Hvað er best við þynnku ?

Allt utan efnis

Höfundur
mattiisak
spjallið.is
Póstar: 467
Skráði sig: Lau 06. Feb 2010 15:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf mattiisak » Lau 22. Maí 2010 23:22

Hvað er best til að losna við þynnku?


"Sleeping's for babies Gamers Play!"

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Gúrú » Lau 22. Maí 2010 23:24

Að drekka saltvatn áður en þú þynnkar þig í gang?

Hvað þú gerir eftir það er held ég 98% gagnslaust.


Modus ponens


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf AntiTrust » Lau 22. Maí 2010 23:46

1. Ekki drekka. Dýrt og pointless.
2. Drekka MIKIÐ af vatni á meðan þú ert að drekka áfengi og eftir að þú hættir að drekka. Þynnka er að vissu leyti vegna þornunar, og áfengi veldur uppþornun.
3. Borðaðu flókin kolvetni. Brauð, morgunkorn, kex til að draga í sig áfengið, bæta blóðsykurinn og róa magann.
4. Borðaðu e-ð sem inniheldur mikið af frúktósa, ávexti, ávaxtasafa.
5. Borða beikonsamloku. Þetta tvennt saman hjálpar til við þynnku.



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf kubbur » Sun 23. Maí 2010 00:01

byrjaðu á gegnheilu súkkulaði, fáðu þér síðan feitan hamborgara með eggi og bacon og farðu síðan að hreyfa þig


Kubbur.Digital


ColdIce
Bara að hanga
Póstar: 1562
Skráði sig: Mán 11. Maí 2009 16:44
Reputation: 95
Staðsetning: 600
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf ColdIce » Sun 23. Maí 2010 00:08

Þynnkan er mest megnis út af lágum blóðsykri, sem er ástæðan fyrir því að ég drekk ekkert undir 40%. Hef gert tilraunir með marga eftir fyllerí, og hafa rannsóknir mínar leitt í ljós að best sé að drekka Mountain Dew þegar þú vaknar. Það er svo mikið sykurleðja að þú verður góður fljótt.

Einungis staðreyndir rannsókna piltar :p


Eplakarfan: Apple Watch S8 | iPad Pro M1 | Macbook Pro 14” M3 | Apple TV 4K | iPhone 14 Pro Max | Airpods Pro | Airpods Pro 2 | iMac 27”
Tölvan: PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro | ThinkPad T14
Útiveran: Honda CR-V 2021 | Zero 10X | Vsett 11+ | Bettinsoli | Savage B22 |


Höfundur
mattiisak
spjallið.is
Póstar: 467
Skráði sig: Lau 06. Feb 2010 15:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf mattiisak » Sun 23. Maí 2010 00:09

ColdIce skrifaði:Þynnkan er mest megnis út af lágum blóðsykri, sem er ástæðan fyrir því að ég drekk ekkert undir 40%. Hef gert tilraunir með marga eftir fyllerí, og hafa rannsóknir mínar leitt í ljós að best sé að drekka Mountain Dew þegar þú vaknar. Það er svo mikið sykurleðja að þú verður góður fljótt.

Einungis staðreyndir rannsókna piltar :p


hahh


"Sleeping's for babies Gamers Play!"

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1403
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf ZoRzEr » Sun 23. Maí 2010 00:09

Kl 06

Hlölli, Nonni, Subway. Taka með heim, horfa á eitthvað í góðum fíling, drekka vatn með. Reyna að klára allavega 2 hálfs líter glös af vatni með matnum og eftir. Pissa. Fara sofa. (Planið eftir svona 7 tíma)

Geri þetta næstum alltaf og hefur bjargað mér oft.

Að vakna svangur, þyrstur með þurran kjaft og hausverk er hægt að koma í veg fyrir með því að fara ekki beint að sofa eftir að þú kemur heim. Ef þú gefur þér smá tíma að jafna þig og borða er hægt að koma í veg fyrir flest.

Reynst mér best.


13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini


SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf SteiniP » Sun 23. Maí 2010 00:15

Einn sveittur KFC borgari og líter af appelsínusafa.




hsm
vélbúnaðarpervert
Póstar: 921
Skráði sig: Sun 05. Jan 2003 23:37
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf hsm » Sun 23. Maí 2010 00:16

Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR :P


**Intel E8400 3.0GHz**Gigabyte EP45-UD3L**GeIL Ultra Plus 4GB 2x2GB**Inno3D iChill GTX275**SAMSUNG SyncMaster 2693HM :D**1x1.5Tb**1x1Tb**1x750GB**1x500GB**Antec 1000W PSU** Með LFC kveðju Gerrard


Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Bjosep » Sun 23. Maí 2010 01:00

Svo er líka eitt atriði, og það er að rugla ekki líkamsklukkunni voðalega mikið.
Verður væntanlega töluvert meira þynnri ef þú ert að klára djammið 5-6 um morguninn en ef að þú ert að detta heim svona 1-2. Því þynnkan getur eiginlega verið svo mikil blanda af öllu saman sem líkaminn þarf að jafna sig á. Tala nú ekki um ef að þú ert að klára vinnuvikuna á föstudegi og tekur gott skrall á eftir.

Annars virkar líka merkilega vel að drekka vatn jafnt og þétt yfir djammið frekar en bara skella í sig mörgum lítrum þegar þú kemur heim. Líkaminn vinnur líklegast betur úr því að fá lítið af vatni í einu oft en mikið í einum skammti.



Skjámynd

Bassi6
Ofur-Nörd
Póstar: 257
Skráði sig: Sun 16. Jan 2005 17:36
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Bassi6 » Sun 23. Maí 2010 01:02

hsm skrifaði:Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR :P


Sammála þessu


Gates Free


biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf biturk » Sun 23. Maí 2010 01:04

Bassi6 skrifaði:
hsm skrifaði:Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR :P


Sammála þessu



sammála


annars erþað bara vatn og það mikið af því og hafa það ready við rúmstokkinn
fara á fætur, fá sér smá mat og kaffi, og síðann beint út í frískt loft og fara að brasa eitthvað, eina sem virkar að ráði, síðann eftir svona 1 eða 2 tíma að fá sér eitthvað ógurlega feitt


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Daz » Sun 23. Maí 2010 04:01

AntiTrust skrifaði:1. Ekki drekka. Dýrt og pointless.


Allt annað er bara plástur á opið beinbrot.



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Hnykill » Sun 23. Maí 2010 12:05

fá sér smá gras þegar maður vaknar bara.. það lagar allt ;)


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf ManiO » Sun 23. Maí 2010 13:42

Þynnka er bara leið áfengisins að segja að þú hafir ekki drukkið nóg. Drekkur meira, vaknar fullur og getur því gert eitthvað við þynkunni áður en hún kemur.

En ef menn vilja vera í hófsemi þá mæli ég með að drekka bara sterkt áfengi, vodka, romm, gin o.s.frv. Halda sig frá bjór, brenndu víni, léttvíni og ÖLLU sem hefur verið geymt í eik.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf intenz » Sun 23. Maí 2010 14:14

Ég drakk mikinn bjór í gær, samt er ég ekkert þunnur núna.

Ef mér tekst að halda mér BARA í bjór, verð ég lítið/sjaldan þunnur.

Ef skot eða sterkir drykkir læðast inn með bjórnum, verð ég bókað mál þunnur.

Svo fer þetta rosalega mikið eftir því hvort þú borðir áður en drykkja hefst og hvað þú borðar.

Ég hef heyrt að það sé sniðugt að drekka 1-2 glös af Nýmjólk svolitlu áður en drykkja hefst (fóðrar magann). Einnig 1-2 glös eftir fyllerí.

Svo er skothellt að fá sér 1 íbúfen töflu þar sem hún bindur vatnið sem er til staðar í líkamanum, þannig það verður engin ofþornun næsta dag.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1066
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Hargo » Sun 23. Maí 2010 14:17





littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2380
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 150
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf littli-Jake » Sun 23. Maí 2010 17:31

Nr.1 Ekki fara svangur og þreittur að drekka
Nr.2 Ekki blanda saman tegundum.
Nr.3 Éta mikið þegar þú kemur heim. Líka æskilegt að fá sér mjólkurglas eða appelsýnusafa
Nr.4 Ekki fara beint að sofa eftir fillerí. Halda sér vakandi í svona klukkutíma lámark. Best að labba líka heim.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Gúrú » Sun 23. Maí 2010 17:34

littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .


Gömul mýta, algjört bull. :)


Modus ponens

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1101
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf mind » Sun 23. Maí 2010 18:00

Gúrú skrifaði:
littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .


Gömul mýta, algjört bull. :)


Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)




vesley
Kóngur
Póstar: 4254
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf vesley » Sun 23. Maí 2010 18:04

mind skrifaði:
Gúrú skrifaði:
littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .


Gömul mýta, algjört bull. :)


Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)



Hlýtur nú að átta þig á því hveru ólíkt áfengi og lyf eru?



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Gúrú » Sun 23. Maí 2010 18:06

mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)


Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum :D


Modus ponens

Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1101
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf mind » Sun 23. Maí 2010 21:09

Gúrú skrifaði:
mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)


Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum :D


Það er alveg rétt, en ég get ekki séð að það sé rökrétt ályktun að það sé algjört bull að ekki sé æskilegt að blanda saman tegundum af áfengi.
Sérstaklega þar sem þú hefur ekki drukkið og því geturðu ekki hafa staðfest þetta sjálfur.

En áfengi er misjafnlega hreint og sumt áfengi veldur meiri þynnkuáhrifum heldur en annað einfaldlega vegna mismunandi efna í því. Þetta hef ég sjálfur staðfest með margra ára prufunum :)



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf Gúrú » Sun 23. Maí 2010 21:36

mind skrifaði:
Gúrú skrifaði:
mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)


Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum :D


Það er alveg rétt, en ég get ekki séð að það sé rökrétt ályktun að það sé algjört bull að ekki sé æskilegt að blanda saman tegundum af áfengi.
Sérstaklega þar sem þú hefur ekki drukkið og því geturðu ekki hafa staðfest þetta sjálfur.
En áfengi er misjafnlega hreint og sumt áfengi veldur meiri þynnkuáhrifum heldur en annað einfaldlega vegna mismunandi efna í því. Þetta hef ég sjálfur staðfest með margra ára prufunum :)


Mm ef þú sæir einungis villu þíns vegar.


Modus ponens

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvað er best við þynnku ?

Pósturaf urban » Sun 23. Maí 2010 21:38

Gúrú skrifaði:
mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum :)


Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum :D


ég tek rökrétta ályktun út frá reynslu.

og það að blanda saman mikið af áfengum drykkjum (bjór, skot, 1 - 3 tegundir af sterku og jafnvel svona áfeng gos (breezer sull) það veldur alveg hiklaust meiri þynnku en að halda sig við 1 - 2 tegundir.

þú mátt alveg reyna að halda hinu gagnstæða fram, en þar sem að þú hefur alveg greinilega ekki reynsluna, þá get ég alveg sagt þér að ég tek frekar mark á minni reynslu en þínum "gefnu upplýsingum"

EDIT**
Gúrú skrifaði:Ég er fæddur 1995 og hef áhuga á því að njóta óspilltra efnaskipta út ævinnar svo ég drekk ekki enn sem komið er.


þetta er eitthvað sem að rosalega margir hafa sagt á aldrinum 13 - 16 ára
detta síðan í það.

ég tek mark á því að manneskja segist ekki ætla að drekka þegar að hún er enþá edrú um ca 17 - 18 ára aldur.

það byrja langflestir sumarið eftir 10 bekkinn eða 1 ári í framhaldsskóla.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !