Síða 1 af 1

Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 21:53
af Stuffz
Er praktískt að voga sér að viðra þann möguleika að hægt sé að búa allann ársins hring í gámahúsnæði hér á klakanum?

hefur verið gert útí heimi í a.m.k. 2 áratugi..

og hvernig er reglugerðafarganið og væri hægt að breyta því eitthvernveginn til að liðka til fyrir nýungum?
er að spá í almennum ódýrum vistveru lausnum í tengslum við komandi efnahagsvesen.


https://www.discovercontainers.com/suit ... ner-homes/

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 22:15
af urban
ca 45 ár síðan að það var byrjað að búa í gámum á íslandi.

Sjálfsagt síðan 30 ár síðan að hætt var að nota síðustu sem íbúðarhúsnæði.
Mynd

Þessi er enn notaður sem kaffistofa.
http://1973ibatana-sogur.blogspot.com/2 ... husin.html

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 22:37
af Stuffz
urban skrifaði:ca 45 ár síðan að það var byrjað að búa í gámum á íslandi.

Sjálfsagt síðan 30 ár síðan að hætt var að nota síðustu sem íbúðarhúsnæði.
Mynd

Þessi er enn notaður sem kaffistofa.
http://1973ibatana-sogur.blogspot.com/2 ... husin.html


kaffistofa athyglisvert fyrritíðar tilraunir, það er merkilegt að er nothæft eftir allann þennan tíma

notað á veturna líka?

alltaf spurning um að geta einangrað nægilega vel, sennilega myndi t.d. þetta hér ekki duga :lol:

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 22:51
af urban
Stuffz skrifaði:kaffistofa athyglisvert fyrritíðar tilraunir, það er merkilegt að er nothæft eftir allann þennan tíma

notað á veturna líka?

Jájá, þetta er búið að standa á hafnarsvæðinu í vestmannaeyjum sem skrifstofa og kaffistofa síðan að ég man eftir mér og ég er 81 módel.
Það er allavega 1 ef ekki 2 aðrir svona í notkun, annar sem vinnustofa hjá listamanni og hitt sem geymsla.

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 22:55
af Stuffz
urban skrifaði:
Stuffz skrifaði:kaffistofa athyglisvert fyrritíðar tilraunir, það er merkilegt að er nothæft eftir allann þennan tíma

notað á veturna líka?

Jájá, þetta er búið að standa á hafnarsvæðinu í vestmannaeyjum sem skrifstofa og kaffistofa síðan að ég man eftir mér og ég er 81 módel.
Það er allavega 1 ef ekki 2 aðrir svona í notkun, annar sem vinnustofa hjá listamanni og hitt sem geymsla.


og þetta eru allir orginal shipping gámar í grunninn.

hvernig er með raka og myglumyndun, veistu eitthvað um það, væri s.s. óhætt að búa í svona gámaútgáfu?

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 23:04
af urban
Þetta er reyndar útbúið í upphafi sem húsnæði, semsagt aðeins meira en bara orginal shipping containers.

Enda er þetta teleskópístk, koma sem bara einn.
En einsog ég segi, það eru 30 ár síðan að það var hætt að nota þetta sem íbúðarhúsnæði vegna þess að þetta er eiginlega ekki hæft sem íbúðarhúsnæði, en þetta kemur þokkalega fram í linknum sem að ég póstaði þarna.

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Þri 14. Apr 2020 23:19
af Sporður
Gestamóttakan sem er gegnt Þorvaldseyri (Katla Geopark) er samsett úr gámum. Einn gámurinn þarna er innréttaður sem íbúð. Klósett, eldhús og svefnherbergi.

Þetta er örugglega ekki eini gámurinn, get ímyndað mér að sambærilegt húsnæði sé að finna eða hafi verið að finna á mörgum ferðaþjónustustöðum sem spruttu upp.

Þetta eru ekki flutningagámar sem hrækt er saman, þetta eru íbúðaeiningar smíðaðar í gámastöðlum.

Re: Gámahús á Íslandi

Sent: Mið 15. Apr 2020 13:26
af Viktor
Ef það er hægt í London þá er það hægt hér :)

https://www.weforum.org/agenda/2019/08/ ... ontainers/

https://www.nationalgeographic.com/envi ... ner-homes/

https://www.dezeen.com/2019/07/02/world ... ng-london/

Patalab Architecture has won approval to build a nine-storey office block from shipping containers, which will be the world's tallest building made from the modular structures.

When built, the office block in Whitechapel, east London, will be 26-metres-high plus a lift overrun. This will make it taller than the Freitag Store in Zurich – the current tallest building made from shipping containers.