sé svimandi há sendingargjöld.
Hvað stykkjafjöldann varðar þá hef ég einmitt tekið eftir þessu. Það sem mér datt einna helst í hug var að sendingunum væri forpakkað og að það eina sem þyrfti að gera væri að slengja límmiða á umslagið (covid tengt?). Augljóslega veit ég ekki ástæðuna, þetta er bara gisk.
Hvað stykkjafjöldann varðar þá hef ég einmitt tekið eftir þessu. Það sem mér datt einna helst í hug var að sendingunum væri forpakkað og að það eina sem þyrfti að gera væri að slengja límmiða á umslagið (covid tengt?). Augljóslega veit ég ekki ástæðuna, þetta er bara gisk.
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Ég held að þeir séu bara að reyna að græða smá, ódýrari vara, hærri "sendingar"kostnaður=meiri gróði
Ryzen 7 3700x // X470 Aorus Gaming // RTX3070 Aorus Master // 48 GB 3200MHz // 32" G5 165hz
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Ég hef tekið eftir því undanfarið að vörur frá Aliexpress eru komnar hingað á innan við mánuði frá pöntun. Áður fyrr tók það allt ca 2-3 mánuði að berast hingað. Kannski er það ástæðan fyrir þessu - einfaldlega dýrari og öruggari sendingarleiðir. Það er allt tracked núna btw, sem er mjög þægilegt.
Það versta við að kaupa eitthvað á Aliexpress er samt sem áður Íslandspóstur eins og alltaf, sem rukkar sitt eigið "sendingargjald" og önnur óskiljanleg gjöld.
Það versta við að kaupa eitthvað á Aliexpress er samt sem áður Íslandspóstur eins og alltaf, sem rukkar sitt eigið "sendingargjald" og önnur óskiljanleg gjöld.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1031
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
- Reputation: 132
- Staða: Ótengdur
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Ég held að það séu tvær meginástæður:
- Allir pakkar eru raktir og þurfa að innihalda rafrænar tollupplýsingar
- Terminal dues (þ.e. það gjald sem China Post þarf að borga Íslandspósti) hefur hækkað
-
Höfundur - Skjákortaníðingur
- Póstar: 5017
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 892
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Hefur þá einhver prufað shipping forwarding service í kína ? Líkt og myus.com til að losna aðeins undan þessu að borga mörg tollsýslugjöld ? Ég hugsa að myus hefur borgað sig upp hjá mér bara með að sameina sendingar og þurfa ekki að borga tugi þúsunda ef maður er að safna að sér smádrasli frá ýmsum birgjum.
-
- Nörd
- Póstar: 138
- Skráði sig: Lau 19. Des 2020 11:05
- Reputation: 45
- Staða: Ótengdur
Re: Aliexpress shipping dýrt ?
Revenant skrifaði:Ég held að það séu tvær meginástæður:
- Allir pakkar eru raktir og þurfa að innihalda rafrænar tollupplýsingar
- Terminal dues (þ.e. það gjald sem China Post þarf að borga Íslandspósti) hefur hækkað
Ég veit ekki til þess að það sé nýtt að sendingarnar séu rekjanlegar. Búið að vera þannig í mörg ár.