Mig vantar hugmyndir að því sem ég gæti eldað á hverjum degi fyrir sig
Mánudag
þriðjudag
miðvikudag
fimmtudag
föstudag
laugardag
sunnudag
Ekkert brauð, enginn sykur og engar unnar vörur

GuðjónR skrifaði:Dominos pizza?
Moldvarpan skrifaði:Hvernig mat ætlaru að elda þér?
Ætlaru að taka hollann íslenskann matseðil á þetta og hreyfa sig?
Eða ætlaru í átak, as in borða grænmeti í viku með smá kjúkling á kantinum?
Klemmi skrifaði:Á því miður ekki tilbúinn uppskriftalista fyrir þig, en þegar ég fór í átak var innkaupalistinn samsettur af:
Létt smurostur
Lifrakæfa - SS, fituminni?
Reyktur silungur/lax
BBQ sósa - með litlum sykri (mustard almennt með minnstum viðbættum sykri)
Djúsþykkni
Túnfiskur
Rækjur
KEA hreint skyr
Hrökkbrauð - Spelt?
Kjúklingabringur
Brún hrísgrjón
Sætar kartöflur
Kotasæla
Egg
Bananar
Appelsínur
Perur
AntiTrust skrifaði:Morgunmatshugmyndir:
- 2x weetabix með fjörmjólk og rúsínum + hreint whey prótín til að bragðbæta
- 40gr hafragrautur með kolvetnissnauðu skyri eða whey prótín
- Prótínpönnukaka (eggjahvítur og syntha6 t.d.) með Walden farms zero kcal sósum (insanely gott!)
- Boozt, kolv.snautt skyr, 1-2 ávextir og 1sk whey prótín
- 50gr bygg morgunkorn með fjörmjólk og rúsínum og/eða prótíni
Millimálshugmyndir:
- Hámark og banani/epli
- 2-3 hrökkbrauð með kotasælu
- 2 poppkex með grófu hnetusmjöri og þunnum eplasneiðum
- Kolvetnissnautt skyr, banana (og með Walden Farms súkkulaðisósu er eins og bananasplitt)
- Flatkökur með kjúklingaskinku og lágfitu osti eða lágfitu smurosti
- Prótíndrykkur og lúka af hnetum/möndlum
Hádegis- og kvöldmatarhugmyndir:
- 200gr hreint kjöt, naut eða kjúklingur með sætum kartöflum/sætum frönskum (rétt sneiddar og rétt bakaðar er þetta nammi)
- 150-200gr hvítur fiskur með brúnum hrísgrjónum, hérna skiptir máli að nota góða en orkusnauðar sósur og góð krydd
- 150gr feitur fiskur, silungur eða lax og nóg af grænmeti með
- Kjúklingasalat, helst heimagert, 150-200gr kjúlli, ferskt grænmeti og góð orkusnauð dressing/olía yfir. Nokkrir stökkir brauðteningar gera helling
- Ommeletta, 3dl af hvítum, sveppir, kjúklingaskinka, paprika, krydd, etc
- Eggjanúðlur með kjúklingi (Nings bjóða t.d. uppá þetta, reyndar alltof lítið af kjúlla en að öðru leyti í lagi)
- Kjúklingaburger, heil eða þunnt sneidd bringa elduð á pönnu/grilli, kolvetnalág BBQ sósa, grænmeti, ananas, gott krydd og 1/2 spelt hamborgarabrauð + sætar franskar
- Heimagert fajitas í speltu brauði, kjúkling, grænmeti, salsa og léttum sýrðum rjóma
- Mexíkóýsa frá Grím Kokk
Kvöldnarsl í neyð:
- Möndlur og hnetur, passa uppá magn og salt
- Prótínís, frosin jarðaber, bananar, fjörmjólk og ýmist ávaxtaprótín (jarðaberja t.d.) þeytt saman
- Eggjahvítufluff, eggjahvítur og xanthagum þeytt saman með dropum af stevíu
- Harðfiskur
- Lítil prótínpönnukaka með slettu af jógúrtís og Waldens zero kcal caramel sósu (uppáhaldið mitt)
Plushy skrifaði:Taka Djúsþykknið út úr þessu, ekkert nema sykur og hægt að drekka bara vatn í staðinn
Klemmi skrifaði:Vissulega er þykkni aðallega sykur, eða aspartame ef þú kaupir "sykurlaust, en hins vegar má vel blanda þetta í hlutföllum 1/16 - 1/20, Egils og fleiri segja 1/8 en þá er hann rótsterkur og ógeðslegur.
Þegar þú blandar í þessum hlutföllum ertu kominn með ágætis djús sem inniheldur ekkert svakalegt magn af sykri. Sjálfur verð ég fljótt þreyttur á að drekka eingöngu vatn með mat