Síða 1 af 1
Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mið 15. Apr 2020 16:37
af njordur
Sælir.
Veit einhver hér um einhvert fyrirtæki sem selur svona T-slot Ál prófíla hér á landi og er með á lager. Er búinn að kíkja á vefsíður hjá þeim sem mér dettur í hug, málmsmiðjur og þess háttar og engin er með svona listað hjá sér.

Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mið 15. Apr 2020 16:54
af pepsico
Það sakar ekki að hringja í Málmtækni. Ef þeir eiga þetta ekki þá er bjartsýnt að einhver annar eigi þetta til.
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mið 15. Apr 2020 17:30
af littli-Jake
Hvað í ósköpunum ertu að smíða?
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mán 14. Sep 2020 06:31
af Gislos
Ef þú finnur eitthvað fyrirtæki hér á landi máttu endilega láta mig vita hef líka verið að leita og ekki fundið neitt nema á Aliexpress.
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mán 14. Sep 2020 08:37
af Pandemic
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mið 23. Sep 2020 09:01
af Kristján Gerhard
Fannstu þetta einhversstaðar?
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mán 05. Okt 2020 10:19
af Gislos
Nei ég fann þetta hvergi. Hugmyndin var að smíða braut fyrir mótor.
Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Þri 05. Nóv 2024 18:29
af gretarjons
Ég er einmitt að leita af svona fyrir smá verkefni og google er ekki að gefa manni mikið.
Ætla að hringja á morgun í þessi helstu ál fyrirtæki en ef einhver hefur fundið svona þá væri gaman að vita

Er að leita af einhverju svona:

Re: Hvar fást T-slot Álprófílar á landinu?
Sent: Mið 06. Nóv 2024 09:59
af rostungurinn77
https://www.ikea.com/gb/en/p/vidga-trip ... -70492886/Þetta gæti hentað einhverjum mögulega.
Þetta var til í Ikea á Íslandi en þeir virðast ekki hafa þetta á lager en það er hægt að óska eftir því að þeir panti þetta.