zypx skrifaði:russi skrifaði:zypx skrifaði:Enginn?
rólegur Kiefer
Stutta svarið er já, betra svar er að koma netinu sem þú ert með fyrir útí bílskúr
Það er ekki í boði þar sem að þetta er bílskúr sem èg er að fara að leigja. Aðeins þráðlaust net í boði

Ertu semsagt að fara að leigja út bílskúrinn þinn og leigjandi vill fá net?
Hvað ertu með núna? Ljósleiðara, Ljósnet, ADSL?
Segjum að þú sért með Ljósleiðara frá GR, þú gætir pantað ljós frá Mílu(Símanum) inn til leigjandans, þú gætir komið Ljósneti þangað eða ADSL með því að virkja aðra línu í húskassanum hjá þér, það ættiru líka að geta gert ef þú ert nú þegar með Ljósnet þar sem flest hús hafa meira en eitt koparpar.
Það er fjölmargar leiðir í boði, þú verður að gefa okkur meiri upplýsingar til að geta svarað þér betur.