Nú loks þarf maður að huga að því að velja sér raforkusala. Er einhver munur á milli fyrirtækja?
Íslensk Orkumiðlun virðist vera ódýrust miða við https://aurbjorg.is/#/rafmagn.
Er eitthvað sem ber að varast/hafa í huga við valið?
Kv. Z
![Don't press that button! :dontpressthatbutton](./images/smilies/aiwebs_029.gif)
zedro skrifaði:Góðan daginn!
Nú loks þarf maður að huga að því að velja sér raforkusala. Er einhver munur á milli fyrirtækja?
Íslensk Orkumiðlun virðist vera ódýrust miða við https://aurbjorg.is/#/rafmagn.
Er eitthvað sem ber að varast/hafa í huga við valið?
Kv. Z
g0tlife skrifaði:Okey halló, Takk!
Ég vissi ekki að þetta væri hægt. Takk fyrir þetta er nefnilega með hybrid sem ég hleð og hélt þetta væri eins og með vatnið. Fór bara eftir hvar þú býrð
kjartanbj skrifaði:Ég færði mig yfir til íslenskrar orkumiðlunar þegar ég keypti mér rafbíl, borga 14.35kr fyrir kw stundina samtals með dreifingu. Ég keypti síðan raspberry pi græju sem les af mælinum og setur upp í graf notkunina þannig ég get fylgst með daglegri notkun og kostnaði, er að nota ca 12kwst a dag nema þá daga sem ég hleð bílinn og fer svona 30-40kwst þá daga. Ég sendi síðan reglulega inn aflestur þannig ég borga jafnara yfir árið í stað þess að fá stóran reikning
dexma skrifaði:kjartanbj skrifaði:Ég færði mig yfir til íslenskrar orkumiðlunar þegar ég keypti mér rafbíl, borga 14.35kr fyrir kw stundina samtals með dreifingu. Ég keypti síðan raspberry pi græju sem les af mælinum og setur upp í graf notkunina þannig ég get fylgst með daglegri notkun og kostnaði, er að nota ca 12kwst a dag nema þá daga sem ég hleð bílinn og fer svona 30-40kwst þá daga. Ég sendi síðan reglulega inn aflestur þannig ég borga jafnara yfir árið í stað þess að fá stóran reikning
Ertu til í að deila meiri upplýsingum um þessa raspberry pi uppsetningu ?
ljoskar skrifaði:Þar sem ég hef pælt í þessu mikið þá vil ég Minna menn á það að Reikningur í heimabanka kostar 59kr hjá Íslensk orkumiðlun, 133kr hjá Orka Heimilanna en 0kr hjá Orkubúi vestfjarða.
Þegar ég var að spá í þessu þá hringdi ég í Orkusöluna og bað um afslátt og það var ekkert mál að fá hann, þannig ég mæli eindregið með því að skipta ekki bara í blindni heldur heyra í fyrirtækjunum fyrst....
MWF skrifaði:Íslensk Orkumiðlun selur held ég bara heimilum og er í eigu N1 og reynir að selja bensín til þín on the side.
Orkusalan er með ódýrara rafmagn til þeirra sem nota mikið, fyrirtækja og þess háttar.
Setjið ykkur í samband við Hafliða hjá Orkusölunni. Hann græjar rétt setup fyrir alla.
16 GB 2400MHz // Nvidia GTX 1080 // 2x Samsung PRO 500 GB // HDD 16 TB // ASRock Z97 Extreme6 // CM Silent Pro M 850W // Asus 4k ''28''
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
GuðjónR skrifaði:Ég spara 13.000 á ári með því að fara frá ON til Straumlindar.