Að lenda á svörtum kínverskum lista

Allt utan efnis

Höfundur
vatr9
Nörd
Póstar: 121
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf vatr9 » Fim 15. Apr 2021 20:48

Ballið byrjað. Íslendingur lendir á svörtum lista hjá kínverskum stjórnvöldum fyrir gagnrýni á stjórnvöld.
Tengist víst aðgerðum gegn meðferð kínverja á úíg­úr múslimum.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... ugur_thor/

Önnur stór ríki hafa svo sem gert þetta í gegn um tíðina. Bandaríkin neitað mönnum um vegabréfsáritun ef þeir voru þekktir kommar.
Kínversk stjórvöld hafa á undanförnum árum aukið mjög aðgerðir gegn öllum sem gagnrýna þau.
Laowhy86 og fleiri youtube-arar lent illa í því.
Spurning hvað felst í þessum svarta lista. Bara neitun á vegabréfsáritun eða eitthvað alvarlegra.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf appel » Fim 15. Apr 2021 21:01

Það hefur ekki verið neitt vesen að gagnrýna BNA, ef það væri glæpur þá væri líklega hálf blaðamannastéttin á svörtum lista í BNA. En kínverjar eru alveg gríðarlega hörundssárir, það er magnað að sjá ofstækisviðbrögð þeirra við minnstu móðgunum, jafnvel gagnvart smáköllum á Íslandi sem skrifa grein í sjávarútvegsblað sem kannski 10 þús manns nenna að lesa á lítilli fámennri eyju.

Mér finnst þetta segja ansi mikið um viðhorf of "state of mind" kínverskra ráðamanna, þeir eru gríðarlega paranoid. En ég held að þeir séu bara að grafa sína eigin gröf.


*-*

Skjámynd

rickyhien
Gúrú
Póstar: 559
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Reputation: 28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf rickyhien » Fim 15. Apr 2021 23:02

Uncle Xi has taken a screenshot.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf urban » Fim 15. Apr 2021 23:32

Mér þinnst þetta komment hjá honum alveg gersamlega stórkostlegt.

þessi mikli snillingur skrifaði:„Ég er þarna eini Íslend­ing­ur­inn, eini Íslend­ing­ur­inn sem Kín­verj­um finnst þess virði að hrækja á. Ég er auðvitað stolt­ur af því,“ seg­ir Jón­as í sam­tali við mbl.is.


Spurning hvort að hann hafi farið á listann fyrir að tala um mannréttindabrot eða röfla yfir gamla húsinu þeirra :D
Síðast breytt af urban á Fim 15. Apr 2021 23:33, breytt samtals 1 sinni.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf jonfr1900 » Fim 15. Apr 2021 23:43

Alræðisstjórnvöld eins og þau sem eru í Kína þola enga gagnrýni og ímynd skiptir þau meira máli en staðreyndir. Það er spurning hvernig fer fyrir fríverslunarsamningi Íslands og Kína þegar fram líður.




mikkimás
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf mikkimás » Fös 16. Apr 2021 17:20

Ef kínverskum stjórnvöldum er svona í mun að einangra sig á alþjóðavettvangi, þá verði þeim að góðu.




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf jonfr1900 » Fös 16. Apr 2021 18:17

Þetta er mjög dæmigert fyrir það hvernig Kína bregst við allri gagnrýni, ábendingum og mótmælum varðandi mannréttindabrot og þjóðernishreinsanir sem Kína stendur í núna. Næst á dagskrá hjá Kína er að nota efnahagslegar þvinganir gegn Íslandi með einhverjum hætti. Það er mjög líklegt að fríverslunarsamningur Íslands og Kína sé búinn að vera.

Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af málum Kína (Rúv.is)



Skjámynd

DaRKSTaR
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf DaRKSTaR » Fös 16. Apr 2021 23:13

kínverjar vita ekki hvað mannréttindi eru.

hef fylgst með serpentza og lawoy86 ásamt advchina síðan ca 2016, flott video hjá þeim.

já og svo advpodcast fara ýtarlega yfir stöðuna í kína í þeim podkostum.

töff að vera nr1 íslendingurinn á svörtum lista hjá kínverjum, kannski maður nái að verða nr2 :D


I9 10900k | Gigabyte RTX 3060 TI | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf urban » Fös 16. Apr 2021 23:46

mikkimás skrifaði:Ef kínverskum stjórnvöldum er svona í mun að einangra sig á alþjóðavettvangi, þá verði þeim að góðu.


Ef að kínverjar þyrftu að hafa áhyggjur af því, þá væri það löngu búið að gerast.

Kína á alltof mikið af dollurum og skuldum bandaríkjanna til þess að það þori einhver að abbast uppá þá að einhverju ráði.
Síðan er heimurinn (og sérstaklega var) alltof háður kínversku vinnuafli og framleiðislu til þess að fara upp á móti þeim.

Reyndar er vinnuaflið að verða fulldýrt þar og því framleiðsla að fara annað að hluta til, en það er til landa sem að kína hefur verið að byggja upp óhemju mikið af innviðum í, innviði sem að kínverjar einfaldlega eiga.

Það er búnar að vera "milljón" ástæður fyrir því undanfarna ca 2-3 áratugi að einangra kínverja, þeir halda bara áfram að stækka og gera sitt.

Þeir aftur á móti geta auðveldlega lokað á öll viðskipti við fullt af löndum ef að þeir vildu, yrðu ekki varir við það að loka á viðskipti við okkur t.d.
Síðast breytt af urban á Fös 16. Apr 2021 23:47, breytt samtals 1 sinni.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Tengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf appel » Lau 17. Apr 2021 00:22

urban skrifaði:
mikkimás skrifaði:Ef kínverskum stjórnvöldum er svona í mun að einangra sig á alþjóðavettvangi, þá verði þeim að góðu.


Ef að kínverjar þyrftu að hafa áhyggjur af því, þá væri það löngu búið að gerast.

Kína á alltof mikið af dollurum og skuldum bandaríkjanna til þess að það þori einhver að abbast uppá þá að einhverju ráði.
Síðan er heimurinn (og sérstaklega var) alltof háður kínversku vinnuafli og framleiðislu til þess að fara upp á móti þeim.

Reyndar er vinnuaflið að verða fulldýrt þar og því framleiðsla að fara annað að hluta til, en það er til landa sem að kína hefur verið að byggja upp óhemju mikið af innviðum í, innviði sem að kínverjar einfaldlega eiga.

Það er búnar að vera "milljón" ástæður fyrir því undanfarna ca 2-3 áratugi að einangra kínverja, þeir halda bara áfram að stækka og gera sitt.

Þeir aftur á móti geta auðveldlega lokað á öll viðskipti við fullt af löndum ef að þeir vildu, yrðu ekki varir við það að loka á viðskipti við okkur t.d.


Nokkrir punktar um þetta:

1. Kínverjar eiga aðeins brot af skuldum BNA. Jafnvel þó þeir myndu selja allt á morgun þá myndi dollara-kerfið "gleypa það" og á endanum væru kínverjar verr staddir með enga dollara! Heimshagkerfið er dollara-hagkerfi, 97% af öllu heimshagkerfinu er í dollurum... þá meina ég viðskipti milli land ásamt öllum færslum milli landa og seðlabanka. BNA og Kína eiga í viðskiptum með dollurum, BNA og Evrópa eiga í viðskiptum með dollurum, jafnvel Evrópa og Kína eiga í viðskiptum með dollurum. Indverjar kaupa vörur frá Kína með því að borga með dollurum. Allt heimshagkerfið keyrir á dollurum.

2. Vörur sem Kína framleiðir er ekki hægt að stýra hvar þær lenda. Vörur fara bara um heimshagkerfið og lenda á þeim stað þar sem kaupandi er. Kína ræður engu um endastöð slíks varnings. Við kaupum helst vörur af Bretlandi, BNA og Evrópulöndum, ekki beint af Kína. Þannig að Kína þyrfti að hætta að senda vörur til meginþorra hagkerfis heimsins bara til að hætta að senda vörur til Íslands.

3. Kína er fátækt land og það eru mikil innbyrðis átök þar þó það bóli ekkert á því í fjölmiðlum enda allt þaggað niður í hel. Kína er einsog risastórt N-Kórea í raun, og það er mikið í gangi "behind the scenes" meðal elítunnar. Það er gríðarlega erfitt að stýra svona stóru landi með svona gígantískt mikinn mannfjölda þar sem misskipting er alveg svakalega. Það eru engir frjálsir fjölmiðlar í Kína, bara ríkismiðlar sem propaganda hvað allt er dásamlegt. Í raun veit maður aldrei hvort þessi púðurtunna springi, þetta er einsog með Yellowstone eldfjallið, komið á tíma, en veit aldrei hvort springur og engin merki um það.

Svo er alltaf hægt að setja spurningamerki við allar þessar hagtölur frá þeim.
Síðast breytt af appel á Lau 17. Apr 2021 00:23, breytt samtals 1 sinni.


*-*

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf urban » Lau 17. Apr 2021 01:04

appel skrifaði:1. Kínverjar eiga aðeins brot af skuldum BNA. Jafnvel þó þeir myndu selja allt á morgun þá myndi dollara-kerfið "gleypa það" og á endanum væru kínverjar verr staddir með enga dollara! Heimshagkerfið er dollara-hagkerfi, 97% af öllu heimshagkerfinu er í dollurum... þá meina ég viðskipti milli land ásamt öllum færslum milli landa og seðlabanka. BNA og Kína eiga í viðskiptum með dollurum, BNA og Evrópa eiga í viðskiptum með dollurum, jafnvel Evrópa og Kína eiga í viðskiptum með dollurum. Indverjar kaupa vörur frá Kína með því að borga með dollurum. Allt heimshagkerfið keyrir á dollurum.

Ég held að ég hafi ekki komið þessum punkt nægilega vel frá mér, vissulega eiga þeir engan ráðandi hlut í skuldum BNA, ef að ég man rétt þá er það eitthvað um 5% og síðan gríðarlegt magn af dollurum.
Heimshagkerfið hefur nefnilega akkúrat ekki efni á því að kínverjar myndu innleysa til sín skuldir bandaríkjanna og dæla dollurunum sínum út, vissulega yrðu þetta aldrei dauðadómur, en heimshagkerfið hefur ekki efni á því, þeir gætu sett BNA aftur um einhver ár, ekkert sem að þeir ná sér ekki útúr en þetta er ekkert sem að þeir myndu vilja.
vissulega væru kína sjálfir á hræðilegum stað eftir það, en heimurinn væri bara líka á vondum stað eftir það, þar að auki gætu þeir lokað á svo gríðarlegt magn af framleiðslu sem að heimurinn þarf.

Enda einsog ég sagði, það eru milljón ástæður fyrir því að stöðva kínverja, það er rosalega góð ástæða fyrir því að það hefur ekki verið gert, það er rosalega góð ástæða fyrir því að þeir hafa fengið að gera basically það sem að þeim dettur til hugar, vegna þess að að annars vegar fallinu sem að þeir gætu sett á hagkerfið og síðan vegna vinnuafls/framleiðslu, þetta eru samliggjandi þættir.


appel skrifaði:2. Vörur sem Kína framleiðir er ekki hægt að stýra hvar þær lenda. Vörur fara bara um heimshagkerfið og lenda á þeim stað þar sem kaupandi er. Kína ræður engu um endastöð slíks varnings. Við kaupum helst vörur af Bretlandi, BNA og Evrópulöndum, ekki beint af Kína. Þannig að Kína þyrfti að hætta að senda vörur til meginþorra hagkerfis heimsins bara til að hætta að senda vörur til Íslands.


Þarna var ég ekki endilega að tala um það sem að við kaupum, enda gætum við alltaf keypt annar staðar frá, þarna er ég að tala um það sem að við seljum þeim, við seljum þeim nefnilega töluvert, þeim myndi ekkert muna að sleppa því að kaupa, en okkur gæti munað að hafa ekki kaupendur.
Þeir voru t.d. 7 stærstu kaupendur sjávarfangs árið 2017 eða 2018, öll grásleppa t.d. hellingur af hrognum fara þangað, makríll og loðna.
Þetta er eitthvað sem að íslensku þjóðinni munar um að geta selt, en þeir geta hæglega keypt annar staðar (einsog við getum alveg sleppt því að versla við ali frænda og verlsað við aðrar netverslanir)
Nema við gætum þá ennþá keypt vörur framleiddar í kína, þeir myndu bara ekki kaupa íslenskar vörur, þrátt fyrir að það væru erlendis seljendur.

appel skrifaði:3. Kína er fátækt land og það eru mikil innbyrðis átök þar þó það bóli ekkert á því í fjölmiðlum enda allt þaggað niður í hel. Kína er einsog risastórt N-Kórea í raun, og það er mikið í gangi "behind the scenes" meðal elítunnar. Það er gríðarlega erfitt að stýra svona stóru landi með svona gígantískt mikinn mannfjölda þar sem misskipting er alveg svakalega. Það eru engir frjálsir fjölmiðlar í Kína, bara ríkismiðlar sem propaganda hvað allt er dásamlegt. Í raun veit maður aldrei hvort þessi púðurtunna springi, þetta er einsog með Yellowstone eldfjallið, komið á tíma, en veit aldrei hvort springur og engin merki um það.

Svo er alltaf hægt að setja spurningamerki við allar þessar hagtölur frá þeim.

Vissuelga fátækt land, en hefur stækkar gríðarlega, það var svo gott að segja engin "middle class" þarna fyrir ca 35 árum(5-10%), núna er middle class þar alveg lágmark mannfjöldinn í USA, líklegast nær því að vera tvöfaldur.
að bera kína saman við N-Kóeru er bara rangt, þetta er vissulega langt frá því að vera ríkt land, en þetta er langt frá því að vera á svipuðum slóðum og NK.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf Viktor » Lau 17. Apr 2021 13:32

jonfr1900 skrifaði:Þetta er mjög dæmigert fyrir það hvernig Kína bregst við allri gagnrýni, ábendingum og mótmælum varðandi mannréttindabrot og þjóðernishreinsanir sem Kína stendur í núna. Næst á dagskrá hjá Kína er að nota efnahagslegar þvinganir gegn Íslandi með einhverjum hætti. Það er mjög líklegt að fríverslunarsamningur Íslands og Kína sé búinn að vera.

Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af málum Kína (Rúv.is)


Mjög áhugavert að þau kalli ritskoðun á skrifum fólks í öðrum heimsálfum “innanríkismál”.
Síðast breytt af Viktor á Lau 17. Apr 2021 13:32, breytt samtals 1 sinni.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf GuðjónR » Lau 17. Apr 2021 17:53

Nostradamus kallaði kínverja „gulu hættuna“, held það sé fyllileg ástæða til þess að gefa yfirgangi þeirra og kúgunartilburðum gaum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Tengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf rapport » Mán 19. Apr 2021 19:48

Eru Kínverjar bara ekki að deyja úr hræðslu við að þjóðir heimsins fari að veðja á Indverja?



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að lenda á svörtum kínverskum lista

Pósturaf urban » Mán 19. Apr 2021 19:53

rapport skrifaði:Eru Kínverjar bara ekki að deyja úr hræðslu við að þjóðir heimsins fari að veðja á Indverja?


hluti ástæðunnar fyrir því að þeir hafa verið að styrkja innviði í hinum og þessum löndum nálægt sér er talin vera sú ástæða að þeir eru hræddir um að vera að verðleggja sig útaf markaðinum.

En maður myndi þá halda að þeir færu að spila með restinni af heiminum, ekki vera alltaf á móti.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !