Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Allt utan efnis

Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Snorrmund » Sun 18. Jan 2015 05:55

Sælir félagar, mér er farið að langa til þess að kaupa mér lóðbolta/lóðstöð, eitthvað sérstakt sem að þið mælið með ?
Einnig var ég að spá hvort það væri ekki hægt að kaupa einhvern pakka með slatta af viðnámum, þéttum, díóðum, transistorum og þessu helsta. Er alveg hægt að treysta á þessa rafeindahluti sem maður finnur á dx.com ? Búinn að finna það helsta sem mér vantar þaðan aðallega spá hvort þetta sé nokkuð algjört drasl.



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1570
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf audiophile » Sun 18. Jan 2015 08:22

http://www.fossberg.is/?prodid=1245

Kostar sitt en er mjög góđ.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf dori » Sun 18. Jan 2015 12:47

Þessi er Hakko 936 "klón": http://hobbyking.com/hobbyking/store/__ ... ouse_.html

Ég á svona nokkuð góð fyrir peninginn en náttúrulega ekkert á við "alvöru lóðstöð". Fer samt eftir því hvað þú ert að gera hvort það skipti máli.

Þessi hérna er miklu betri og ég hefði örugglega keypt hana frekar en hina ef ég hefði vitað af henni. Samt auðvitað 4x dýrari: http://www.amazon.com/Trakpower-TKPR095 ... B0051VD82U

Kosturinn við svona Hakko "klón" er að þú getur fengið fullt af góðum oddum á þær (eða drasl odda, góður oddur kostar náttúrulega jafn mikið og þessi Yihua stöð) og það er náttúrulega gríðarlega mikilvægt að vera með rétta stærð/lögun af oddi ef þú ætlar að gera eitthvað af viti.

Fer eftir því hvern þú spyrð en þessi Yihua er t.d. alveg "nógu nógu" fyrir einhvern sem notar þetta bara við og við. Sérstaklega þegar þetta kostar bara 4-5 þúsund kall komið heim.






Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Snorrmund » Sun 18. Jan 2015 13:36

Úfff, audiophile nú kom verkfærapervískan upp í mér og lýst vel á þessa sem þú bentir á. Þetta var samt aðallega hugsað sem svona hobbígræja til að vera með heima, þá held ég nú að ég byrji allavega frekar á einhverri ódýrari hehe.

En dori þessi virðist vera meira það sem ég hafði í huga, er einhver að selja þetta heima?



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf dori » Sun 18. Jan 2015 13:51

Neibb, þarft að panta þetta sjálfur. Það eina sem er í boði af lóðstöðum hérna heima eru svona flottar eins og audiophile vísar á (Fossberg, Miðbæjarradíó og fleiri) og svo frekar slappar en samt alveg frekar dýrar. Ég myndi t.d. örugglega frekar kaupa þessa Yihua og góðan odd en að borga einhvern 15-20 þúsund fyrir eitthvað hérna heima.

Mesti munurinn á virkilega góðu stöðunum og þessum ódýru er að hitaleiðnin fram í odd er ekki jafn mikil þannig að þegar þú snertir rás með miklum kopar (t.d. þykkir vírar eða stór jörð á prentplötu) þá droppa ódýru stöðvarnar miklu meira í hita sem gerir það að verkum að þú þarft að stilla þær á mun hærri hita og eykur líkur á að skemma eitthvað.

Passaðu bara að þú sért örugglega að taka 220v lóðstöð. Mjöööög mikilvægt.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1783
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf axyne » Sun 18. Jan 2015 14:21

Eflaust overkill fyrir þig, en ég er rosalega skotinn í þessari, er að nota svona í vinnunni.

Sjálfvirk hitareglun á oddinum tryggir að þú ert ávalt með réttan hita.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1570
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf audiophile » Sun 18. Jan 2015 16:03

Ég var einu sinni að vinna með svona vél, æðislegt tæki. Stafræn, fyrir lóðbolta, hitablástur, tinsugu og loftsog fyrir íhlutaáröðun.

http://uk.rs-online.com/web/p/soldering ... s/4315738/

En já fyrir svona einföld not ætti þessi Yiuha stöð að duga fínt og er á flottu verði. Ég setti bara inn Weller stöðina því þær eru bara svo awesome :)


Have spacesuit. Will travel.


Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Snorrmund » Mán 19. Jan 2015 05:39

Já er orðinn volgur fyrir þessari Yiuha stöð, ætli það sé ekki gáfulegast að byrja á þannig græju, svo ef maður fer að nota þetta eitthvað mikið þá hefur maður ástæðu til að eyða peningum í einhverja alvöru græju :)




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf linenoise » Mán 19. Jan 2015 12:00

Ætlaði að panta svona Yiuha gaur frá Hobbyking.
a) Hobbyking segir að pakkinn sé of stór fyrir delivery til Íslands.
b) Out of stock.
Þið sem hafið pantað svona, hvar pöntuðuð þið?

Ef ég nenni ekki pöntunarstússi, hvað er besta bang-for-the-buck sem fæst á Íslandi undir 20K?




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 945
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf arons4 » Mán 19. Jan 2015 12:12

http://www.velleman.eu/products/search/ ... mp=Product

Á sjálfur svona, ódýr og ágæt lóðstöð(enginn weller sammt) og kostar 23k í íhlutum




Scavenger
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Fös 17. Ágú 2007 21:34
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Scavenger » Mán 19. Jan 2015 12:50

Ég er með þessa stöð i vinnunni hjá mér og hún er alveg mögnuð. Kostar líka sitt :)

http://www.fossberg.is/?prodid=928



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2349
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 54
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Klaufi » Mán 19. Jan 2015 13:05

Mjög vönduð lóðstöð á entry level verði?
Hakko FX888D
/Thread


Mynd


linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf linenoise » Mán 19. Jan 2015 14:14

Klaufi skrifaði:Mjög vönduð lóðstöð á entry level verði?
Hakko FX888D
/Thread


Fæst þetta á Íslandi? Sé þetta ekki á netinu með site:*.is leit.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf linenoise » Mán 19. Jan 2015 14:22

Og ef þetta fæst ekki á Íslandi hvar getur maður pantað legit 220V útgáfuna þannig að þeir sendi til Íslands?



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf dori » Mán 19. Jan 2015 22:22

Ég hef pantað af Hobbyking og lent í smá vandræðum með þetta að þeir sendi ekki. Ertu að panta frá evrópska vöruhúsinu? Taktu 220v frá alþjóðlega vöruhúsinu, það ætti að virka.

FX888 er náttúrulega málið ef menn fá sér alvöru. Það er örugglega besta hobbígræjan og það besta fyrir peninginn sem þú færð. 220v kostar samt $200 og ef þú finnur eitthvað á lægra verði en það þá er það feik, það er alveg rosalega mikið af feik Hakko-um þarna úti (stór markaður fyrir feik 220v af því að 110v kostar bara ~$100). Það komið heim er alveg minnst 30 þúsund sem, þó það sé kannski ekkert mikið m.v. hvað þú ert að fá, alveg þó nokkur peningur.




playman
Vaktari
Póstar: 2000
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 72
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf playman » Mán 19. Jan 2015 23:21

Er með svona í vinnuni hjá mér http://uk.farnell.com/weller/whs40/sold ... /dp/957896
Er alveg hæst ánægður með hana fljót að hitna og svona, hægt er að fá hana með analog eða digital hitastilli,
digital er dýrara samt.
Hann ætti að fást í http://www.mbr.is minnir að ég hafi borgað um 18þ fyrir minn hérna fyrir norðan.
Ef að þau eiga ekki til það sem að þér langar í þá hafa þau alltaf verið almennileg og pantað fyrir mann (Séu byrgjar þeirra með þann hlut til sölu).
Getur skoðað byrgjana þeirra og séð hvort að einhver sé með stöð sem að þér líst á http://www.mbr.is/Default.asp?Page=240,
einnig bjóða þeir uppá þó nokkrar stöðvar http://uk.farnell.com/soldering-station ... g-stations


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

Snorrlax
Fiktari
Póstar: 60
Skráði sig: Sun 30. Des 2012 22:04
Reputation: 6
Staðsetning: ísland
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Snorrlax » Þri 20. Jan 2015 13:27

linenoise skrifaði:
Klaufi skrifaði:Mjög vönduð lóðstöð á entry level verði?
Hakko FX888D
/Thread


Fæst þetta á Íslandi? Sé þetta ekki á netinu með site:*.is leit.


http://www.ihlutir.com/?q=station

ætti að vera til í íhlutum á 30 þús, er reyndar útgáfan án skjá sýnist mér.


i5 4670K//R9 290//Gigabyte GA-Z87-D3HP//Crucial Ballistix Sport (4x8GB)-----HD650//Mad Dogs//Porta Pro//CX 5.00// HD 4.30//M-Audio BX8

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf dori » Þri 20. Jan 2015 13:29

Snorrlax skrifaði:
linenoise skrifaði:
Klaufi skrifaði:Mjög vönduð lóðstöð á entry level verði?
Hakko FX888D
/Thread


Fæst þetta á Íslandi? Sé þetta ekki á netinu með site:*.is leit.


http://www.ihlutir.com/?q=station

ætti að vera til í íhlutum á 30 þús, er reyndar útgáfan án skjá sýnist mér.

37 þúsund (með vsk) og já, það er analog útgáfan. Ég held að það sé enginn ókostur á fá þessa analog stöð, ekkert verri til að lóða en digital stöðin.




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Tbot » Þri 20. Jan 2015 14:32

dori skrifaði:
Snorrlax skrifaði:
linenoise skrifaði:
Klaufi skrifaði:Mjög vönduð lóðstöð á entry level verði?
Hakko FX888D
/Thread


Fæst þetta á Íslandi? Sé þetta ekki á netinu með site:*.is leit.


http://www.ihlutir.com/?q=station

ætti að vera til í íhlutum á 30 þús, er reyndar útgáfan án skjá sýnist mér.

37 þúsund (með vsk) og já, það er analog útgáfan. Ég held að það sé enginn ókostur á fá þessa analog stöð, ekkert verri til að lóða en digital stöðin.


Ertu brjálaður maður. Það er stór munur á því hvort þú lóðar hliðrænt eða stafrænt, munar öllu á áferðinni og viðloðun við koparinn.
:megasmile




Höfundur
Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf Snorrmund » Mið 21. Jan 2015 01:01

Þakka kærlega fyrir öll þessi svör! Ætla aðeins að pæla í þessu áður en ég panta eitthvað, kominn með dass af valkvíða núna haha!

En í upphafspósti var ég með aðra spurningu, ef ég ætla að kaupa mér íhluti eins og viðnám, þétta, díóður ofl er alveg safe að versla þannig af aliexpress, dx.com og álíka síðum ? Einhverjar síður sem þið mælið með frekar en aðrar ?




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 945
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf arons4 » Mið 21. Jan 2015 01:20

Digikey ef þér liggur ekki á, miðbæjarradíó ef þér liggur á.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf dori » Mið 21. Jan 2015 09:51

Það er alveg "safe" að kaupa þetta af dx.com ef þú vilt bara eitthvað sem svona sirka virkar (alveg nóg ef þú ert bara að leika þér). Annars eins og arons4 bendir á, Digikey/Mouser/Farnell.

Þar sem þú ert bara að leika þér myndi ég mæla með að finna bara einhverja svona pakka með t.d. allskonar 1/4W viðnámum á einhverju temmilega stóru bili og eins með þétta.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf linenoise » Fim 22. Jan 2015 11:42

arons4 skrifaði:Digikey ef þér liggur ekki á, miðbæjarradíó ef þér liggur á.

Eða Miðbæjarradíó ef þú vilt supporta local...




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 945
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf arons4 » Fim 22. Jan 2015 12:04

linenoise skrifaði:
arons4 skrifaði:Digikey ef þér liggur ekki á, miðbæjarradíó ef þér liggur á.

Eða Miðbæjarradíó ef þú vilt supporta local...

Ekki þegar verðmunurinn er 50-100% EFTIR alla tolla frá digikey.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Lóðbolti/Lóðstöð með hverju mælið þið?

Pósturaf linenoise » Fim 22. Jan 2015 15:41

Yihua hingað komin er á ca. 8000 kall frá Hobbyking (sendingarkostnaðurinn er mun meiri en helvítis lóðstöðin, svo bætist vsk ofan á) og er þar að auki out of stock og er búin að vera það lengi. Hefur einhver samanburð við Velleman sem er á 23k hérna á Íslandi (næst ódýrasti kosturinn sem hefur verið nefndur hérna, ef ég skil þetta rétt).

Og af því ég veit mjög lítið: Hver er munurinn i praxis á lóðstöð og bara lóðbolta. T.d. þessum hérna: http://www.computer.is/vorur/2022/