Síða 1 af 1

Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 17:18
af appel
Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá ákváðu einhverjir að það skyldi vera sniðugt að hrauna loft, og þetta er svona fínhraunað hjá mér.
Nenni ekki að pirra mig á því. (en allavega hættið að hrauna loft og veggi, þetta er ljótt og hryllingur í viðhaldi og þegar kemur að breytingum).

En ef loftið væri slétt, þá væri lítið mál að jafna þetta út með sparsli og pússa. En hvernig fara bændur að því að gera þetta þannig að einsog sárið hafi aldrei verið? Þarf að finna upprunalega verktakann sem byggði húsið? :)

Einn ættingi tók niður vegg einnig og er með eins loft, og það sést alveg greinilega sár eftir vegginn þó það sé reynt að gera það besta úr því.

Þetta er bara stuttur kafli hjá mér, 1,4 metri kannski.
loft.jpg
loft.jpg (265.2 KiB) Skoðað 5410 sinnum

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 17:29
af MrSparklez
Rífa húsið og byrja uppá nýtt er eina rökrétta lausnin sem ég sé :guy

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 17:31
af appel
btw. nenni ekki að fara borga einhverjum málara 300 þús kall til að mæta í 5 skipti til að lagfæra þetta.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 17:57
af hagur
Engin leið að fela þetta sár nema heilsparsla loftið eða klæða yfir þetta, eða hreinlega hrauna aftur yfir allt loftið með enn grófara hrauni :sleezyjoe

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 18:23
af brain
hagur skrifaði:Engin leið að fela þetta sár nema heilsparsla loftið eða klæða yfir þetta, eða hreinlega hrauna aftur yfir allt loftið með enn grófara hrauni :sleezyjoe

Sammála. Þetta mun annars alltaf sjást.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 18:26
af urban
brain skrifaði:
hagur skrifaði:Engin leið að fela þetta sár nema heilsparsla loftið eða klæða yfir þetta, eða hreinlega hrauna aftur yfir allt loftið með enn grófara hrauni :sleezyjoe

Sammála. Þetta mun annars alltaf sjást.

Jamm.
Þú ert ekkert að fara að laga þetta öðruvísi en að taka allt loftið í einu.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 19:20
af agnarkb
Byrja á því að bölva þeim aula sem datt í hug að hrauna helvítis loftið í allan þann sand og alla þá ösku sem til er.
Svo er það bara steinolía, eldspýta og labba í burtu og gleyma þessu. Eða sparsla í þetta og reyna að taka ekki eftir mismuninum.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 19:42
af appel
Jæja, smá vonbrigði, en ekkert stórkostlega óvænt.
Reyni að redda þessu með sparsli og vandvirkni.

Hraunað er það versta í öllum heimi, enda margir sem láta það sig vera sitt fyrsta verk áður en flutt er í nýja íbúð að slétta þetta út.
Ætti bara að vera í byggingareglugerð að þetta sé bannað.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 19:50
af arons4
Gera þetta að "feature" og setja eitthvern hnotu lista þarna eða eitthvað ef staðsetningin á sárinu á við, ef ekki er hægt að setja fleiri en einn lista til að láta það koma vel út.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 20:05
af danniornsmarason
gætir reynt að föndra eitthvað svona fyrst það er engin önnur augljós leið að ná þessu, held að þetta myndi ekki "laga" loftið en örugglega blandast betur en slétt loft og myndir síður taka eftir því
Mynd

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 20:08
af appel
danniornsmarason skrifaði:gætir reynt að föndra eitthvað svona fyrst það er engin önnur augljós leið að ná þessu, held að þetta myndi ekki "laga" loftið en örugglega blandast betur en slétt loft og myndir síður taka eftir því
Mynd

Reyni að leita að þessu. Virðist vera götótt svamprúlla.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 20:55
af rapport
Ég mundi heyra í Arnari hjá Húsa og senda honum myndir. Hann er snillingur.
Capture.PNG
Capture.PNG (4.85 KiB) Skoðað 5193 sinnum

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Mið 15. Sep 2021 21:56
af nidur
Ég gerði svona áferð með akríl úr kíttistúbu einhvertíman, aðeins grófara hraun en hjá þér en það leit allt í lagi út.

Og svo grófa rúllu eftirá.

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 08:14
af orri123
Farðu með karbit sköfu og reyndu að ná þessi sléttu. siðan rúllaru létt fyrir með svona hraun málningu sem heitir perla og málar allt loftið
https://malning.is/vorur/kopal-perla/

Goodluck

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 08:57
af Squinchy
Gróft sparsl eða milligróft, notar rakann svamp til að búa til texture í sparslið, málar svo yfir með grófri rúllu eða hraun rúllu

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 09:38
af jericho
orri123 skrifaði:Farðu með karbit sköfu og reyndu að ná þessi sléttu. siðan rúllaru létt fyrir með svona hraun málningu sem heitir perla og málar allt loftið
https://malning.is/vorur/kopal-perla/

Goodluck

^^^^ Þetta

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 11:48
af appel
orri123 skrifaði:Farðu með karbit sköfu og reyndu að ná þessi sléttu. siðan rúllaru létt fyrir með svona hraun málningu sem heitir perla og málar allt loftið
https://malning.is/vorur/kopal-perla/

Goodluck

Held að maður þurfi að hlýða þessu....

enda fjórði pósturinn hans á 8 árum :) 2 ár á milli pósta. Það er ekki annað hægt að skilja að en að þú tjáir þig ekki af nauðsynjalausu :)

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 15:17
af playman
Maður sér ekkert hvernig þetta herbergi er útlítandi eða hvað þú ert að plana með það, en geturu ekki bara set fallegan viðar ramma/box með innbygðum LED ljósum/kösturum?
Kannski svipað þessu, nema ekki hangandi.
eba7f87ce10ada4fc5840e374e57bf3b.jpg
eba7f87ce10ada4fc5840e374e57bf3b.jpg (15.48 KiB) Skoðað 4791 sinnum

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 19:27
af orri123
appel skrifaði:
orri123 skrifaði:Farðu með karbit sköfu og reyndu að ná þessi sléttu. siðan rúllaru létt fyrir með svona hraun málningu sem heitir perla og málar allt loftið
https://malning.is/vorur/kopal-perla/

Goodluck

Held að maður þurfi að hlýða þessu....

enda fjórði pósturinn hans á 8 árum :) 2 ár á milli pósta. Það er ekki annað hægt að skilja að en að þú tjáir þig ekki af nauðsynjalausu :)

\:D/
Mæli með að prófa efnið á spítu eða vegg bara til þess að sjá hvernig það kemur út.

þetta kemur líka betur út eftir nokkra bjóra

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 19:32
af appel
orri123 skrifaði:

Sparsla fyrst í sárið?

Re: Milliveggur tekinn - frágangur á sári í (hraunuðu) lofti?

Sent: Fim 16. Sep 2021 19:48
af orri123
appel skrifaði:
orri123 skrifaði:
appel skrifaði:
orri123 skrifaði:Farðu með karbit sköfu og reyndu að ná þessi sléttu. siðan rúllaru létt fyrir með svona hraun málningu sem heitir perla og málar allt loftið
https://malning.is/vorur/kopal-perla/

Goodluck

Held að maður þurfi að hlýða þessu....

enda fjórði pósturinn hans á 8 árum :) 2 ár á milli pósta. Það er ekki annað hægt að skilja að en að þú tjáir þig ekki af nauðsynjalausu :)

\:D/
Mæli með að prófa efnið á spítu eða vegg bara til þess að sjá hvernig það kemur út.

þetta kemur líka betur út eftir nokkra bjóra

Sparsla fyrst í sárið?

bara ekki alveg viss.. myndi klárlega samt setja i stóru götinn. síðan er þessi Kopal perla svoldið eins og spasl ^^