Síða 1 af 1

Toolstop - Verkfæri frá UK - vefverslun

Sent: Þri 17. Apr 2018 09:20
af asgeireg
Langaði að benda á þessa vefverslun með verkfæri frá UK sem mér finnst passa vel í þenna þráð.

https://www.toolstop.co.uk/

Verðin þarna eru virkilega góð þegar kemur að rafhlöðuverkfærum og þeir senda beint til Íslands. Þekki nokkra verktaka sem eru að taka Makita verkfærin þarna eins og engin sé morgundagurinn, munar oft meira en helmingi á þeim hingað komin miðað við hjá Þór.

Eins pantaði félagi minn vél þarna og hún var eitthvað gölluð, hann sendi þeim póst og fékk aðra senda heim á innan við tvem dögum og þurfi ekki einu sinni að skila hinni vélinni.