Best að byrja á því að segja að ég er ekki neitt ofboðslega þróaður í tölvumálum (Má líkja því að vera mellufær í dönsku) en get og veit eitthvað smá samt, en málið er að netið er hægara heima en á vinnustaðnum... og vinnustaðurinn er á frystitogari við íslandsstrendur! Er ekki með ljósnet, því miður, en er með hröðustu tenginuna hjá símanum.
Það getur verið að ég sé með of marga nettengda hluti dags daglega, 3 PC tölvur, 2 síma, 1 spjaldtölvu og sjónvarp... en sjaldnast, eða aldrei, er þetta allt í gangi og torrent er mjög sjaldan í gangi. Þrátt fyrir þetta get ég ekki horft á video á youtube með góðu móti og það er nánast ómögulegt að stream-a HD video úr spjaldtölvunni yfir í sjónvarpið án þess að það sé að buffera á 10 sec fresti.
Ég er búinn að fá nýjan router, endalausar stillingar á hraða á línunni hjá mér, óteljandi símtöl við tæknimenn símans og ég veit ekki hvað og hvað!
Best að bæta því við að þegar ég tók hraðatest á speedtest.net þá var ég að ná 7mb niður með slökkt á öllu öðru nettengdu og var snúrutengdur við routerinn...
Á vaktin einhver skotheld ráð fyrir mann sem vill komast inn í árið 2013?? (Ljósnetið er ekki komið í mitt bæjarfélag btw
