óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Allt utan efnis

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 17:04

Ég sé enga ástæðu fyrir neinn til að samþykja mér opinberlega því að gæti átt möguleika á þvi að verða gagnrýndur á sama hátt og ég og margir aðrir hehe

En flott ef þú sérð eitthvað áhugavert við þetta pallz

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2473
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 232
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf GullMoli » Sun 17. Okt 2010 17:05

Pallz skrifaði:Done.

EHEHEHEHEHEHE

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Páll
/dev/null
Póstar: 1426
Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
Reputation: 0
Staðsetning: Undir töfra regnboganum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Páll » Sun 17. Okt 2010 17:07

GullMoli skrifaði:
Pallz skrifaði:Done.

EHEHEHEHEHEHE

?

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 17:27

Halli13 skrifaði:
daniellos333 skrifaði:2. Loftsteinar skipta sér ekki í 3 nákvæmlega jafn stóra parta og stoppa síðan fyrir ofan jörðina og mynda þríhyrnings fylkingu.

Hvernig geta 3 loftsteinar ekki myndað þríhyrning ef þeir eru á sama stað á sama tíma?

Ég veit ekki einusinni hvað fær fólk til að hata hugmyndina við það að það gæti verið einhver önnur skýring á þessu heldur en loftsteinar..

Ég er að segja að mér finnst líklegt að þetta sé ómennskt (ég veit ekki hvað samt) því að ég veit að ekkert byggt með mennskum höndum getur hegðað sér eins og þessi hlutur sem skipti sér síðan gerði.

Og jafnvel ef þetta væri byggt af mennskum höndum þá væri sú þjóð sem gerði þetta líklegast að halda þessu í félum því að við höfum aldrei séð þetta í dags-ljósi né heyrt talað um þetta. Þessvegna finnst mér skrítið að sú þjóð sé að gera

tilraunir með þetta á stað þar sem aðrir geta séð þetta og mynda síðan þríhorna fylkingu sem er í nákvæmu sjónarhorni við lensu myndavélarinnar.

t.d afhverju var fylkingin ekki mynduð í aðra átt heldur en nákvæmlega beint á myndavélina?

Fregnir segja að þessar verur sem eru búnar að vera að heimsækja okkur seinustu árin geta lesið huga og eru á margfælt hærra stigi í sálrænum skilning heldur en við menn og eiga samskipti í gegnum hugann.

Nú þegar við plúsum þessar fregnir við öll skiptin sem fylking hefur verið mynduð í nákvæmu sjónarhorni við myndavélamannin svo að hann gat séð fylkinguna nákvæmlega þá getum við dregið framm þá ályktun að EF þetta er það sem

þetta gæti verið þá eru þær að reyna að búa til sönnunargögn hægt og rólega með því að reyna að láta sjá sig þar sem fólk með myndavélar er staðsett.

Afhverju eru þær hægt að rólega að byggja upp sönnunargögn í staðin fyrir að lenda strax? Því að þær vita að við menn erum rétt svo að vonast til þess að finna örverur/bakteríur á Mars.

Vill líka benda á það að ég er ekki hræddur við gagnrýni. Ég nefndi aldrei að ég trúi því 100% að þetta séu verur frá annari plánetu en tilhugsunin við það er ekki út úr þessum heim.

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf ManiO » Sun 17. Okt 2010 17:34

daniellos333 skrifaði:Fregnir segja að þessar verur sem eru búnar að vera að heimsækja okkur seinustu árin geta lesið huga og eru á margfælt hærra stigi í sálrænum skilning heldur en við menn og eiga samskipti í gegnum hugann.

Nei. Hugalestur? Seriously? ](*,) Úr fjarlægð án mælitækja, ekki fræðilegur möguleiki. Fyrr læri ég að tala með endaþarminum heldur en að einhver vera nær að lesa hugsanir mínar úr einhverri vegalengd.

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

vesley
Kóngur
Póstar: 4254
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf vesley » Sun 17. Okt 2010 17:42

ManiO skrifaði:
daniellos333 skrifaði:Fregnir segja að þessar verur sem eru búnar að vera að heimsækja okkur seinustu árin geta lesið huga og eru á margfælt hærra stigi í sálrænum skilning heldur en við menn og eiga samskipti í gegnum hugann.

Nei. Hugalestur? Seriously? ](*,) Úr fjarlægð án mælitækja, ekki fræðilegur möguleiki. Fyrr læri ég að tala með endaþarminum heldur en að einhver vera nær að lesa hugsanir mínar úr einhverri vegalengd.

Ætla að fara og búa til hatt úr álpappir svo ég sé alveg örugglega öruggur. :)

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 17:47

Ég sagði aldrei að ég hafi komið upp með þessa kenningu, en ef hún er sönn þá er hægt að tengja hana og gera vit úr henni frá þeim atburðum sem hafa átt sér stað og munu halda áfram að eiga sér stað.

Og nei, ég er ekki að reyna að þursa ykkur.

Látið þið svona við allt fólk sem trúir einhverju sem er við handan ykkar hauskúpu?

Hvað ætlið þið að segja ef ég hef rétt fyrir mér?

Ég er að fórna mínu mannorði hérna á þessari síðu til að deila mínum hugmyndum og trú bara til þess að vera fullviss um það að það vissu allir hverju ég trúði ef þetta gerist allt innan nokkura ára..

Ég mundi aldrei gefa út persónu-upplýsingar því að ég nenni ekki að þurfa að éta þann sama skít í mínu daglega lífi og ég þarf að gera hér..

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Leviathan » Sun 17. Okt 2010 17:49

daniellos333 skrifaði:
Halli13 skrifaði:
daniellos333 skrifaði:2. Loftsteinar skipta sér ekki í 3 nákvæmlega jafn stóra parta og stoppa síðan fyrir ofan jörðina og mynda þríhyrnings fylkingu.

Hvernig geta 3 loftsteinar ekki myndað þríhyrning ef þeir eru á sama stað á sama tíma?

Ég veit ekki einusinni hvað fær fólk til að hata hugmyndina við það að það gæti verið einhver önnur skýring á þessu heldur en loftsteinar..

Ég er að segja að mér finnst líklegt að þetta sé ómennskt (ég veit ekki hvað samt) því að ég veit að ekkert byggt með mennskum höndum getur hegðað sér eins og þessi hlutur sem skipti sér síðan gerði.

Og jafnvel ef þetta væri byggt af mennskum höndum þá væri sú þjóð sem gerði þetta líklegast að halda þessu í félum því að við höfum aldrei séð þetta í dags-ljósi né heyrt talað um þetta. Þessvegna finnst mér skrítið að sú þjóð sé að gera

tilraunir með þetta á stað þar sem aðrir geta séð þetta og mynda síðan þríhorna fylkingu sem er í nákvæmu sjónarhorni við lensu myndavélarinnar.

t.d afhverju var fylkingin ekki mynduð í aðra átt heldur en nákvæmlega beint á myndavélina?

Fregnir segja að þessar verur sem eru búnar að vera að heimsækja okkur seinustu árin geta lesið huga og eru á margfælt hærra stigi í sálrænum skilning heldur en við menn og eiga samskipti í gegnum hugann.

Nú þegar við plúsum þessar fregnir við öll skiptin sem fylking hefur verið mynduð í nákvæmu sjónarhorni við myndavélamannin svo að hann gat séð fylkinguna nákvæmlega þá getum við dregið framm þá ályktun að EF þetta er það sem

þetta gæti verið þá eru þær að reyna að búa til sönnunargögn hægt og rólega með því að reyna að láta sjá sig þar sem fólk með myndavélar er staðsett.

Afhverju eru þær hægt að rólega að byggja upp sönnunargögn í staðin fyrir að lenda strax? Því að þær vita að við menn erum rétt svo að vonast til þess að finna örverur/bakteríur á Mars.

Vill líka benda á það að ég er ekki hræddur við gagnrýni. Ég nefndi aldrei að ég trúi því 100% að þetta séu verur frá annari plánetu en tilhugsunin við það er ekki út úr þessum heim.

Vill benda á að ég held ekki endilega að þetta séu loftsteinar, mér fannst þetta bara minna mig helst á það þó að þetta hafi augljóslega verið eitthvað skrítiðen þó að eitthvað virðist óeðlilegt í fyrstu þarf það ekkert að vera það. Fólk er rosalega duglegt að fylla út í eyðurnar.

Það að þetta hafi snúið beint að ÞESSARI myndavél er bara tilviljun, það hafa væntanlega verið myndavélar þarna út um allt? Ef þessar geimverur eru svona SVAKALEGA gáfaðar hefðu þær allavega getað valið betri myndavél. :roll:

Hver var það svo sem komst að því að þær geta lesið hugsanir og hvernig komst hann að því? #-o

AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 17:57

@Leviathan

Það er fólk sem hefur víst haft samband við þessar verur en ekki gefið út nein sönnunargögn fyrir því bara sögur.

Það er erfitt að trúa þessu fólki en með því að hugsa út í það sem ég er búinn að nefna

"Þessvegna finnst mér skrítið að sú þjóð sé að gera
tilraunir með þetta á stað þar sem aðrir geta séð þetta og mynda síðan þríhorna fylkingu sem er í nákvæmu sjónarhorni við lensu myndavélarinnar.
t.d afhverju var fylkingin ekki mynduð í aðra átt heldur en nákvæmlega beint á myndavélina?"

Þegar maður áttar sig á þeirri staðreynd þá getur maður byrjað að hugsa út í "hvernig vissi það sem er að stjórna þessu að það væri verið að mynda það" og "afhverju vildi það verða myndað"

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf ManiO » Sun 17. Okt 2010 18:00

daniellos333 skrifaði:Ég sagði aldrei að ég hafi komið upp með þessa kenningu, en ef hún er sönn þá er hægt að tengja hana og gera vit úr henni frá þeim atburðum sem hafa átt sér stað og munu halda áfram að eiga sér stað.

Og nei, ég er ekki að reyna að þursa ykkur.

Látið þið svona við allt fólk sem trúir einhverju sem er við handan ykkar hauskúpu?

Hvað ætlið þið að segja ef ég hef rétt fyrir mér?

Ég er að fórna mínu mannorði hérna á þessari síðu til að deila mínum hugmyndum og trú bara til þess að vera fullviss um það að það vissu allir hverju ég trúði ef þetta gerist allt innan nokkura ára..

Ég mundi aldrei gefa út persónu-upplýsingar því að ég nenni ekki að þurfa að éta þann sama skít í mínu daglega lífi og ég þarf að gera hér..

Þessi kenning með að geimverur sem lesa hugsanir og eru að fokka í fólki með myndavélar er álíka góð og heimsmynd David Icke, og ef hún er rétt skal ég naga tærnar af sjálfum mér (Tekur kannski eftir að ég kem fram hér undir nafni og er ekki að reyna að fela hver ég er þannig að endilega hafðu samband ef þessi kenning er sönn...).

Mannorð þitt á þessarri síðu var hvort sem er ekki neitt til að hrópa húrra fyrir.

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,

wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 18:10

ManiO skrifaði:
daniellos333 skrifaði:Ég sagði aldrei að ég hafi komið upp með þessa kenningu, en ef hún er sönn þá er hægt að tengja hana og gera vit úr henni frá þeim atburðum sem hafa átt sér stað og munu halda áfram að eiga sér stað.

Og nei, ég er ekki að reyna að þursa ykkur.

Látið þið svona við allt fólk sem trúir einhverju sem er við handan ykkar hauskúpu?

Hvað ætlið þið að segja ef ég hef rétt fyrir mér?

Ég er að fórna mínu mannorði hérna á þessari síðu til að deila mínum hugmyndum og trú bara til þess að vera fullviss um það að það vissu allir hverju ég trúði ef þetta gerist allt innan nokkura ára..

Ég mundi aldrei gefa út persónu-upplýsingar því að ég nenni ekki að þurfa að éta þann sama skít í mínu daglega lífi og ég þarf að gera hér..

Þessi kenning með að geimverur sem lesa hugsanir og eru að fokka í fólki með myndavélar er álíka góð og heimsmynd David Icke, og ef hún er rétt skal ég naga tærnar af sjálfum mér (Tekur kannski eftir að ég kem fram hér undir nafni og er ekki að reyna að fela hver ég er þannig að endilega hafðu samband ef þessi kenning er sönn...).

Mannorð þitt á þessarri síðu var hvort sem er ekki neitt til að hrópa húrra fyrir.

Ekki ert þú að verja neinn "skrítinn" málstað þannig að þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þú verðir gagnrýndur harðlega fyrir þínar skoðanir..

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gúrú » Sun 17. Okt 2010 18:27

daniellos333 skrifaði:Ekki ert þú að verja neinn "skrítinn" málstað þannig að þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þú verðir gagnrýndur harðlega fyrir þínar skoðanir..

Þú ert að búa hann til, tæplega að verja hann :shock:
daniellos333 skrifaði:Hvað ætlið þið að segja ef ég hef rétt fyrir mér?

Með að það séu hugsanalesandi geimverur chillandi hér um allar trissur sem að við getum ekki séð nema þegar að þær vilja birta sig sem blöðrur?

Og nei, við erum ekki rétt að vonast til þess að finna örverur á Mars, við höfum mun meiri áhuga á tunglum Júpíters.

Modus ponens

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 18:45

Gúrú skrifaði:

Er ég að búa til?

Seinni punkturinn - takk fyrir að leiðrétta mig. Nú hef ég lært eitthvað nýtt.

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Reputation: 11
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Halli13 » Sun 17. Okt 2010 18:58

Gúrú skrifaði:Og nei, við erum ekki rétt að vonast til þess að finna örverur á Mars, við höfum mun meiri áhuga á tunglum Júpíters.

Er það ekki bara Evrópu?

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gúrú » Sun 17. Okt 2010 19:14

Halli13 skrifaði:
Gúrú skrifaði:Og nei, við erum ekki rétt að vonast til þess að finna örverur á Mars, við höfum mun meiri áhuga á tunglum Júpíters.

Er það ekki bara Evrópu?

Ekki bara Europu, en það er talið vera líklegasta tunglið til að hafa líf, vegna þess að ólíkt t.d. Callisto eða Ganymede þá fær Europa hitun
vegna nálægð sinnar við Júpíter með ölduhreyfingum, og sjórinn er í snertingu við harða kleppi þar sem að Callisto og Ganymede skortir.
Edit: Sagði Mars en ekki Júpíter lolwat
Síðast breytt af Gúrú á Sun 17. Okt 2010 22:40, breytt samtals 1 sinni.

Modus ponens

Skjámynd

Gothiatek
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 311
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 18:14
Reputation: 0
Staðsetning: ptr->curr_loc
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gothiatek » Sun 17. Okt 2010 21:16

daniellos333 skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=rEtTl9cGrJc

vá, blöðrur nú til dags eru frekar undraverðar :-k

http://www.youtube.com/watch?v=tThXNH8aY3c

Vidjóið í El Paso hefur verið staðfest sem fallhífarstökk hjá deild sem kallar sig Golden Knights, http://www.usarec.army.mil/hq/GoldenKnights/

Hef alveg opin hug fyrir vitsmunaverum annarsstaðar en á jörðinni, en svona ljós á himni eiga sér yfirleitt eðlilegar skýringar. Merkilegt hvað allir eru með lélegar myndavélar/vidjóvélar þegar þeir verða vitni að því sem þeir staðhæfa að séu fljúgandi furðuhlutir.

pseudo-user on a pseudo-terminal

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gúrú » Sun 17. Okt 2010 21:28

Gothiatek skrifaði:Vidjóið í El Paso hefur verið staðfest sem fallhífarstökk hjá deild sem kallar sig Golden Knights, http://www.usarec.army.mil/hq/GoldenKnights/

Don't ruiiin iiiit :-"

Modus ponens

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Sun 17. Okt 2010 21:58

Gothiatek skrifaði:
daniellos333 skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=rEtTl9cGrJc

vá, blöðrur nú til dags eru frekar undraverðar :-k

http://www.youtube.com/watch?v=tThXNH8aY3c

Vidjóið í El Paso hefur verið staðfest sem fallhífarstökk hjá deild sem kallar sig Golden Knights, http://www.usarec.army.mil/hq/GoldenKnights/

Hef alveg opin hug fyrir vitsmunaverum annarsstaðar en á jörðinni, en svona ljós á himni eiga sér yfirleitt eðlilegar skýringar. Merkilegt hvað allir eru með lélegar myndavélar/vidjóvélar þegar þeir verða vitni að því sem þeir staðhæfa að séu fljúgandi furðuhlutir.

hahahahahahahahhaahahahahahaahahahahaahahahaahahahaahahahaha

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gúrú » Sun 17. Okt 2010 22:22

daniellos333 skrifaði:hahahahahahahahhaahahahahahaahahahahaahahahaahahahaahahahaha

Núna líturðu frekar kjánalega út spammandi haha í ljósi þess að hann kom með fullkomlega rökrétta skýringu sem að er nákvæmlega eins og sýningarmyndbandið þarna á síðunni.

Modus ponens

Skjámynd

Gothiatek
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 311
Skráði sig: Fim 15. Maí 2003 18:14
Reputation: 0
Staðsetning: ptr->curr_loc
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gothiatek » Sun 17. Okt 2010 23:13

Svo geta þetta nú varla verið miklar vitsmunaverur ef þær halda að El Paso sé ein af stórborgum heimsins :-"

pseudo-user on a pseudo-terminal

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 535
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 17. Okt 2010 23:17

Gothiatek Skrifaði:
Svo geta þetta nú varla verið miklar vitsmunaverur ef þær halda að El Paso sé ein af stórborgum heimsins :-"

Hehe True :-({|=

Just do IT
  √

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Mán 18. Okt 2010 01:12

Gúrú skrifaði:
daniellos333 skrifaði:hahahahahahahahhaahahahahahaahahahahaahahahaahahahaahahahaha

Núna líturðu frekar kjánalega út spammandi haha í ljósi þess að hann kom með fullkomlega rökrétta skýringu sem að er nákvæmlega eins og sýningarmyndbandið þarna á síðunni.

Bandarísk yfirvöld hafa verið að fela sannleikann fyrir þjóðinni frá því að þeir fundu fyrsta hrapaða diskinn í mexíkó. Hræddir við það að missa stjórn yfir þjóðinni ef stóri sannleikurinn mundi fréttast út.

Þetta fallhlífar lið er á vegum Bandaríska hersins. Þessi stökk atriði þeirra eru lík því sem átti sér stað í El Peso. Þess vegna nota þeir þessa afsökun því að það er auðveldast að líkja henni við þessa ótrúlegu sjón sem náðist á myndband og fór á netið.

Það er auðvelt að festa 3 fallhlífar menn saman og skipta þeim síðan rétt fyrir lendingu en að láta þá svífa og byrja að hreyfa sig um eins og þeir væru í farartækjum sem geta stjórnað nákvæmlega hvaða leið þeir vilja fara, er annað.

Ef heilarnir ykkar byggju yfir rökhugsun þá munduð þið ekki halda að þetta væru fallhlífar.

Ríkið sagði okkur að þetta væru fallhlífar, ókei samkvæmt náttúrulögmálum þá geta yfirvöld ekki logið þannig að já þetta voru bara fallhlífar allir! Þetta voru bara bandarískir hermenn að æfa sig um miðja nótt í miðri Mexíkó og já, hunsum bara þá staðreynd að þeir byrjuðu að svífa yfir yfirborði jarðar og hreyfa sig um í lausu lofti rétt áður en þeir lentu!

Munið að kveikja á heilanum ykkar næst áður en þið ákveðið að svara þessum þræði

Takk fyrir.

Ég veit ekki hversu mikið þið þurfið að heyra eða sjá til trúa því sem ég trúi en ég er að giska á að þið þurfið að minnsta kosti að sjá geimskipið sjálft lenda fyrir framan nefið á ykkur, sjá veruna ganga út og leyfa ykkur að athuga hvort þetta sé örugglega ekki gríma.

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

Höfundur
daniellos333
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 07. Maí 2010 02:23
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf daniellos333 » Mán 18. Okt 2010 01:22

Ég er 100% viss um að það eru fleirri hérna sem eru sammála mér, það bara vill engin tjá sig um þetta mál, frekar sorglegt að maður geti ekki tjáð skoðanir sínar án þess að vera álitin ýmindunarveikur. Þetta er að mínu mati eitt það mikilvægasta umræðuefni á jörðinni í dag og ég er sá eini sem er að verja mína skoðun á málinu, það er auðvelt að ganga til liðs við "raunsýna" fólkið því að það mun engin álíta þig skrítinn eða eitthvað álíka en að þora að stíga fram og verja mína skoðun á þessu málefni krefst alvöru kjarks, er einhver þarna úti sem býr yfir þeim kjark að verja þessa skoðun á málinu eða eruð þið of hræddir við að verða gagnrýndir? Ég veit að ég er ekki sá eini sem sér ekki fallhlífar út úr þessu..

ASRock-P43D2. Intel core 2 duo e7400(3ghz, 3mb cache). Mushkin(4gb DDR2 800mhz). Force3D ATI HD5770(1GB ddr5, 4800mhz memory clock). HDD(500GB 7200rpm 16mb cache), 160GB 5400rpm, Power supply: Tacens 520w. Case: Tacens Victoria II.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf AntiTrust » Mán 18. Okt 2010 01:33

daniellos333 skrifaði:Ég veit ekki hversu mikið þið þurfið að heyra eða sjá til trúa því sem ég trúi en ég er að giska á að þið þurfið að minnsta kosti að sjá geimskipið sjálft lenda fyrir framan nefið á ykkur, sjá veruna ganga út og leyfa ykkur að athuga hvort þetta sé örugglega ekki gríma.

Uhm, afhverju væri það óeðlilegt?

Fyrir mitt leyti er það nákvæmlega það sem ég myndi vilja fá að gera. Afhverju ætti ég að þurfa e-ð minna til þess að vera sannfærður um vitiborið líf frá öðrum plánetum?

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: óþekktir fljúgandi hlutir - umræða

Pósturaf Gúrú » Mán 18. Okt 2010 02:33

Held ég hafi droppað niðurfyrir þroskaheftumörkin við að lesa þennan póst.
(Hey, hann sagði að ég byggi ekki yfir rökhugsun svo að ég er warranted að vera smá dónalegur, ekki satt?)

Fyrir alla sem að eru ekki áhugamenn um crazyness:
Horfið á kynningarmyndbandið á forsíðunni hérna og þið sjáið nákvæmlega hvaða stunt þetta er með trailið af 'neistum' afturúr þeim og að þeir eru margir í einu að þessu (í tilfelli El paso: þrír).
Horfið svo á þetta myndband af þessum mönnum, þetta útskýrir hvað hann á eflaust við með "hreyfa sig um í lausu lofti" (By the way: árið er 2010 ekki 10)
Lesið svo þetta blog: http://armygk.com/2010/10/hola-el-paso- ... s-in-town/

Modus ponens