Síða 1 af 1

Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Lau 21. Apr 2018 16:03
af Black
Jæa núna er veðrið þannig að maður gæti vel hugsað sér að sitja fyrir utan og njóta sólarinnar.Fór að skoða garðhúsgögn í rúmfatalagernum,Bauhaus og byko en einfaldlega tími ekki að eyða 30þ í húsgögn sem maður notar í nokkur skipti á ári og fylla geymsluna þau skipti sem veðrið verður vitlaust.
Hef verið að skoða húsgögn sem eru smíðuð úr vörupallettum og hugsa ég að það myndi henta ágætlega.Geri ráð fyrir að ég geti haft þetta úti allan ársins hring og kostnaðurinn við að smíða er í lágmarki.
Getið þið deilt einhverjum reynslusögum eða myndum af samskonar smíðum. ?


Mynd
Mynd

Re: Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Lau 21. Apr 2018 17:53
af flottur
Ég bjó til sófa í stofuna úr palletum hann er 360cm á lengd.

Hann kostaði 70.000 kr með öllu.
Dýnurnar.
skrúfur.
Lakk.
sandpappírsskífur og sandpappír.
L-járn og einhverjar festingar.

Bakpúðana tók ég úr gamla sófanum okkar

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Re: Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Lau 21. Apr 2018 18:03
af Squinchy
Ef þetta á að vera úti þá er mjög mikilvægt að kaupa góða flísatöng, spritt, fjarlægja alla nagla og setja riðfríar skrúfur í staðinn, annars marg borgar sig hreinlega að kaupa þetta þar sem vinnan og vesenið í kringum þetta er fljótt á kála öllum "Sparnaði" sem verið er að eltast við.

Kaupa þetta bara og taka 2-4 yfirvinnutíma í staðinn ef það er í boði, en það er bara mín skoðun

Re: Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Lau 21. Apr 2018 19:18
af Viktor
Squinchy skrifaði:Ef þetta á að vera úti þá er mjög mikilvægt að kaupa góða flísatöng, spritt, fjarlægja alla nagla og setja riðfríar skrúfur í staðinn, annars marg borgar sig hreinlega að kaupa þetta þar sem vinnan og vesenið í kringum þetta er fljótt á kála öllum "Sparnaði" sem verið er að eltast við.

Kaupa þetta bara og taka 2-4 yfirvinnutíma í staðinn ef það er í boði, en það er bara mín skoðun


x2

Ekki myndi ég nenna að standa í þessu til að spara 30þ. #-o
Frekar myndi ég kaupa garðsett á 30þ. og taka eina aukahelgi í vinnunni.

Ef þú getur ekki bætt við þig vinnu geturðu þrifið 6 bíla fyrir 5K stykkið og þá eru garðhúsgögnin komin í hús :happy

Flest garðhúsgögn geta verið úti allan ársins hring, ef þau eru úr plastefnum. Bara festa þau vel þegar svo ber við.

Getur líka smíðað lítinn garðhúsgagnaskúr úr pallettum í staðinn.

Re: Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Sun 22. Apr 2018 12:12
af viddi
Ég er með svona pallettusófa á pallinum hjá mér er svo bara með þunnar svampdýnur sem ég hendi á hann í sólinni, einfalt og þæginlegt.

Re: Garðhúsgögn úr vörupalletum

Sent: Þri 24. Apr 2018 23:32
af appel
Guð, farðu bara í rúmfó :D

Eða fara á bland og finna notað dót sem er hægt að lakka.