AntiTrust skrifaði:GuðjónR skrifaði:Banna snjallsíma í grunnskólum á skólatíma, punktur - basta.
Það er greinilega langt síðan þú varst 16 ára

Annars veit ég ekki hvernig ætti að framfylgja slíku banni, unglingar eru ekki að fara að skilja símana sína eftir heima á skólatíma.
Það eru nokkur ár já

En málið er að ég á tvö börn í grunnskóla og síðar á árinu verða þau þrjú, skólinn er í 6-7 klst. á dag og börnin hljóta að lifa þann tíma af án þess að vera með skjá fyrir framan sig.
Þið sem eigið börn vitið alveg hvernig þetta er, tölvur, símar, snjalltæki eða sjónvarp nánast í öllum frítímanum.
Fyrir utan það að þessi tæki eru farin að trufla kennslu þá trufla þau líka krakkana, krakkarnir líta varla upp úr símunm í frímínútunum og taka video/myndir og senda snapchat sín á milli eins og það sé engin morgundagurinn og skiptir þá engu máli hvort sá sem vídeoið er tekið af vill það eða ekki. Hvað með friðhelgi þeirra?
Ef skjáfíknin hjá börnum undir 15 ára aldri er orðin slík að þau eiga erfitt með að klára skóladaginn án þess vera með skjá í andlitinu þá er ílla komið og tími til kominn að gera eitthvað.
Ég hef líka tekið eftir því hérna í þorpinu að á sumrin sér maður alltaf færri og færri börn að leik, það skildi þó ekki vera að þau nenni ekki út að leika af því að þau eru inni í tölvunni?