Síða 1 af 1

Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 01:16
af asgeirbjarnason
Hæ.

Mig vantar bút af einhverjum þykkum harðvið, um það bil 35x40x7 cm. Húsasmiðjan/Byko/Bauhaus selja þetta bara í allt of löngum og þunnum plötum fyrir eldhússkenka. Einhver séns að það myndi fást annarstaðar?

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 07:21
af brain
Held að þinn eini séns með svona lítinn bút, sé að fara milli trésmíðaverkstæða og ath hvort þeir eigi eitthvað.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 07:57
af Jón Ragnar
Held að ég hafi séð það í Menningunni á Rúv um daginn, þá var maður með verkstæði á Smiðjuvegi(?) sem sérhæfði sig í að smíða húsgögn úr harðviði og öðru þannig.

Spurning um að finna það? :)



:edit:

Fann þetta
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/menni ... 844/8l2saa

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 08:21
af Pandemic
Athugaðu með Efnissöluna í Kópavogi

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 09:06
af Kristján Gerhard
Mögulega á viður.is eitthvað. Þeir eru í Hafnarfirði.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 13:07
af asgeirbjarnason
Ok, takk fyrir þessar ráðleggingar. Ætla að reyna að ná að tékka á einhverju af þessu eftir vinnu á eftir.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 13:14
af lukkuláki

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 13:42
af Elvar81
ertu buinn að athuga handverkshusið
https://handverkshusid.is/product-categ ... hardvidur/

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 13:55
af thordur03
þú gætir kanski séð hvort skórægtin sé með einhvað fyrir þig

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 13:57
af Kristján Gerhard
thordur03 skrifaði:þú gætir kanski séð hvort skórægtin sé með einhvað fyrir þig


Góður punktur. Þeir gætu átt lerki eða ösp. Ef þú ert ekki harður á því að hafa þetta harðvið þá furu og greni líka.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 14:21
af asgeirbjarnason
Kristján Gerhard skrifaði:
thordur03 skrifaði:þú gætir kanski séð hvort skórægtin sé með einhvað fyrir þig


Góður punktur. Þeir gætu átt lerki eða ösp. Ef þú ert ekki harður á því að hafa þetta harðvið þá furu og greni líka.


Þetta þarf að vera ágætlega harður viður. Er að að fikta í CNC fræsara í fablab, ætla að búa til trommuskel fyrir raftrommurnar mínar, svo viðurinn þarf að þola að vera fræstur frekar þunnt og þola síðan þrýstinginn við að strekkja trommuhimnuna yfir.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 14:53
af thordur03
asgeirbjarnason skrifaði:
Kristján Gerhard skrifaði:
thordur03 skrifaði:þú gætir kanski séð hvort skórægtin sé með einhvað fyrir þig


Góður punktur. Þeir gætu átt lerki eða ösp. Ef þú ert ekki harður á því að hafa þetta harðvið þá furu og greni líka.


Þetta þarf að vera ágætlega harður viður. Er að að fikta í CNC fræsara í fablab, ætla að búa til trommuskel fyrir raftrommurnar mínar, svo viðurinn þarf að þola að vera fræstur frekar þunnt og þola síðan þrýstinginn við að strekkja trommuhimnuna yfir.


mæli með að hringja bara og spurja þeir eiga alskonar til, þer eru með fína flettisög í þjórsárdal

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 20:32
af asgeirbjarnason
Handverkshúsið var ekki með efni og sagði mér að það væri ólíklegt að nokkur hérna á landi væri allajafna að selja svona þykkt efni, því það væri lítil eftirspurn eftir því og mjög dýrt. Gæðatré voru með efni sem var rétt yfir 5 sentimetrar, sem mér leyst vel á en ætlaði að skoða aðeins meira, gruna samt að ég muni enda á því efni. Innviður var lokað þegar ég renndi við og náði ekki að kíkja á fleiri staði.

Takk fyrir allar ábendingarnar, þetta var að opna fyrir mér heilan heim af high-end timbursölum sem ég hafði ekki hugmynd um.

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 21:31
af growler

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Fös 28. Ágú 2020 22:10
af roadwarrior
Prufaðu að tala við húsgagna og innréttinga fyrirtæki sem sérsmíða fyrir fólk td Brúnás, AXIS og aðra. Oft sem svona fyrirtæki taka að sér dýra sérsmíði og þau gætu átt bút handa þér. Aldrei að vita hvað sumir auðjöfrar hafa látið smíða fyrir sig og þessi fyrirtæki hafa látið sérpanta eða flutt inn efni td harðvið :sleezyjoe

Re: Þykkur harðviður?

Sent: Lau 29. Ágú 2020 00:30
af Pandemic
En að líma tvær plötur saman eins og maður sér gaurana á jútúb gera? þyrftir reyndar að vera með þykktarhefil til þess að fá hliðarnar perfect.