Síða 1 af 1

Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fim 18. Feb 2021 21:21
af appel
Veit ekki hvað þetta kallast á íslensku, kalla þetta bara svona trélistavegg.

Er að hugsa um að gera eitthvað svona heima hjá mér, finnst þetta töff. Hef séð svona tilbúnar plötur, t.d. í Birgisson og annarsstaðar, en finnst þær ansi dýrar og henta ekki.

Vitiði hvar maður getur fengið svona góða lista? Ég er ekki að fara saga eða slípa þetta til helvítis, er ekki hægt að kaupa svona eiginlega tilbúið, kannski bara að lakka? Vil helst eitthvað vandað efni, tekk eða eik eða álíka. Hef séð svona lista í bauhaus, en þeir eru rammskakkir þar og ekki vandað efni.

Slatted-Wall-Panels-in-Office.jpg
Slatted-Wall-Panels-in-Office.jpg (841.71 KiB) Skoðað 3587 sinnum

bedroom-accent-wall-slats-geometric-framed-picture.jpg
bedroom-accent-wall-slats-geometric-framed-picture.jpg (284.88 KiB) Skoðað 3587 sinnum

f937588c1d30a1029c3de2aecc33f096.jpg
f937588c1d30a1029c3de2aecc33f096.jpg (57.69 KiB) Skoðað 3587 sinnum

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fim 18. Feb 2021 21:33
af worghal
bauhaus eru með svona

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 07:19
af blitz
Þú getur skoðað Efnissöluna (http://www.efnissalan.is/) en ég get ímyndað mér að þetta er fljótt að verða dýrt.

Þótt þessar plötur í Bauhaus / Birgisson o.s.frv. kosta sitt snarlooka þær og eru með frábæra eiginleika varðandi hljóðvist.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 09:14
af Viktor
Heyrðu í Söginni. Eru með mjög flotta búð.

www.sogin.is

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 10:09
af stefhauk
Er Bauhaus að selja þetta í stykkjatali semsagt kaupir eina spítulengju eða er þetta selt eitthvað í líkingu við þetta?

https://woodupp.com/wp-content/uploads/ ... -Image.png

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 10:25
af appel
Hafði hugsað að kaupa bara listana, ekki svona panela. Þessir panelar eru jú fínir upp á hljóðdempun, en þetta eru yfirleitt laminated spónarlistar og up-close eru ekkert merkilegir.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 10:46
af worghal
stefhauk skrifaði:Er Bauhaus að selja þetta í stykkjatali semsagt kaupir eina spítulengju eða er þetta selt eitthvað í líkingu við þetta?

https://woodupp.com/wp-content/uploads/ ... -Image.png

bauhaus selur svona panela í nokkrum litum

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 16:29
af SolviKarlsson
Exton eru líka komnir með svipaða panela frá Artnovion https://www.artnovion.com/product-categories/12-panelling/products/1007-siena-v-panelling

Þeir eru öðruvísi að því leiti að spýturnar og bilin eru ekki öll nákvæmlega eins og því hefur það jafnari áhrif yfir tíðnisviðið og brýtur endurkastið betur. Þegar þau eru öll af sömu stærð þá er meira ísog á ákveðnu tíðnibili. Svo fyrir þá sem eru að hugsa út í hljóðvistina er vert að líta á þá.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 17:03
af davida
Keypti svona woodupp lista af ebson (ebson.ís) og festi á spónlagðan timburvegg sem ég reisti. Ekkert mál að saga þetta með hjólsög á hæðina og svo notar maður bara dúkahnif á lengdina, þar sem listarnir eru heftaðir á hljóðeinangrandi filt. Listarnir sjálfir eru spónlagt MDF og þráðbeint. Vissulega dálítið dýrt, en ég lokaði bara augunum þegar ég straujaði kortið :D

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 18:06
af hagur
davida skrifaði:Keypti svona woodupp lista af ebson (ebson.ís) og festi á spónlagðan timburvegg sem ég reisti. Ekkert mál að saga þetta með hjólsög á hæðina og svo notar maður bara dúkahnif á lengdina, þar sem listarnir eru heftaðir á hljóðeinangrandi filt. Listarnir sjálfir eru spónlagt MDF og þráðbeint. Vissulega dálítið dýrt, en ég lokaði bara augunum þegar ég straujaði kortið :D

This comment is worthless without pics :baby :sleezyjoe

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 18:25
af davida
hagur skrifaði:

Hah, fair enough. \:D/

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 19:56
af appel
Þetta er rándýrt, hver plata 60x240cm kostar 30 þús kall. Þannig að ef maður er bara t.d. vegg sem er rétt yfir 120 cm þá þarf maður auðvitað 3 plötur, semsagt 100 þús!!! get málað alla íbúðina fyrir þann pening, ef ekki minna.

Þessvegna datt mér í hug að það væri einfaldast að gera eitthvað svona project:

Making A Wood Slat Feature Wall
https://www.youtube.com/watch?v=-64edfx7GME

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 20:35
af davida
appel skrifaði:Þetta er rándýrt, hver plata 60x240cm kostar 30 þús kall. Þannig að ef maður er bara t.d. vegg sem er rétt yfir 120 cm þá þarf maður auðvitað 3 plötur, semsagt 100 þús!!! get málað alla íbúðina fyrir þann pening, ef ekki minna.

Þessvegna datt mér í hug að það væri einfaldast að gera eitthvað svona project:

Making A Wood Slat Feature Wall
https://www.youtube.com/watch?v=-64edfx7GME

Ég veit ekki með einfaldara, en mögulega ódýrara já. Ég veit svosum ekki hvað hljóðeinangrandi klæðningin í þessu kostar pr m2. Ef þú þarft ekki svoleiðis, þá er eflaust hægt að fá eitthvert trésmíðaverkstæðið til að spónleggja MDF plötu fyrir þig og saga niður í ~3-5cm breiða lista sem þú getur svo skotið fasta við grind eins og gæjinn í videoinu.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 21:51
af talkabout
appel skrifaði:Þetta er rándýrt, hver plata 60x240cm kostar 30 þús kall. Þannig að ef maður er bara t.d. vegg sem er rétt yfir 120 cm þá þarf maður auðvitað 3 plötur, semsagt 100 þús!!! get málað alla íbúðina fyrir þann pening, ef ekki minna.

Þessvegna datt mér í hug að það væri einfaldast að gera eitthvað svona project:

Making A Wood Slat Feature Wall
https://www.youtube.com/watch?v=-64edfx7GME

Smiður hér. 30k kall fyrir 60x240 plötu er nokkuð fair ef maður hugsar málið til enda og vinnuna sem fer í að gera hana. Ef þú færir inn á verkstæði til að láta græja eitthvað svona fyrir þig eru 10þúsund kallarnir fljótir að tikka inn í vinnu og efni.

Ef þú þarft ekki svoleiðis, þá er eflaust hægt að fá eitthvert trésmíðaverkstæðið til að spónleggja MDF plötu fyrir þig og saga niður í ~3-5cm breiða lista sem þú getur svo skotið fasta við grind eins og gæjinn í videoinu.

Þá þarf að kantlíma líka ef menn vilja lúkkið uppá 10 og þá kostar orðið 60x240 flöturinn pottþétt meira en 30kall. Plús lökkun, pússun, lökkun... spónn er ekki gefins. Þetta er ótrúlega fljótt að koma. Þess vegna eru tilbúnar lausnir oft ódýrari á endanum.

En ef þú ferð í þetta sjálfur þá sérðu sjálfur í myndbandinu hversu mikil vinna þetta er hjá kauða. Ógeðslega gaman að hafa gert svona sjálfur, ekki spurning, en maður verður að spyrja sig hvort maður hafi tíma, nennu, aðstöðu (pláss og verkfæri) og verkvit í svona prjójekt.

Þú minntist svo á tekk/eik í upphafi. Það eru ekki ódýrustu timburtegundirnar og ef þú kaupir það í lausu er það óheflað. Sagar ekkert svoleiðis og heflar niður með einhverri ódýrri hjólsög og sandpappír.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 22:15
af appel
talkabout skrifaði:

Thanks for punching me back to reality :)

Ætli ég láti ekki hvítu akrýlmálninguna duga eitthvað aðeins lengur.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Fös 19. Feb 2021 23:52
af talkabout
I live to crush dreams...

Versta er að nú langar mig að græja eitthvað svona sjálfur.

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Lau 20. Feb 2021 00:01
af DabbiGj
Það er hægt að gear þetta með furulistin og bæsa þá og lakka eða þá að nota krossvið

Það er ekki nákvæmlega sama útlit en helvíti nálægt

https://simplyalignedhome.com/affordable-slat-wall/

Re: Trélistaveggur... (wood slat wall)

Sent: Lau 20. Feb 2021 00:20
af DabbiGj
Svo væri líka gaman ða heyra í þeim sem sérpanta og vinna timbur að athuga hvað gegnheilir listar myndu kosta í fallegu efni