Ég er með Pioneer DEH4700MP geislaspilara.
Þetta er allt rétt tengt held ég, en vandamálið er að bassaboxið/magnarinn virðist bara spila ákveðinn bassa, semsagt þennan djúpa undirbassa en ekki kickbassann. Þegar djúpi undirbassinn kemur í lögum þá nötrar allt og skelfur en kickbassinn er mun daufari, þó finnst hann að einhverju leyti.
Ég er búinn að reyna að fikta í crossover stillingunum á magnaranum en það virkar ekki, ég fæ bestu niðurstöður með að hafa stillt í low-pass og frequency í hámarki, s.s. 150hz. Ég er líka með volume og bass boost stillingarnar á magnaranum í hámarki.
Ég fékk að heyra í bassaboxinu áður en ég keypti það, og það var í bíl sem var með lélegri spilara og mun lélegri hátalara, og þar var það mikið öflugra.
En vandamálið er semsagt að kickbassinn finnst ekki almennilega.
Ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá væri það mjög vel þegið, er búinn að reyna að googla þetta og finn ekki neitt
