Við enduðum á að reka augun í Titan X stólinn frá SecretLab eftir að hafa lent í 1.sæti á mörgum reviews síðum sem besti leikjastóll ársins 2020.
https://www.techradar.com/news/best-pc- ... in-comfort
https://www.ign.com/articles/the-best-gaming-chairs
https://www.pcmag.com/picks/the-best-gaming-chairs
Stóllinn býður bæði uppá Adjustable lumbar support, upphækkun og snúning á armrests, og memory foam púða sem fylgir stólnum.
Hér er hægt að nálgast fleiri upplýsingar um stólinn: https://secretlab.eu/collections/titan-series
Stóllinn kemur í 3 ára ábyrgð með möguleika á 2 ára auka ábyrgð gegn því að pósta mynd af stólnum á samfélagsmiðla.
Ég er búinn að vera í póstsamskiptum við þá úti og við fáum afslátt af stólunum með hóppöntun, hversu mikinn veit ég ekki enþá, en það má búast við að stóllinn kosti 70.000 kr hingað kominn með tolli og vsk. (án afsláttar)
Við ætlum að panta Stealth útgáfuna og pöntun fer í gang 1.júní. Þeir senda okkur stólana frá vöruhúsi í Póllandi og má búast við að stóllinn komi innan mánaðar.
Ef einhverjir hafa áhuga á því að koma inn á þessa pöntun með okkur og eignast frábæran tölvustól þá sendið mér endilega PM.
![Mynd](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2360/6457/files/turntable_2020_TT_pu_stealth_8-min.jpg?v=10508196449875707401)