Hringdu.is

Allt utan efnis

Doribj
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 24. Feb 2010 09:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Doribj » Lau 27. Ágú 2011 22:53

Það er mín reynsla að þeir séu ekki fljótir að svara í símann ef að þeir svara. Þeir hringja heldur ekki í þig, það er ekki
heldur mín reynsla af þessu fyrirtæki. Beið í heilan mánuð eftir að þeir gætu tengt mig aftur eftir að tengingin slitnaði.
Einu samskipti þeirra við mig var í gegnum eitthvað verkbeiðna kerfi sem að lét mig vita að vandamálið hefði verið leyst,
en engu að síður var mitt vandamál ekki leyst, ég var enn netsambandslaus. En ég þarf ekki lengur að láta þetta allt á mig
fá, skipti um internet þjónustuaðila og það tók þá innan við sólahring að gera það sem að hringdu tókst ekki á mánuði.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Mið 31. Ágú 2011 17:56

Depill, Adele er löngu orðin leið. Það nennir enginn að hlusta á símtólið með hana í eyranu svona lengi. Hringdu verður að gera eitthvað í þessari hrikalega löngu biðröð. (Mig vantar vinnu með skóla og er með mikla reynslu af netkerfum og netbúnaði til heimabrúks sem og netlögnum (hint hint))

Annars stend ég á krossgötum núna, ég veit hreinlega ekki hvort ég nenni að standa í þessu veseni með GR/Hringdu eða fara bara á ADSLið. Núna fæ ég þá villumeldingu að sama netheiti sé skráð í notkun annarsstaðar og hringdi ég í GR og var tjáð að þetta þyrfti að fara í rétthafabreytingu. Síðan hringir í mig maður frá GR og segir að frv. íbúi hússins sem ég er að flytja í þurfi að tilkynna GR flutninginn og uppsögnina. En hann er náttúrulega löngu fluttur, hann flutti í Maí.

Annars fíla ég ekki að þeir loka á GR kl 17. ... 17!



Skjámynd

C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 272
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 24
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Tengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf C2H5OH » Mið 31. Ágú 2011 18:53

Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Mið 31. Ágú 2011 19:01

C2H5OH skrifaði:Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy


Segðu mér meira frá rétthafaveseninu, ég stend einmitt í sama veseni.



Skjámynd

C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 272
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 24
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Tengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf C2H5OH » Mið 31. Ágú 2011 19:07

tdog skrifaði:
C2H5OH skrifaði:Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy


Segðu mér meira frá rétthafaveseninu, ég stend einmitt í sama veseni.

Sá sem ég talaði við í þjónustuverinu hjá Hringdu (man ekki nafnið) sendi póst á GR og þessu var breytt daginn eftir :) sá sem var skráður fyrir boxinu hefur reyndar ekki búið hérna mjög lengi.




Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Tesy » Mið 31. Ágú 2011 21:46

C2H5OH skrifaði:Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy


Mikið rétt, það tekur frekar langan tíma að koma allt í lag, en þegar allt er komið er ekkert vesen :D búinn að vera hjá Hringdu í 1-1,5 mán og hef aldrei verið sáttari með netið.



Skjámynd

nino
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Sun 24. Júl 2011 13:23
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf nino » Mið 31. Ágú 2011 21:50

C2H5OH skrifaði:Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy



Hvaða hraða eru menn almennt að fá hjá Hringdu? Ég fæ ekki nema 2-3MB/s max, dettur eiiinstaka sinnum upp í 4MB/s, og þá er ég að tala um með Cat6 kapal. Er með Linksys E3000 router þannig að ég efast um að hann sé vandamálið. Mér finnst þetta einkennilegt því í dag prófaði ég að fara heim til foreldra minna sem eru með internetið hjá Tal og E1000 router, og fékk stöðugan 4.5MB/s hraða á sömu skrá og ég var að ná í á á 2-2,5 MB/s.

Ég gerði Speedtest eins og C2H5OH og fæ svimandi háar tölur innanlands (94-96Mbps), en fæ á bilinu 5-25Mbps ef ég prófa erlenda servera á Speedtest.




maggik
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Mið 03. Ágú 2011 13:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf maggik » Mán 05. Sep 2011 14:39

Ég var alltaf voðalega spenntur fyrir þessu fyrirtæki og flott að fá samkeppni á markaðinn þannig að ég sagði við kærustuna að fá sér tengingu hjá Hringdu.

Við s.s fórum á fimmtudegi og græjuðum þetta, sölumaðurinn mælti með ljósleiðara og við tókum það, svo sagði hann okkur að þetta kæmi inn seinnipartinn eða næsta morgun (föst) sem okkur þótti hið besta mál.
Um hádegis bil á föstudeginum var ekkert net komið þannig að ég hringi og tékka á þessu, bíð og bíð og bíð þangað til að ég fæ loksins samband við tæknimann, hann segir að verið sé að vinna í þessu og hann hringi í mig eftir 10 mins, 10 mín liðu og svo nokkrir klukkutímar þannig að ég hringi aftur, þá fæ ég sama svar að hring verið eftir smá, sama saga ekki var hringt það sem eftir var af deginum, ég hringi svo eftir kvöldmat og óska eftir skýringum bara svo að ég geti áttað mig á því hvað sé í gangi og hvenær við meigum eiga von á netinu, þá fékk ég frekar leiðinleg viðbrögð um að þeir væru að vinna í þessu beiðnin væri komin til þeirra sem reka ljósleiðaraboxin, rétthafabreyting hafi átt sér stað svo þetta ætti að ganga í gegn án vandræða að ég hélt allacega, gaurinn hljómaði frekar pirraður á því að ég væri að óska svara......Svo skeði ekkert :svekktur .

Á laugardeginum læt ég konuna hringja þar sem þetta var á hennar nafni, hún bíður og bíður, fær svo svar frá tæknimanni sem segir henni að hann skuli skoða þetta og hringi aftur eftir korter ef ekki eigi hún að hringja aftur og spurja eftir honum, hann hringir ekki aftur svo við ákveðum að hringja þá svarar einhver annar starfsmaður og segir að sá sem hafi talað við okkur áður sé ekkert við og ekki von á honum strax en hann gæti örugglega hjálpað okkur með þetta, hann kannar málið og eftir smá stund segir hann "það hefur ekkert verið lögð beiðni til þeirra sem eiga ljósleiðaraboxið, en ég skal gera það fyrir ykkur".

Fyrir mína parta þykir mér þetta ekki góð þjónusta og erfitt að fá skýr svör, nú krossar maður bara fingur og vonar að þetta detti inn í dag, frekar fúlt að fá þau svör að við meigum eiga von á tengingu samdægurs (fimt) eða næsta dag og þurfa svo að bíða fram á mánudag eftir tengingu, ef hún þá kemur í dag. [-o<



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf ponzer » Mán 05. Sep 2011 15:08

nino skrifaði:
C2H5OH skrifaði:Er búinn að vera með ljós hjá Hringdu núna með ljós í mánuð og ég er bara rosalega ánægður aldrei neitt vesen, tengingin alltaf uppi. :happy
Hraðatest:
Mynd

eina það sem maður hefur út á að setja er biðtíminn í þjónustuverinu, þegar ég pantaði tengingu frá þeim þá var ég á bið í svona 20 min og svo var einhver rétthafa-vesen á ljósboxinu, og þeir redduðu því daginn eftir og tengingin var komin í gang. :happy



Hvaða hraða eru menn almennt að fá hjá Hringdu? Ég fæ ekki nema 2-3MB/s max, dettur eiiinstaka sinnum upp í 4MB/s, og þá er ég að tala um með Cat6 kapal. Er með Linksys E3000 router þannig að ég efast um að hann sé vandamálið. Mér finnst þetta einkennilegt því í dag prófaði ég að fara heim til foreldra minna sem eru með internetið hjá Tal og E1000 router, og fékk stöðugan 4.5MB/s hraða á sömu skrá og ég var að ná í á á 2-2,5 MB/s.

Ég gerði Speedtest eins og C2H5OH og fæ svimandi háar tölur innanlands (94-96Mbps), en fæ á bilinu 5-25Mbps ef ég prófa erlenda servera á Speedtest.


Ég er að fá steady 100Mb/s niður og rúmlega 50 í upload er að nota Smoothwall vél sem router. Mjög sáttur


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Mán 05. Sep 2011 15:11

Hvar er depill núna, ég heimta svör á þessari þjónustu.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Sep 2011 15:23

tdog skrifaði:Hvar er depill núna, ég heimta svör á þessari þjónustu.

depill er týndur...ég er ítrekað búinn að reyna að ná á honum með ep og emailum...en virðist vera á /ingore hjá honum.
Og fyrst ég er á ignore...þá held ég að þið getið gleymt því að fá svör frá honum, enda hefur hann hefur ekki sést hérna síðan 18 júlí...




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1755
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf blitz » Mán 05. Sep 2011 15:43

Slappið af, ekkert óeðlilegt að það séu smá byrjunarerfiðleikar.

Skulum allir muna þegar Hive kom fyrst á markað og ruddi veginn fyrir ókeypis innlendu downloadi (minnir mig) og ódýrari erlendu downloadi


PS4

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Sep 2011 15:46

blitz skrifaði:Slappið af, ekkert óeðlilegt að það séu smá byrjunarerfiðleikar.

Skulum allir muna þegar Hive kom fyrst á markað og ruddi veginn fyrir ókeypis innlendu downloadi (minnir mig) og ódýrari erlendu downloadi


Við vitum líka hvar Hive endaði :roll:



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Mán 05. Sep 2011 18:15

Mér finnst agalega lélegt af kompaníi að halda manni í símanum á bið í 20 mínútur lágmark í hvert skipti þegar maður þarf að hafa samband við tæknifulltrúa. Ég er búinn að hringja 4 sinnum í þá, aldrei verið á bið í skemur en 20 mínútur.

Hér fylgir listi yfir símtöl mín til Hringdu og til GR og kostnað þeirra. (úr mínum persónulega síma, ég hef 1x hringt úr heimasíma foreldra minna og 1x úr gsm síma mömmu, en þá í söluverið)

5. sept 2011 31 mínúta 534kr - Hringdu (þjónustuver) btw ég skelti á eftir 31 mínútu og hringdi úr öðrum síma í söluverið og var svarað nær samstundis.
29. ágúst 2011 14 mínútur 246kr - GR
27. ágúst 2011 22 mínútur 382kr - Hringdu (þjónustuver)
26. ágúst 2011 9 mínútur 162kr - Hringdu (söluver) (þjónustan pöntuð)

Samkvæmt Þjónustuvef Símans er ég því búinn að hringja í Hringdu (og GR) fyrir 648kr (og 632kr). Þjónustan sem ég hugðist kaupa af fyrirtækinu kostar 1.995 kr (2.410 til GR) samtals 4.405 kr. En í raunveruleikanum er ég búinn að spandera 5.685 krónum í þjónustu (sem ég hef btw ekki fengið ennþá) hjá Hringdu.

Ps. Adele er orðin þreytt.



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf gardar » Mán 05. Sep 2011 20:52

blitz skrifaði:Slappið af, ekkert óeðlilegt að það séu smá byrjunarerfiðleikar.

Skulum allir muna þegar Hive kom fyrst á markað og ruddi veginn fyrir ókeypis innlendu downloadi (minnir mig) og ódýrari erlendu downloadi


Hive byrjuðu með ótakmarkað erlent niðurhal.

Málið er að þessi fyrirtæki fá allt of mikið af kúnnum og passa sig ekki á því að stækka netgáttir og bæta við starfsfólki í support teymi.
Það sem hringdu hefðu átt að gera væri að stækka utanlands gátt sína eða setja limit á kúnna, taka bara við X mörgum kúnnum í senn. En menn græða jú víst ekki jafn mikið á því.




Doribj
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 24. Feb 2010 09:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Doribj » Mán 05. Sep 2011 21:57

maggik skrifaði:Ég var alltaf voðalega spenntur fyrir þessu fyrirtæki og flott að fá samkeppni á markaðinn þannig að ég sagði við kærustuna að fá sér tengingu hjá Hringdu


Það var sama sagan hjá mér. Ég hugsaði með mér að ef til vill væru þetta byrjunar örðuleikar og að maður ætti bara að vera þolinmóður. Svo að ég gaf þeim mánuð til að koma vandamálunum mínum í lag, sem að því miður voru orðin allnokkur. Eftir að þessi mánuður var liðinn sá ég að það var ekkert að gerast, sem sagt að ef ég gæfi þeim meiri tíma þá mundi bara líða lengri tími þar til að ég fengi internet, og því miður var eina lausnin að finna annan þjónustuaðila.
Mig langaði til að gefa nýju fyrirtæki tækifæri þar sem að þeir eru með góð verð og auglýsa góðan hraða á tengingum sínum, ég sendi þeim póst og tjáði þeim að mig langaði að vera í viðskiptum við þá, en þegar að þessi mánuður var liðinn var ég bara búinn að fá nóg. Það var nákvæmlega ekkert að gerast. Ég vona að þeim takist að hrista af sér þessa svakalega slæmu þjónustu og koma sér á beinubrautina því að þeir lofuðu góðu, en því sem að þeir lofuðu gátu þeir bara ekki staðið við. Það er mjög skrítið að þeim takist ekki að laga tengingu sem að fyrir einhverja hluti hætti að synca á einum mánuði þegar að hinn þjónustuaðillinn getur það á innan við sólarhring.



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf ponzer » Mán 05. Sep 2011 23:15

gardar skrifaði:
blitz skrifaði:Slappið af, ekkert óeðlilegt að það séu smá byrjunarerfiðleikar.

Skulum allir muna þegar Hive kom fyrst á markað og ruddi veginn fyrir ókeypis innlendu downloadi (minnir mig) og ódýrari erlendu downloadi


Hive byrjuðu með ótakmarkað erlent niðurhal.

Málið er að þessi fyrirtæki fá allt of mikið af kúnnum og passa sig ekki á því að stækka netgáttir og bæta við starfsfólki í support teymi.
Það sem hringdu hefðu átt að gera væri að stækka utanlands gátt sína eða setja limit á kúnna, taka bara við X mörgum kúnnum í senn. En menn græða jú víst ekki jafn mikið á því.


Ég er sammála þessu með þjónustunverið þeirra en utanlandsgáttin þeirra virðist vera mjög fín. Það væri ekkert smá fáránlegt fyrir Pétur og Pál sem ætla að kaupa þjónustu af Hringdu og þeim er sagt að við tökum ekki við fleirri viðskiptavinum í senn, reyndu aftur síðar :D


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.

Skjámynd

Steini B
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 368
Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
Reputation: 12
Staðsetning: í bjórbaði
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Steini B » Þri 06. Sep 2011 00:06

ponzer skrifaði:
gardar skrifaði:
blitz skrifaði:Slappið af, ekkert óeðlilegt að það séu smá byrjunarerfiðleikar.

Skulum allir muna þegar Hive kom fyrst á markað og ruddi veginn fyrir ókeypis innlendu downloadi (minnir mig) og ódýrari erlendu downloadi


Hive byrjuðu með ótakmarkað erlent niðurhal.

Málið er að þessi fyrirtæki fá allt of mikið af kúnnum og passa sig ekki á því að stækka netgáttir og bæta við starfsfólki í support teymi.
Það sem hringdu hefðu átt að gera væri að stækka utanlands gátt sína eða setja limit á kúnna, taka bara við X mörgum kúnnum í senn. En menn græða jú víst ekki jafn mikið á því.


Ég er sammála þessu með þjónustunverið þeirra en utanlandsgáttin þeirra virðist vera mjög fín. Það væri ekkert smá fáránlegt fyrir Pétur og Pál sem ætla að kaupa þjónustu af Hringdu og þeim er sagt að við tökum ekki við fleirri viðskiptavinum í senn, reyndu aftur síðar :D

Þú ferð í bíó og það standa til boða 2 salir, í báðum sölum eru 5000 mans
Annar er með 6000 sæti, en hinn er með 4000 sæti
Hvorn salinn veluru?


Ég mundi miklu frekar vera settur á biðlista með að komast inn og fá þá þjónustu sem maður á að fá þegar maður kemst inn.
Ekkert gaman ef það er allt yfirfullt þannig að þeir hafa ekki undan að þjónusta öllum...




Nuketown
Ofur-Nörd
Póstar: 265
Skráði sig: Sun 10. Júl 2011 20:09
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Nuketown » Þri 06. Sep 2011 08:53

Ég var að panta ljósleiðara hjá hringdu og get ekki beðið eftir að losna við 3g netið!...

Ég hef nokkrum sinnum þurft að senda þeim tölvupóst og hringja og það hefur alltaf verið svarað samstundis.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Þri 06. Sep 2011 09:15

Steini B skrifaði:Þú ferð í bíó og það standa til boða 2 salir, í báðum sölum eru 5000 mans
Annar er með 6000 sæti, en hinn er með 4000 sæti
Hvorn salinn veluru?

Lélegt dæmi.
Ef að þjónustan hjá salnum með fleiri viðskiptavini er betri en hjá þeim með færri... Þá veluru salinn með fleiri áhorfendum.




starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf starionturbo » Þri 06. Sep 2011 11:52

Ahh thank god að maður fór ekki í einhvern svona pakka :)


Foobar

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3818
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Daz » Þri 06. Sep 2011 13:14

Ætli viðskiptamódelið fyrir nýjar samskiptaveitur (internet/sími) þurfi einmitt ekki að ganga út frá því að fá inn fleiri kúnna en maður getur þjónustað til að fá inn nóg af pening til að geta stækkað? Þetta var þekkt hérna í gamla daga þegar upp komu internet providerar með frí-númer, bara fast mánaðargjald. Byrjuðu með eðal þjónustu, orðrómurinn fór hratt um, fjöldi áskrifenda margfaldaðist og þjónustan réð enganvegin við fjöldann og gagnamagnið.

Ekki að ég sé að verja Hringdu neitt sérstaklega, bara vangavelta.



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf tdog » Þri 06. Sep 2011 13:21

Ef að það á að halda í þessa viðskipta vini þarf að vera með almennilegt þjónustuver.




maggik
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Mið 03. Ágú 2011 13:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf maggik » Þri 06. Sep 2011 18:47

Jæja netið var að detta inn eftir 1x inneignaráfyllingu og ógeðslega mikla þolinmæði.

Hringdu.is fær algera falleinkun hjá mér fyrir ömurlega þjónustu, mæli ekki með þessu fyrirtæki við nokkurn mann.



Skjámynd

Steini B
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 368
Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
Reputation: 12
Staðsetning: í bjórbaði
Staða: Ótengdur

Re: Hringdu.is

Pósturaf Steini B » Mið 07. Sep 2011 00:04

tdog skrifaði:
Steini B skrifaði:Þú ferð í bíó og það standa til boða 2 salir, í báðum sölum eru 5000 mans
Annar er með 6000 sæti, en hinn er með 4000 sæti
Hvorn salinn veluru?

Lélegt dæmi.
Ef að þjónustan hjá salnum með fleiri viðskiptavini er betri en hjá þeim með færri... Þá veluru salinn með fleiri áhorfendum.

Miðað við það sem maður les hérna að þá eru margir að fá sama og sem enga þjónustu = ekkert sæti....