erlingur_th skrifaði:
Sælir,
Ég heiti Erlingur og bjó til og rek Filma.is. Mér langaði að segja að ástæðan fyrir því að ég fór af stað með Filma.is er akkúrat það sem Depill sagði: "Hætta að eyða að [sic] elta upp piracy, koma með markaðslausnir sem gera það að verkum að fólk nennir ekki að eyða tíma í að finna ólögleg lög".
Mín skoðun er einmitt sú að það þarf að horfa á ólöglega dreifingu frekar sem ónýttan markað. Það er greinileg eftirspurn eftir fljótlegum og auðveldum leiðum til að nálgast afþreyingarefni á netinu og vonandi get ég sýnt fram á að þetta viðskiptamódel getur virkað, að fólk er tilbúið að borga fyrir þægindi og góða þjónustu. Ég er alls ekki að segja að ólögleg dreifing eigi rétt á sér né er ég að styðja hana, ég er frekar að segja að það þarf að horfa á hana sem einkenni stærri vanda: vöntun á þægilegu og fljótlegu aðgengi að afþreyingu.
Fyrir utan allt annað, ef þeir setja á stokkana einhversskonar vefsvæði þar sem hægt er að ná í tónlist frítt, hvað gerist þá með t.d. Tónlist.is og GogoYoko? Er þetta ekki eitthvað samkeppnismál? Ég veit að ég væri ekki sáttur ef þeir myndu setja upp "frítt" svæði þar sem hægt væri að nálgast myndir eða þætti því þá væri engin þörf á Filma.is lengur.
Jibbs, en ég held að hreinlega aðilar eins og STEF séu að reyna að nota sér núverandi ástandi sem þeir misskilja til þess að koma sínum kommaáhrifum af stað. Það var allt í einu sem íslendingar virtust samþykkja smá kommunisma sem samt virðist vera detta út aftur sem betur fer.
Og já Filma.is og mjög töff fyrirbæri og ég er persónulega mjög ánægður með VoDið hjá Símanum og Leiguna hjá Vodafone vegna þess að mér finnst þetta allt í rétta átt. Mér finnst eina að mér finnst þættir of dýrir á öllum þessum síðum/miðlum ( sorry erlingur, en mér bara finnst það ), mér finnst 7080 kr fyrir leigu á einni þáttröð ( þá er ég að tala um eina standard 24 þátta seríu of blóðugt. En samt skref í rétta átt. Verðið á myndum finnst mér samt á réttu róli.
Hins vegar er kannski það sem stoppar mig að nota Filma.is persónulega er að ég get ekki horft á þetta í sjónvarpinu mínu, nema þá að tengja tölvuna mína við eithvað. Annars er þetta ruglað töff concept, vantar bara STB fyrir mig til að nota þetta.
Annars skyldi ég engan vegin þetta sem Jakob Frímann var að segja í fréttablaðinu í dag.
100 kr ofan á nettenginguna mína sem svo myndi gefa mér aðgang að kauphöll þar sem fólk greiðir fyrir niðurhal. Skyldi þetta engan vegin, og hef aldrei skilið útfærsluleiðina. Til dæmis mörg fyrirtæki eru með útibúatengingar sem tengjast saman og fara út á netið um eina internet pípu, borgar þau þá eitt gjald eða fyrir hverja tengingu ( hver tenging er í raun og veru ekki Internettenging ) og ef svo er, er það ósanngjarnt þar sem tengingarnar fara ekki út á netið og ef svo er, þá munu allar tengingar starfsmanna væntanlega vera gerðar að þess konar tengingum.
Og á almennt að setja þetta gjald á tengingar fyrirtækja sem er rukkaðar meira fyrir niðurhal og ef ekki má ekki færa rök fyrir því að það séu svo margir aðilar sem nota þessa teninguna að þeir eiga að borga meira gjald.
Ég held að STEF sé að skíta á sig og tel þetta muni eingöngu auka ólöglegt niðurhal og drepa frumkvöðla starfsemi eins og filma.is þar sem þá mun fólk réttlæta fyrir sér niðurhal.( Eins og margir gera með vegna þess að þeir borga STEF fyrir harða diska, geisladiska, dvd diska og guð má vita hvað )