coldcut skrifaði:Hargo skrifaði:Er spítalinn að borga sæmilega hvað varðar störf í tölvuþjónustunni hjá þeim?
Án þess að fullyrða neitt um það þá hugsa ég ekki. Ríkisstofnanirnar geta því miður ekki keppt við einkageirann þegar kemur að launum.
Laun eru afstætt hugtak.
Ríkið getur ekki keppt í "krónum", sérstaklega ekki LSH, en starfsöryggi, sveigjanleiki, starfsþróun, möguleikar t.d. á samstarfi við aðrar stofnanir eða ýmis önnur tækifæri innan opinbera geirans. (ef fólk vinnur vinnuna sína)
Það er ákveðin hugsjón að vinna hjá ríkinu og þvert á það sem fólk segir, þá þarf hellings metnað.
Þjónustuborðið á LSH tekur á móti 58.000 erindum á ári í síma, tölvupóst eða í gegnum semi úrelt beiðnakerfið.
Við sjáum um aðgangsumsjón skv. lögum um rafræna sjúkraskrá (45.000 aðgangsbreytingar fyrstu níu mánuði þessa árs (ekki innifalið í þessum 58.000))
Við sinnum vettvangsþjónustu hjá LSH sem er á c.a. 30 lóðum í RVK og um 70 byggingum.
Auglýsingin segir að um 70 séu á deildinni, þar af eru um 15 á þjónustuborðinu sem skiptist svo í nokkra hluta sem reynt er að rótera fólki á milli, s.s. símaþjónusta, bakvinnsla, vettvangsþjónusta og aðgangsstjórnun.
Við erum ISO 27001 vottuð og erum að reyna að tileinka okkur ITIL a.m.k. í nálgun við veitingu þjónustu.
Hjá flestum fyrirtækjum er einhver sem hefur unnið hjá LSH, Advania, Nýherji, OK, HR a.m.k. sem mér dettur strax í hug... bara spyrja viðkomandi hvernig það var og fá þetta beint í æð.
Einnig er sjálfsagt mál að senda póst, hafa samband í síma og jafnvel kíkja í heimsókn ef einhver vafi blundar í ykkur.