Er ég sá eini sem er spenntur?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
supergravity
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Þri 24. Jún 2008 13:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Er ég sá eini sem er spenntur?

Pósturaf supergravity » Þri 07. Apr 2009 12:36

Úff
Ég er í agalegri klípu.. Ég er búinn að bíða eftir þessari mynd í allt of langan tíma. Ætla að taka það fram að ég er ekki mikið fyrir að bíða í röð eða að auglýsa mig sem nörd, en ég var laumulega farinn að plana að tjalda með bjór og laptop í röðinni eftir miðum á myndina. Nei nei svo kemur sýningardagur:
8. maí 2009 = PRÓFTÍMI... frábært.
Maður hélt að Star Trek væri dáið en svo kom tilkynning um nýja mynd með Zachary Quinto sem Spock. Maður vissi ekki alveg hverju ætti að búast við. En trailerarnir hafa virkað vel á mig, sérstaklega sá nýjasti. Svo upp úr þurru kemur þetta: http://www.aintitcool.com/node/40675. Þetta hljómar fáránlega vel, ég er búinn að browsa pínu og finn engan sem hefur sett út á neitt nema smáatriði við myndina. Á ég að skrópa í prófi til að fá miða á fyrstu sýningu eða á ég að vera duglegur og mæta á 3. eða 4. sýningu?


\o/

Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Er ég sá eini sem er spenntur?

Pósturaf ManiO » Þri 07. Apr 2009 13:22

Ef þú skrópar í prófi til að fá miða á bíómynd ertu fáviti. Er ekki að reyna að móðga þig en myndin verður sýnd í alla vega 2 vikur í stærsta salnum (en prófið er bara á þessum eina degi) og þar sem þú ættir að vera í próflestri ætti að vera auðvelt að forðast að heyra/lesa spoilera.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

Höfundur
supergravity
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Þri 24. Jún 2008 13:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er ég sá eini sem er spenntur?

Pósturaf supergravity » Þri 07. Apr 2009 14:27

Hvaða hvaða.. það eru sjúkrapróf og svona. Svo getur maður lært í röðinni á milli bjórspoa. Annars er líka spurning hvenær sala á miðum hefst upp á hvort maður verði í prófi þann dag. Svo eru bíómyndir líka talsvert mikilvægari fyrir lífið en nám ekki satt?


\o/


Gets
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2007 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er ég sá eini sem er spenntur?

Pósturaf Gets » Þri 07. Apr 2009 14:31

supergravity ég skal senda þér tölvupóst rétt eftir forsýningu um hvernig hún endar undir subject: Þú mátt eiga þessa tölvu :lol: þú getur ekki annað en opnað og lesið :twisted:



Skjámynd

Höfundur
supergravity
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Þri 24. Jún 2008 13:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er ég sá eini sem er spenntur?

Pósturaf supergravity » Þri 07. Apr 2009 23:24

dónaskapur... sparkar í liggjandi mann!


\o/