Ókei, ég skal reyndar viðurkenna það að Nova hafa stundið verið svo "næs" að það virðist bera vera hafa verið bullað til að halda mér góðum. LOL. Einhver sagði mér að ég gæti fengið AlltSaman þó að að það ætti ekki við. En svo rættist það, ég er enn sáttur með Nova. Þau bara redduðu þessu fyrir mig. Mér finnst að þjónustusamskipti eigi ekki að vera persónuleg. Þau eiga að vera 100% gott og jákvætt væb og þú átt ekki að sýna neinn persónulegan pirring.
Ég var sjálfur að vinna í BT og mér var alveg sama ef kúnnar voru pirraðir. Ég var alltaf eins og svaraði bara eftir bestu getu.
Mossi__ skrifaði:Enn einn þráðurinn frá þér sem ég botna ekkert í, Netkaffi.
Hún er ekki að fatta hvað þú átt við, og biður þig um að útskýra hvað þú átt við, sem fólk gerir þegar það fattar ekki hvað hinn á við.
Eg er að reyna að fatta hvað þú átt við, en fatta ekki hvað þú átt við. Geturu útskýrt hvað þú átt við. Eða ætlarðu að stofna annan þráð þar sem þér finnst skrítið að ég skuli ekki fatta hvað þú átt við, í staðinn fyrir að útskýra bara hvað þú átt við.
Mér finnt hún ekki vera með einhvern slæman þjónustkúltúr.
Ókei, ég var bara of fljótur á mér. Mér fannst það kannski eitthvað niðurlægjandi að hún væri að spyrja hvort ég væri með mörg gjafabréf. LOL. Ég er með þrjú og þau gilda til næsta sumars.
Ég get ekki séð að það skipti máli hvort að ég sé persónulega með mörg eða ekki, ég er að spyrja út í viðskiptaskilirðin. Ég gæt verið að spyrja fyrir LAN-teymið mitt sem ætlar út á Serranó að borða og sá þetta tilboð.Ég veit að sumir eru bara að White Knighta hérna. Taka upp hanskann fyrir eitthvað spurningaferli á Serrano veitingastaðakeðju, LOL

Auðvitað á ekki að svara persónulega þegar maður vinnur hjá veitingakeðju. Það kemur þessu ekkert við hvað ég er með mörg gjafabréf eða hvort litli frændi minn er hjá mér sem eyddi úr sparibauknum sínum til að kaupa 10 gjafabréf eða hvort ég sé að spyrja fyrir áfangaheimili með sprautufíklum sem ætlar út að borða, eða hvort ég sé að spyrja fyrir skátahóp sem var að fara með flöskur í endurvinnsluna.
Og ég vildi bara vera viss hvort það væri eitthvað "á meðan birgðir endast" eða hvort ég þyrfti að nýta þau áður en birgðir klárast. Mér er alveg nákvæmlega sama, ég bara tek svona Jói-út-í-bæ pælingu með þetta á hvernig ég upplifði þessi samskipti. Ég var ekkert að fá "já, þú getur notað eins mörg og þú vilt til 2021!" Þetta er kannski skrítinn þráður en ég er lærdómsins ríkari.