Síða 1 af 1

Skrúfur

Sent: Fös 30. Okt 2020 22:43
af @Arinn@
Sælir/ar

Ég er að leita að skrúfum undir fartölvuna mína (sjá mynd).
Þetta er eldri tölva og ég er búinn að athuga hjá Rafeindaverkstæðinu og þeir eiga þetta ekki til.

Hafið þið glóru hvar ég gæti fundið þessar skrúfur?

Re: Skrúfur

Sent: Fös 30. Okt 2020 22:48
af Pandemic
Veit ekki hvar þessar skrúfur fást en þetta er pentalope skrúfa ef það hjálpar eitthvað.

Re: Skrúfur

Sent: Fös 30. Okt 2020 23:01
af @Arinn@
Þetta eru pínu litlar Torx skrúfur en ekki pentalobe skrúfur... en vandamálið er að finna hvar þær fást.

Re: Skrúfur

Sent: Fös 30. Okt 2020 23:30
af Pandemic
Sorry, sá þetta illa á myndinni, fannst eins og þetta gæti verið Macbook og rúnaðri en torx. En þetta er auðvitað Torx.
Getur prófað að skella línu á smartfix.

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 01:17
af kizi86
er möst að hún hafi torx haus? held lengd og "threadcount" skipti mestu máli

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 01:27
af gotit23
Tölvulistinn er með umboð fyrir asus á íslandi spurnsmál að heyra í þeim,
annars er origo verkstíð @köllunarklettsveginum 8 með eitthvað af mismunandi torx skrúfum í yoga vélunum sinum og gætir prófað heyra í þeim.

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 01:42
af demaNtur
Gætir athugað í Fossberg - Þeir gætu mögulega átt bolta í þetta með 6 kant haus eða álíka

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 09:16
af jonsig
Aðallega íhlutir sem selja 2-2.5mm skrúfur, ég hef reddað mér með þeim og eru þær seldar í gulum boxum nokkur stk í pakka. En í öllum tilfellum þurfti ég að stytta þær niður í eitthvað custom eins og henntar fartölvunni.

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 12:34
af @Arinn@
gotit23 skrifaði:Tölvulistinn er með umboð fyrir asus á íslandi spurnsmál að heyra í þeim,
annars er origo verkstíð @köllunarklettsveginum 8 með eitthvað af mismunandi torx skrúfum í yoga vélunum sinum og gætir prófað heyra í þeim.

Rafeindaverkstæðið þjónustar Tölvulistann og var búinn að athuga þar...

En takk allir fyrir ráðleggingarnar nú veit ég hvert ég á að leita :)

Re: Skrúfur

Sent: Lau 31. Okt 2020 22:00
af trusterr
Getur keypt kit frá ifixit þeir eru með þessa hausa.