Það heitir TinyGrab
Ég nota það óspart síðan ég fann það, og vildi að maður hefði haft kost á að nota það miklu fyrr.
svo hvað er þetta?
Þetta er frítt forrit + frí basic þjónusta
Maður þarf að gera reikning á síðunni http://tinygrab.com/ og niðurhala forritinu
eftir það keyrir það í bakgrunninum eftir ræsingu og gerir manni kleyft að deila skjágripi (screenshot) í nokkrum sekúndum (fer eftir stærð myndar)
maður heldur inni ctrl+shift og 4 þá breytist örin í kross og maður velur það svæði sem maður vill deila og forritið grípur það svæði býr til myndaskjal, upphalar því á netið og setur tengilinn á clipboardið tilbúið fyrir innsetningu í póst allt sjálfvirkt og eldsnöggt, myndirnar eru bæði vistaðar á tölvunni og á reikninginum þínum á netinu.
Þetta geris pósta miklu skemmtilegri því sjón er sögu ríkari og maður þarf ekki að eyða nokkrum mínútum að grípa skjáinn með printscreen opna skjalið í paint og klippa út viðkomandi hluta vista í nýju skjali, svo fara á síðu sem leyfir upphal, og slá inn eitthvern kóða til að komast inn þar áður en maður loksins fær tengilinn á myndina til að pósta, eða þannig gerði maður þetta áður, en nú er 5 mínútna vinna orðin að 5 sekúndum fyrir mann

vonandi gagnast þessar upplýsingar eitthverjum.