Síða 1 af 1

Slétta hraunaða veggi?

Sent: Mán 13. Ágú 2018 19:41
af appel
Hvað þarf maður að gera til að slétta svona hraunaða veggi, innandyra? Þetta var voða vinsælt fyrir einhverjum áratugum að hrauna svona veggi, en þetta er forljótt finnst mér.

Á að pússa þetta? Er ekki vesen að ná þessu af?
Eða á að heilsparsla yfir þetta?

Re: Slétta hraunaða veggi?

Sent: Mán 13. Ágú 2018 19:42
af Dúlli
Bolla skífa ef þetta er gróft og síðan heilspasla, þarft alltaf að heilspasla.

Re: Slétta hraunaða veggi?

Sent: Mán 13. Ágú 2018 20:07
af hagur
Sumir hafa brugðið á það ráð að klæða þetta bara með gifsi. Það er fljótlegra og hreinlegra en persónulega myndi ég bollaslípa svona og heilsparsla eins og Dúlli segir.

Re: Slétta hraunaða veggi?

Sent: Mán 13. Ágú 2018 20:08
af Dúlli
Ef það er ekkert gólfefni og íbúðin tóm þá ertu enga stund að heilspasla. Sprautuspaslar þá :happy